🏽♀️Útileikir
🎧Stúdíóupptaka
👩🎤Tónleikar
Börnin læra á ukulele, fá aðstoð við að semja eigið lag, stúdíóupptöku af laginu, tækifæri til að koma fram á sviði og flytja lagið (ásamt öðrum lögum). Það verður einnig hópefli, núvitundaræfingar, leikir, og söngkennsla. Síðast fór námskeiðið fram úr öllum vonum með einróma lofi bæði þáttakenda og aðstandenda!
Ætlar þú að vera með í ár?!! ☺️❤️🎶🎤
Verð: 37.500 kr.
_________________________________
Hverjar erum við? Vala Yates er söngkona, tónskáld, tónlistarkennari, og stundar meistaranám í tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi (NAIP). Vala er klassískt menntuð söngkona en hefur einnig lokið fyrsta af þremur árum söngkennaranámsins í
Complete Vocal Institute í Danmörku. Hún hefur því einnig reynslu af tækni sem snýr að jazz og poppsöng, og hefur þar að auki kennt söng síðustu árin. Hún er um þessar mundir í meistaranámi í LHÍ, þar sem hún lærir hagnýtar aðferðir til að vera sjálfstætt starfandi tónlistarkona, sem nýtist meðal annars í námskeiðshaldi og kennslu. Hún hefur mikla reynslu af því að koma fram á tónleikum og syngur lög sín af sannfæringu og innlifun. Hún hefur verið tengd tónlist frá barnsaldri og unnið jafnt með popptónlistarmönnum/konum og
klassískum tónskáldum við hin ýmsu tilefni. Hún er einnig með B.A. gráðu í tónsmíðum frá LHÍ, og hefur haldið hóp söngnámskeið sem hún hannaði sjálf, með kennsluaðferðir og hugmyndafræði Complete Vocal Technique að leiðarljósi. Vala hefur brennandi áhuga á tónlist, tónsköpun og söng, og fyrir því að miðla sinni þekkingu til annara, og aðstoða bæði börn og fullorðna til að stækka og þroska sína hæfileika innan tónlistar, hvort sem á við um söng eða mismunandi leiðir tónsköpunar. María Viktoría er tónlistarkona, lagahöfundur, gítarleikari, söngkona og er lærð á rafgítar í FÍH undir handleiðslu Ásgeirs Ásgeirssonar, 2013-2015 og lærði í Gís 2009-2013 hjá Ragnari Emilssyni. Hún er einnig markþjálfi, lærð hjá Evolvia. Hún kennir á gítar og ukulele á eigin vegum og hjá Klifinu og býður upp á einstaklingsbundna kennslu þar sem lögð er áhersla á að kenna útfrá styrkleikum og áhugasviði nemandans. Hún vann hjá samtökunum Stelpur rokka sumrin 2014-2018, þar sem hún kenndi unglingsstelpum að spila á hljóðfæri og semja lög. Einnig kenndi hún í samskonar sumarbúðum í Svíþjóð og Noregi, 2016 og 2017. Hún hefur auk þess margra ára reynslu af því að starfa með börnum og unglingum, bæði á Djúpavogi og Reykjavík. Sumarið 2021 ferðaðist hún víðs vegar um landið með Völu Yates tónlistarkonu og Elenu Arngrímsdóttur jógakennara og voru þær með sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga og héldu fimm tónleika með frumsamdri tónlist: Hafnarfirði, Egilsstöðum, Djúpavogi, Seyðisfirði og Höfn í Hornarfirði. Hún hefur einnig gefið út nokkur lög undir eigin nafni á hinum ýmsu netmiðlum. That’s all right (2018), Rainy Rurrenabaque (2019), sem fjallar um þorpið Rurrenabaque við Amasónskóginn, og Komdu nær (Kakólagið)(2019)
______________________________
Umsagnir frá tónflæði 2022
,,Við mælum hiklaust með námskeiðinu Tónflæði. Bestu meðmælin eru sú að sonur okkar kom ánægður heim eftir hvern dag, talaði stanslaust um þá hluti sem hann hafði gert þann daginn, og var spenntur fyrir næsta degi. Á námskeiðinu fékk hann að kynnast og prófa mismunandi hljóðfæri, vinna með öðrum og semja lag. Þess á
milli var farið í skemmtilega og uppbyggilega leiki.”
-Sigurjón
,,Ég fór á námskeiðið Tónflæði síðasta sumar. Það var geggjuð upplifun og ég lærði margt sem ég mun nýta mér í framtíðinni. Ég hef verið að syngja mjög lengi en ég var aldrei meðvituð um hvaða aðferð ég hafi verið að beita. Þetta var í fyrsta skipti sem ég lærði tækni í söng og það var mjög hjálplegt að læra hvernig sé best að beita röddinni og passa upp á öndun. Ég fór líka í gítartíma hjá Maríu. Ég hafði áður farið í einkatíma hjá henni og ég mæli með þeim fyrir fólk sem vill mikið frelsi þegar það er að læra á hljóðfæri. María er mjög góður kennari, hún hlustar á mig og hvað ég vil læra og kennir mér síðan reglur og tækni út frá því. Síðast en ekki síst þá verð ég að minnast á tónleikana sem voru haldnir í lok námskeiðisins. Það var svo æðislegt að fá tækifæri til að koma fram á sviði, sérstaklega þegar ég var búin að vinna lengi í því sem ég var að flytja og var stolt af því.”
-Sigga Erla
__________________________________
Um söngkennsluna hjá Völu:
“Námskeiðið með Völu hefur verið frábær og falleg lífsreynsla fyrir mig, til að tengjast mínum innri krafti og kynnast röddinni minni. Hún hefur mikla trú á nemendum sínum og sýnir stuðning með kennslunni á fallegan hátt, til að tengjast manns eigin rödd. Ég mæli eindregið með námskeiðunum hennar og get ekki beðið eftir næsta námskeiði.”
- Wioleta Gasinska -
“Frábært söngnámskeið í alla staði! Vala er með sérstaklega þægilega nærveru og lætur öllum í kringum sig líða vel. Hópnámskeiðið hjá henni var virkilega skemmtileg lífsreynsla og tæknin sem hún kennir Complete Vocal Technique gerði þessum byrjandastrákahóp kleift að mastera óskalög í hverjum tíma… sem ég hafði ekki hugmynd um að væri hægt á svona skömmum tíma. Ég mæli eindregið með þessum söngnámskeiðum hennar og hvet alla að skella sér í söngtíma hjá þessari fallegu sál og mastera óskalög að vild! Stay awesome Vala!"
- Davíð Elí Halldórsson -
_______________________________
Gítar, ukulele kennsla hjá Maríu
,,María nær greinilega mjög vel til stráksins míns, en eftir fyrsta tíma hjá henni fannst honum hann strax geta sigrað heiminn. Hann er alltaf jafn spenntur að mæta í tíma til hennar og lætur sig ekki vanta. Við fáum svo alltaf myndband með því sem þau fóru yfir í tímanum sem er mjög hjálplegt. Hann velur lögin sjálfur og finnst þar af leiðandi gaman að æfa sig heima og spila fyrir vini og fjölskyldu. Mæli mikið með Maríu!"
- Vigdís Erla -
"Sérstaklega jákvæð nálgun á gítarkennslu. María er sjálf með puttann á púlsinum, heldur nemendum vel við efnið og aðstoðar þá bæði í tímum og með myndböndum í framhaldi af tímum. Nemandinn kemur brosandi úr hverjum tíma”
- Örn Smárason -