28/09/2026
Nemendur í 4. bekk skelltu sér í kartöfluuppskeru í síðustu viku en þau höfðu sett niður í vor. Eftir að hafa tekið upp kartöflurnar var farið eldhúsið þar sem kartöflurnar voru nýttar í spennandi og óhefðbundin bakstur.
Hópurinn sýndi mikla elju og metnað, hvort tveggja við að taka upp kartöflur og við baksturinn. Uppskeran varð svo að kartöfluvinarbrauði sem vöktu mikla lukku meðal nemenda og kennara, en mörgum þótti skemmtilegt að sjá hvernig hægt er að nota kartöflur á nýstárlegan hátt í bakstri.
Gaman var að fylgjast með samvinnu og gleði nemenda allt ferlið, frá mold í munn!