✨ Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti ✨
Það er ánægjulegt að leiða einstakan hóp kennara, gestakennara og nemenda á námskeiðinu „Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti“ sem kennt er í Símenntun Háskólans á Akureyri. Á námskeiðinu koma saman fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, listmeðferðarfræðingar, geðlæknir, sálgreinir – kennarar, myndlistarmenn, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfi, sérkennarar og fleiri sem hafa sameiginlegan áhuga á listmeðferð og mikilvægi hennar í samfélaginu.
Nemendurnir sýna virkni, áhuga og einlæga þátttöku – bæði á efninu sjálfu og í samskiptum sín á milli. Það skapast einstakt andrúmsloft á námskeiðinu þar sem lærdómur, sköpun og samkennd fá að njóta sín. Kennari námskeiðsins er Dr. Unnur Óttarsdóttir með aðstoð Elísabetar Lorange listmeðferðarfræðings. Gestakennarar eru Helgi Garðar Garðarsson, geðlæknir, Dr. Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir, og Dr. Jordan S. Potash, listmeðferðarfræðingur.
📚 Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnstoðir listmeðferðar þar sem farið er yfir helstu kenningar og aðferðir í sögulegu samhengi.
🎨 Með blöndu af skapandi vinnu, fyrirlestrum, umræðum og verkefnum öðlast nemendur dýpri skilning á listmeðferð og áhrifum hennar.
🧠 Áhersla er lögð á að efla sjálfsvitund í gegnum eigin myndmál og skilning á því hvernig innra líf birtist í listrænni tjáningu.
🛠️ Nemendur kynnast fjölbreyttum efnivið og aðferðum og hvernig samþætta má sköpun, lestur og fræðilega vinnu.
Námskeiðið er tækifæri fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á listmeðferð, bæði fræðilega og í gegnum eigin reynslu (sjá hlekk í fyrstu athugasemd).
Unnur - Art Therapy
art therapy, art therapist, art educational therapy, memory drawing, research, Iceland Börn eiga oft auðveldara með að tjá sig með myndum en orðum.
Listmeðferð er sálræn meðferð þar sem myndsköpun er nýtt til tjáningar og úrvinnslu. Sköpunin er sjálfsprottin og frjáls og ekki er þörf á þekkingu eða færni í listsköpun. Einstaklingar á öllum aldri geta í mörgum tilvikum betur tjáð flóknar tilfinningar, hugsanir og minningar með myndmálinu fremur en talmálinu.
Í listmeðferðinni er unnið með vandann táknrænt og á áþreifanlegu plani í gegnum mynd
26/04/2026
✨ Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti ✨
Það er ánægjulegt að leiða einstakan hóp kennara, gestakennara og nemenda á námskeiðinu „Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti“ sem kennt er í Símenntun Háskólans á Akureyri. Á námskeiðinu koma saman fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, listmeðferðarfræðingar, geðlæknir, sálgreinir – kennarar, myndlistarmenn, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfi, sérkennarar og fleiri sem hafa sameiginlegan áhuga á listmeðferð og mikilvægi hennar í samfélaginu.
Nemendurnir sýna virkni, áhuga og einlægri þátttöku – bæði á efninu sjálfu og í samskiptum sín á milli. Það skapast einstakt andrúmsloft á námskeiðinu þar sem lærdómur, sköpun og samkennd fá að njóta sín. Kennari námskeiðsins er Dr. Unnur Óttarsdóttir með aðstoð Elísabetar Lorange listmeðferðarfræðings. Gestakennarar eru Helgi Garðar Garðarsson, geðlæknir, Dr. Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir, og Dr. Jordan S. Potash, listmeðferðarfræðingur.
📚 Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnstoðir listmeðferðar þar sem farið er yfir helstu kenningar og aðferðir í sögulegu samhengi.
🎨 Með blöndu af skapandi vinnu, fyrirlestrum, umræðum og verkefnum öðlast nemendur dýpri skilning á listmeðferð og áhrifum hennar.
🧠 Áhersla er lögð á að efla sjálfsvitund í gegnum eigin myndmál og skilning á því hvernig innra líf birtist í listrænni tjáningu.
🛠️ Nemendur kynnast fjölbreyttum efnivið og aðferðum og hvernig samþætta má sköpun, lestur og fræðilega vinnu.
Námskeiðið er tækifæri fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á listmeðferð, bæði fræðilega og í gegnum eigin reynslu (sjá hlekk í fyrstu athugasemd).
22/04/2026
Það var ánægjulegt að kynna rannsóknir mínar á teikningu, minni, námi, áföllum og listmeðferð í ReykjavíkurAkademíunni í dag. Áhugaverðar umræður og hugleiðingar fóru fram. Ég á ReykjavíkurAkademíunni mikið að þakka þar sem ég hef árum saman fengið rými til að hugsa og rannsaka innan um aðra fræðimenn.
