29/10/2021
Akkurat þetta! 🙏🏼
“It’s amazing how little you care about what people think.” My client said during our lesson the other day.
“You focus on your training regardless of what people around you are doing.
I mean, the other day, you didn’t even notice the dog that was running around at your feet, trying to get your attention, because you were so focused on coaching your student.”
I laughed. It’s true.
I mean, I’m not going to say I never care about what people think of me - I’m only human after all.
But when it comes to training dogs, I NEVER worry about the opinions of strangers.
Because my dog needs my full attention.
And truthfully, the people who are passing judgment don’t.
But in this case my client was mistaken. Because I DID notice the dog.
Even though I didn’t acknowledge it or say hi…
I knew it was there.
My choice to ignore the dog was intentional.
Because if a dog approaches me, I ignore it…
Every. Single. Time.
And dog owners regularly misconstrue my actions when I do.
They think I’m being rude. They take it personally.
But the truth is…
I don’t do it because I don’t like the dog…
It’s not that I don’t want to greet them.
I ignore them out of respect for their owner.
Because lavishing a dog with attention that is pulling to get to me, or jumping around at my feet, is only going to teach them two important lessons…
- Other people in environment are a great reason to ignore your owner
- Being overexcited, pulling, or jumping about pays big
Not to mention, looming over dogs that don’t know me, making direct eye contact, thrusting my hand out, and touching them without giving them the opportunity to check me out first can make them uncomfortable.
Listen…
Anyone who has worked through behavior challenges will tell you how grateful they are when people ignore their dog.
When people don’t swoon, or touch their dog but instead, give them the space to reinforce their training.
And give them the space to say hi if they want to.
So when I’m in public, I offer others the same respect.
Despite my deep desire to scoop every dog up in my arms and kiss their faces (I am who I am)…
I ignore dogs when they approach.
I put their needs above my wants.
And I wish more people would do the same.
28/09/2021
Hlustanir eru komnar yfir 10.000 frá fyrsta þætti og erum við gífurlega þakklátar fyrir!
Fyrsti þáttur í nýrri seríu verður spurt og svarað þáttur, ef þú ert með spurningu/ar máttu gjarnan láta okkur vita hér á facebook eða instagram! :D
- Alla þættina okkar má nálgast á helstu hlaðvarpsveitum!
27/08/2021
Nýjasti þáttur Hundsvit fer yfir allar mögulegar hundaíþróttir sem hægt er að stunda á Íslandi! 🏃🏼♀️
Margir hafa tileinkað sér lífstíl þar sem hundurinn er í fyrirrúmi, hvort sem það er í björgunarsveitum, veiði eða sporti. Úrvalið af íþróttum og afþreyingu er orðið nokkuð gott hér á landi og félagsskapurinn fjölbreyttur og skemmtilegur!
Hvað sem verður fyrir valinu, þá ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi! ❤️
17/08/2021
Hundaíþróttir á Íslandi - margt í boði!
Við erum ansi heppin hér á landi með úrval hundaíþrótta þrátt fyrir lítið samfélag. Það er mikill kraftur í mörgum ólíkum deildum, bæði innan HRFÍ og utan þess þar sem íþróttir og lífstílsvinna er í boði í formi námskeiða, prófa eða einfaldlega félagsskaps. Við ...
10/08/2021
Þáttur vikunnar fjallar um þetta stóra umræðuefni - geldingu rakka! Hvernig virkar gelding, hvernig virkar efnagelding, hvenær má gelda og afhverju eru svona skiptar skoðanir á því? Hvaða áhrif hefur gelding á skap hundsins míns o.s.frv....
03/08/2021
Ertu búin/nn að hlusta á þáttinn um þjálfun ungra hunda 👶🏼? Hefurðu velt því fyrir þér hvað þú mátt gera mikið, hvað mega göngutúrarnir vera langir og hvernig við leggjum grunninn að góðu sambandi? Hvað mega hvolpar hreyfa sig mikið og hvenær mega þeir fara upp og niður stiga?
03/08/2021
Þjálfun ungra hunda - verkefna þyngd og hreyfing
Er þessi "5 mínútur fyrir hvern mánuð" regla sönn? Er ég og sein að byrja að þjálfa hundinn í hlýðni hálfs árs gamlan? Hvað má útivistin vera löng? Við ræðum þetta og fleira í þætti vikunnar þar sem þjálfun ungra hunda var rædd í þaula!
27/07/2021
Flestir gera sér einhvern tímann upp hvað þeir hefðu viljað vita fyrr... Veist þú hvað hvolpar þurfa mikinn svefn að meðaltali á dag og hvaða áhrif svefnleysi getur haft á hvolpa? Við fjöllum um svefn hvolpa ásamt öðrum hlutum sem við hefðum viljað vita fyrr...
27/07/2021
Hlutir sem við hefðum viljað vita fyrr!
Það er alltaf eitthvað sem maður hefði viljað vita fyrr þegar það kemur að uppeldi hunda, og hér eru nokkrir þættir sem við hefðum glaðar vilja vita áður en við tókum við hundunum okkar sem hvolpum!
21/07/2021
Þurfa allir hundar að vera vinir?
Í þætti vikunnar ræddum við þá þreyttu mýtu að allir hundar þurfi að eiga aðra hunda vini eða heilsa fólki eða hundum í göngutúrum. Við ræddum málefnið í ljósi þjálfunar- og sálfræði og tókum dæmi sem allir ættu að kannast við! 👏🏼
20/07/2021
Geta allir verið vinir í skóginum?
Það er fátt skemmtilegra en að leyfa hundunum okkar að hitta vini sína, en geta allir hundar verið vinir? Þurfa allir hundar að vera vinir? Er í lagi að eiga hund sem vill ekki heilsa, og jafnvel geltir á aðra hunda? Umræðuefni þáttarins er akkúrat þetta, þurfum við að leyfa hu...