Blaðamennska - Háskóli Íslands

Blaðamennska - Háskóli Íslands

Share

Grunnnám í blaðamennsku við Háskóla Íslands er spennandi, hagnýtt og skemmtilegt og býr nemendur undir fjölbreytt störf við margskonar fjölmiðlun.

27/02/2026

Sjáumst á Háskóladeginum! Kennarar og nemendur úr grunnnáminu í blaðamennsku verða á Háskólatorgi á morgun frá kl. 12-15. Hlökkum til að taka á móti ykkur og svara spurningum. Hlekkur á nánari upplýsingar um námið í athugasemd 👇

25/02/2026

Nemendur á 1. ári í BA-námi í blaðamennsku við Háskóla Íslands eru þessa dagana að vinna fjölbreyttar fréttir sem birtast á Stúdentafréttir. Hvetjum ykkur til að fylgjast með! Hér er til dæmis frétt um „Fyndnasta háskólanemann“. Fréttina vann Sigrún Björk Hjartardóttir, nemandi í blaðamennsku.

Það var líf og fjör á Stúdentakjallaranum í gærkvöldi þegar uppistandskeppnin Fyndnasti háskólaneminn fór fram. Keppnin er haldin á vegum Félagslífs- og menningarnefndar Stúdentaráðs Háskóla Íslands og er orðinn fastur liður í félagslífi stúdenta. Keppnin var góð upphitun fyrir árshátíð SHÍ sem haldin verður í Valsheimilinu á morgun.

Pjetur Már Hjaltason sigraði keppnina í ár og hreppti þar með titilinn „Fyndnasti háskólaneminn.“ Í dómnefnd keppninnar voru Egill Andrason, Inga Steinunn Henningsdóttir og Oddur Sigurðarson.

Hlekkur í fyrstu athugasemd🔗

04/02/2026

Við minnum á að nemendur í blaðamennsku birta reglulega fréttir á Stúdentafréttir. Mælum með að þið fylgist vel með þar!

Opið fyrir umsóknir í blaðamennsku 28/05/2025

Við minnum á að umsóknarfrestur er til 5. júní!

Blaðamennska er hagnýtt og fræðilegt nám sem undirbýr þig fyrir störf við fjölmiðla framtíðar. Staðgóð menntun blaða- og fréttamanna er mikilvæg forsenda þess að fjölmiðlar geti sinnt hlutverki sínu við að upplýsa og fræða fólk í nútíma lýðræðissamfélögum og ekki síst að veita valdhöfum aðhald. Markmiðið er að leggja traustan grunn að fagþekkingu í blaðamennsku og búa nemendur sem best undir störf í hröðum heimi nútímafjölmiðlunar.

Opið fyrir umsóknir í blaðamennsku Umsóknarfrestur er til 5. júní

20/05/2025

Fyrsta árinu í nýju BA-námi í blaðamennsku við Stjórnmálafræðideild við HÍ / Political Science formlega lokið. Eftir nemendur liggja fjölmargar greinar, hljóð- og myndefni. Og þetta eðalefni liggur sko ekki í skúffu kennarans. Það má sjá á studentafrettir.hi.is, í Víkurfréttum, Skessuhorni og Austurfrétt. Nemendurnir Ásrún Aldís og Alma Sól fengu höfðingleg verðlaun frá landsbyggðarritstjórunum fyrir greinar sínar. Og á næstu dögum birtast innslög eftir nemendur í Samfélaginu á RÚV.

16/04/2025

Afraksturinn af góðu samstarfi blaðamennskunámsins við Austurfrétt, Skessuhorn og Víkurfréttir er tekinn að birtast. Tvær greinar eftir blaðamennskunema birt í páskablaði Víkurfrétta og tvö í páskablaði Skessuhorns. Fleiri greinar og viðtöl sem nemendur hafa skrifað verða birt á næstu vikum.

14/02/2025

Blaðamennskunemar í HÍ víla ekki fyrir sér að takast á við stór umræðuefni eða ræða við áhrifafólk. Í fyrsta þætti Háskólaumræðunnar á þessari önn ræddu Ásrún Alda Hreinssdóttir og Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir við sagnfræðinginn og fyrrverandi forseta, Guðna Th. Jóhannesson.

Og umræðuefnið: Stefnir mannkynið til glötunar. Hvað segir sagan okkur? Svarið finnið þið á studentafrettir.hi.is

18/11/2024

Blaðamenn verða að fylgjast með fréttum – og líka nemar í blaðamennsku. Það gerir Ásrún Aldís Hreinsdóttir svo sannarlega. Hún stóð uppi sem sigurvegari í fréttaspurningakeppninni sem nemendur tóku þátt í vikulega á haustönninni.

15/11/2024

Lok annar er tími uppgjörs. Nemendur í blaðamennsku hafa birt 39 fréttir á studentafrettir.hi.is - og að þeirra mati var besta fréttin viðtal Guðríðar Jóhannsdóttur við nýjan fulltrúa í Háskólaráði - Katrínu Jakobsdóttur fyrrverandi forsætisráðherra. En það var hörð samkeppnin við fréttina sem lenti í öðru sæti, skúbbið sem Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifaði um sáttagreiðslu SHÍ vegna Oktoberfestar.

https://studentafrettir.hi.is/frettir/buin-ad-fara-fullan-hring-og-komin-aftur-i-thad-sem-hun-brennur-fyrir/

https://studentafrettir.hi.is/frettir/lokadur-studentaradsfundur-um-8-milljona-krona-sattagreidslu/

Photos from Blaðamennska - Háskóli Íslands's post 12/11/2024

Ótrúlegt en satt. Kennslu að ljúka á fyrstu önninni í nýja BA-náminu í blaðamennsku. Og nemendur hafa farið víða. Í vísó til Árvakurs, heimsótt RÚV og Sýn og ritstjórar stóru landsbyggðarmiðlanna komu í tíma.

18/06/2024

Dagný Lind Erlendsdóttir útskrifaðist úr meistaranámi í blaða- og fréttamennsku á laugardaginn var og það með ágætiseinkunn - geri aðrir betur. Hér með Evu Marín Hlynsdóttur, deildarforseta Stjórnmálafræðideildar. Glæsilegur árangur hjá frábærum nemanda. Innilega til hamingju Dagný og gangi þér allt í haginn í framtíðinni.

18/06/2024

Þetta glæsilega fólk útskrifaðist úr meistaranámi í blaða- og fréttamennsku á laugardaginn. Jean Rémi Chareyre, Dagný Lind Erlendsdóttir, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Stefán Drengsson og Apríl Auður Helgudóttur, sem því miður g*t ekki verið við útskriftarathöfnina - innilega til hamingju með áfangann og takk fyrir samstarfið undanfarin ár.

Jóhanna Helga Jensdóttir og Sigmann Þórðarsson útskrifuðust með diplóma í blaða og fréttamennsku og við óskum þeim líka til hamingju með áfangann.

Í ágúst verða svo tímamót þegar nýtt BA nám í blaðamennsku hefst.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Háskóli Íslands, Oddi, Sturlugata 3
Reykjavík
102