09/04/2026
I’m honored to have been invited to serve as a keynote speaker at the Art Therapy and Counseling Conference: Foundations and Futures at Caldwell University in New Jersey, taking place this Sunday, April 12th.
More than 100 participants will be joining the 3-hour keynote presentation titled Drawing the Past, Shaping the Future: Memory Drawing for Emotional Well-Being and Coursework Learning.
In the conference introduction, it is noted: “In the afternoon, internationally recognized clinician and researcher Unnur Óttarsdóttir will present her groundbreaking memory drawing research, bridging art therapy, education, trauma-informed practice, and expressive modalities.”
The conference celebrates 25 years of growth and innovation in the field, honoring the pioneers who have shaped clinical training, professional identity, and community impact. The future of art therapy will also be discussed, including a new doctoral program at Caldwell University and expanded efforts in research, scholarship, and leadership.
I'm thankful to Annette Vaccaro, associate professor and program coordinator of the Department of Counseling with Art Therapy Concentration, for organizing this meaningful event and for her generous hospitality.
I look forward to a day of reflection, connection, and inspiration as we honor the past, engage the present, and shape the future of art therapy.
IS.
Það er sannur heiður að hafa verið boðið að vera aðalfyrirlesari á ráðstefnunni "Art Therapy and Counseling Conference: Foundations and Futures" við Caldwell University í New Jersey, sem fer fram núna á sunnudaginn 12. apríl.
Yfir 100 þátttakendur munu taka þátt í þriggja tíma aðalfyrirlestri sem ber titilinn: "Drawing the Past, Shaping the Future: Memory Drawing for Emotional Well-Being and Coursework Learning" (Að teikna fortíðina og móta framtíðina: Minnisteikning fyrir tilfinningalega vellíðan og bólkegt nám).
Í kynningu ráðstefnunnar segir: „Seinnipart dags mun alþjóðlega viðurkenndur klínískur sérfræðingur og rannsakandi, Unnur Óttarsdóttir, kynna brautryðjanda rannsóknir sínar á minnisteikningu (e. memory drawing), sem samþættir listmeðferð, menntun, áfallamiðaða nálgun og tjáningu.“
Ráðstefnan fagnar 25 ára vexti og nýsköpun á sviðinu og heiðrar þá frumkvöðla sem hafa mótað klíníska þjálfun, faglega sjálfsmynd og áhrif á samfélagið. Um leið er horft til framtíðar, meðal annars í tengslum við þróun nýs doktorsnáms við Caldwell University sem markar skref í átt að auknum rannsóknum, fræðastarfi og leiðtogahlutverki.
Bestu þakkir til Annette Vaccaro, deildarforseta meistaranáms í ráðgjöf með áherslu á listmeðferð, fyrir boðið, skipulagningu þessarar mikilvægu ráðstefnu og fyrir hlýjar móttökur.
Ég hlakka til ígrundunar, tengingar og innblástrar þar sem fortíðin verður heiðruð þar sem tekist verður á við nútímann og framtíð listmeðferðar mótuð.
Sjá nánari upplýsingar á hlekk í kommenti.
23/03/2026
I´m grateful to have today been a part of the “Space of Art Therapy: Stories Written in Color”, the 23rd International Interdisciplinary Scientific and Practical Art Therapy Conference in Ukraine
I had the pleasure of presenting and facilitating together with my friend and colleague Mimma Della Cagnoletta, an art therapist from Italy, the presentation and workshop:
"Co-narration: Inter-vision through Squiggle Game and Story Making (ISG)"
In our work, we explore shared understanding through visual expression. These processes allow access to deeper layers of experience and connecting with inner resources to face life’s challenges.
Our method, "Intervision Squiggle Game (ISG)", has grown out of years of creative dialogue between us. Through co-creating, we have engaged with both personal and professional experiences in a reflective and supportive way. Inspired by Winnicott’s squiggle game, ISG is a method for building connection and community among colleagues.
It was inspiring to share this work and witness the power of artistic collaboration across distances. Thank you, Mimma, for the cooperation, the conference organizers, the translator, and everyone who participated and contributed to such a vibrant and meaningful space.
IS
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri í dag til að taka þátt í ráðstefnunni „Space of Art Therapy: Stories Written in Color“ sem er 23. alþjóðlegri þverfaglegu vísinda- og starfsráðstefnu í listmeðferð í Úkraínu.
Ég hafði ánægju af að halda erindið og leiða vinnustofuna „Co-narration: Inter-vision through Squiggle Game and Story Making (ISG)" með samstarfskonu minni, Mimmu Dellu Cagnolettu listmeðferðarfræðingi frá Ítalíu.
Við fjölluðum um skilning með sjónrænni sameiginlegri tjáningu sem gerir okkur kleift að nálgast dýpri lög reynslu og tengjast innri kröftum til að takast á við áskoranir lífsins.
