11/10/2025
Fáeinir tímar í markþjálfun geta hjálpað þér til að finna betur taktinn. Erfið mál sem koma upp í kennslustofunni er mögulega hægt að leysa með öðrum hætti en þér hefur áður séð fyrir þér. Í markþjálfuninni hugsar þú dýpra og getur þá vel mögulega fundið fleiri fleti á sama máli, fleiri jákvæðar leiðir út úr erfiðum málum.
Starf kennara getur verið ótrúlega flókið og þú mætir mörgum óvæntum áskorunum dag hvern. Þannig hefur það alltaf verið, en
kennarastarfið er orðið enn umfangsmeiri og flóknari nú en áður vegna breyttra aðstæðna. Því er gott að staldra við, ná yfirsýn og skoða hvernig hægt er að ná betur utan um starfið og njóta sín betur.
Vellíðan þín í starfi skiptir miklu máli fyrir vellíðan þína í einkalífinu. Þegar þér líður vel þá nærð þú líka betur til nemenda þinna og allt verður auðveldara.
Líttu á vefinn minn https://namstaekni.is
Þar sérðu ýmislegt tengt því að auka vellíðan kennara í starfi.
Þar er einnig að finna hagstæð pakkatilboð á tíma í markþjálfun auk 5 - 9 vikna einkanámskeiðsins "Blómstraðu kennari!"
Vinna min með kennurum fer fram í gegnum netið eða staðbundið í Reykjavík þannig að þó að þú búir úti á landi þá er það engin fyrirstaða varðandi markþjálfunartíma með mér eða námskeið.
Bestu kveðjur
Jóna Björg Sætran.
[email protected]
Sérhæfð námskeið og þjónusta fyrir nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur25 ára reynsla í að aðstoða fólk við að efla sjálfstraust sitt, auka árangur sinn í námi og starfi, ná að yfirstíga kvíða, auka sjálfstraust og vellíðan. 25 ára reynsla í að aðstoða f....