Sjávarakademían

Sjávarakademían

Share

Sjávarakademía Sjávarklasans býður uppá nám sem stendur yfir í eina önn og hefst námið 15.

febrúar.

Í náminu verður lögð áhersla á haftengda nýsköpum, sjálfbærni og frumkvöðlafræði.

02/06/2021

4 vikna sumarnám Sjávarakademíunnar hefst 10.júní

14/05/2021

Silfurverðlaun 😍

12/05/2021

Í gær útskrifuðust nemendur af vorönn úr Sjávarakademíunni. Nemendur kynntu lokaverkefni sín fyrir kennurum, nemendum og stjórnendum og var frábært að sjá hvað það eru mörg tækifæri innan bláa hagkerfisins og hvað nemendur voru fljótir að grípa þau. Einnig var ánægjulegt að sjá hvað hópurinn var meðvitaður um vitundarvakningu á umhverfismálum og voru búin að hugsa viðskiptahugmyndirnar sínar vel til enda með sjálfbærni í huga.

Þetta var í annað skiptið sem boðið er upp á námsleiðina í fullu annarnámi en markmið Sjávarakademíunnar er að efla þekkingu og áhuga á stofnun fyrirtækja og nýsköpun sem tengist bláa hagkerfinu.
Þetta var frábær hópur sem fer frá okkur og erum við viss um að þau eiga eftir að gera góða hluti í framtíðinni.

„Við erum sérstaklega stolt af þessum hópi útskriftarnemenda.Viðskiptahugmyndirnar, sem nemendurnir kynntu, voru afar áhugaverðar, og hlakka ég til að sjá þær komast í framkvæmd á næstu misserum.“ Berta Danielsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans og leiðbeinandi Sjávarakademíunnar.

„Nám í Sjávarakademíunni er mjög góð viðbót fyrir annars fjölbreytt nám í Fisktækniskóla Íslands“ Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari Fisktækniskóla Íslands

Sjávarakademían er samstarfsverkefni Fisktækniskóla Íslands og Íslenska sjávarklasans og fer kennsla fram í Húsi sjávarklasans við Gömlu höfnina í Reykjavík. Námið er á framhaldsskólastigi og mun vonandi festa sig í sessi sem valmöguleiki fyrir þá sem vilja kynnast bláa hagkerfinu betur.

Nánari upplýsingar um Sjávarakademíuna gefur Sara Björk Guðmundsdóttir í síma 777-0148 eða [email protected]

Fisktækniskóli ÍslandsÍslenski Sjávarklasinn

Photos from Sjávarakademían's post 30/03/2021

Við vorum svo heppin að fá að heimsækja nokkur fyrirtæki fyrr á önninni.

Núna er það bara langt páskafrí framundan hjá nemendum og vonandi náum við fleiri heimsóknum fyrir útskrift.

12/02/2021

Í gær hófu þrjátíu nemendur nám í Sjávarakademíunni. Þetta er í annað skiptið sem boðið er upp á námsleiðina en markmið Sjávarakademíunnar er að efla þekkingu og áhuga á stofnun fyrirtækja og nýsköpun sem tengist bláa hagkerfinu.
Eins og á fyrri önn sóttu yfir 90 nemendur um námið og voru 30 nemendur valdir í staðar- og fjarnám.
Það verður gaman að fylgjast með þessum frábæru nemendum út önnina.

03/02/2021
29/01/2021

Ný önn hefst 11.febrúar!

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Grandagarður 16
Reykjavík
101