Aðferð okkar, "Intervision Squiggle Game (ISG)", hefur þróast út frá margra ára skapandi samtali okkar sem búum hvor í sínu landi. Með sameiginlegri sköpun höfum við unnið með bæði persónulega og faglega reynslu á ígrundandaðan og styðjandi hátt. ISG miðar að því að byggja upp tengsl og samfélag meðal samstarfsfólks og er aðferðin innblásin af „hrafnasparks" (squiggle game) leik Winnicotts.
Það var ánægjulegt að deila og upplifa kraft listrænnar samvinnu þvert á landamæri.
Bestu þakkir til: Mimmu fyrir samstarfið, skipuleggjanda rástefnunnar, túksins og allra sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að skapa svo lifandi og merkingarbært rými.
Ukraine
Ottarsdottir (Уннур Г. Оттарсдоттір), докторка, дослідниця Рейк'явікської академії, керівниця освітнього комітету Ісландської асоціації арттерапевтів, членкиня Дослідницького комітету Європейської федерації арттерапії (EFAT) та правління Рейк'явікської академії (Ісландія); Мімма Делла Каньолетта, докторка філософії, психологиня, арттерапевтка, психоаналітикиня, і художниця, співзасновниця та почесна президентка організації Art Therapy Italiana (Італія); переклад ‒ Наталія Шмурікова, перекладачка, голова правління ГО «Центр Стратегічних Ініціатив», художниця-аматорка в стилі Самчиківського розпису: Спільне розказування історій (co-narration: Інтервізія через гру в «каракулі» та створення історій (isg).
Today I had the joy of teaching an art therapy course at the Continuing Education Centre at the University of Akureyri ☀️
Surrounded by beautiful weather and the stunning Akureyri, we explored creativity, self-awareness, and well-being through art 💛
Grateful for such an engaged and inspiring group ✨
ÌS
Í dag var ég að kenna einstaklega góðum og áhugasömum hópi, um listmeðferð, í Símenntun Háskólans á Akureyri ☀️
Fallegt veður og dásamlega Akureyri í bakgrunninum, fullkominn rammi fyrir skapandi vinnu. ✨
Á námskeiðinu er fjallað um grunnhugtök og aðferðir listmeðferðar og byggist það á fyrirlestrum, lestri, verkefnavinnu, umræðum og vinnustofum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að upplifa sköpunarferlið og þann möguleika sem það gefur. Unnið er með eigið myndmál, sem eykur sjálfsmeðvitund. Kynntar eru myndsköpunaraðferðir sem efla sköpunargáfu, styrkja sjálfsmynd, mynda tengsl, auka minni, dýpka sjálfsþekkingu og stuðla að bættri líðan 💛
Warmth, creativity, and a safe space for children ☃️💛
Creativity in art therapy can be especially helpful for children. Through play, colors, shapes, symbols, and image-making, within a safe and supportive relationship with an art therapist, children are given the opportunity to express deep emotions in ways that foster balance, self-confidence, and inner strength.
☃️🎨 A little warmth and creativity can make a big difference.
IS
Hlýja, sköpun og rými fyrir börn ☃️💛
Sköpunin í listmeðferð getur verið sérstaklega hjálpleg börnum. Með leik, litum, formum, táknum og myndsköpun innan sambands við listmeðferðarfræðing fá þau tækifæri til að tjá djúpstæðar tilfinningar innan öruggs rýmis sem stuðlar að jafnvægi, sjálfstrausti og styrk.
☃️🎨 Smá hlýja og sköpun geta skipt sköpum.
Frábært að sjá þessa frétt á BBC um listmeðferð sem árangursríka leið til að draga úr kulnunareinkennum heilbrigðisstarfsfólks. Framlag Megan Tjasink og rannsóknir hennar er áhrifarík fyrir fólk sem starfar undir miklu álagi í heilbrigðiskerfinu. Innilegar hamingjuóskir Megan Tjasink ❤🌹❤
03/01/2026
💭✨ Draumar og sköpunarkraftur ✨💭
Í þessum áhugaverða útvarpsþætti er fjallað um drauma og mikilvægi þeirra í lífi okkar, með sérstakri áherslu á tengsl drauma og sköpunarkrafts. Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur, er með áhugavert innlegg m.a. um hvernig við getum efnisgert drauma með listsköpun ❤️ Í þættinum er einnig rætt við aðra sem hafa nýtt sér drauma í skapandi vinnu og þannig opnað leiðir að dýpri sjálfsskilningi, innblæstri og sköpun.🎙 Umsjón með þættinum: Kolbrún Vaka Helgadóttir.
Mæli með hlustun 🌙✨
Uppspretta - Spilari RÚV Draumar eru stór hluti af lífi allra, fáir gefa þeim samt sem áður mikinn gaum. Hvað gerist ef við beinum athyglinni meira að draumum okkar? Viðfangsefnið í þættinum eru draumar og sköpunarkraftur. Rætt er við fólk sem hefur nýtt sér drauma í skapandi vinnu.Umsjón: Kolbrún Vak...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Síðumúli 34
Reykjavík
108