18/04/2024
AÐEINS 0,5% RISAVERKEFNA TELJAST VEL HEPPNUÐ
Það var bæði fræðandi og skemmtilegt að hlusta á Dan Gardner tala um "How Big Things Get Done" nú í morgun. Hann er margverðlaunaður höfundur metsölubókar um þetta efni og í fyrirlestri sínum tók hann dæmi um bæði vel heppnaðar opinberar framkvæmdir og önnur verkefni sem hafa hafa verð stórslys.
Dan Gardner birti upplýsingar úr rannsóknum á risaverkefnum. Aðeins 0,5% risaverkefna í heiminum teljast vel heppnuð, þ.e. þau voru innan kostnaðar- og tímaáætlana og töldust ná tilgangi. Skilaboð Dan má einfalda í fáum orðum: "Think slow - Act fast". Þatta þýðir einfaldlega að undirbúningur risaverkefna skiptir öllu.