Tónlistarskóli Vesturbyggðar

Tónlistarskóli Vesturbyggðar Þessi síða er fyrir nemendur,foreldra og velunnara Tónlistarskóla Vesturbyggðar. Hér verða myndir og fréttir af skólastarfinu.

Tónlistarskóli Vesturbyggðar auglýsir eftir nýjum umsóknum fyrir starfsárið 2026-2027. Umsóknarfrestur er til og með 21....
15/08/2026

Tónlistarskóli Vesturbyggðar auglýsir eftir nýjum umsóknum fyrir starfsárið 2026-2027. Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst. Tökum við umsóknum fyrir alla aldurshópa eldri en 5 ára. Kennt er á fiðlu, gítar, bassa, ukulele, píanó, söng og öll blásturshljóðfæri eins og blokkflautu, þverflautu, klarinett, saxófón, trompet o. fl. Athugið að aðeins afar fá pláss eru fyrir nýja nemendur á píanó þetta árið, fyrstur kemur, fyrstu fær.
Umsóknareyðublaðið má finna hér:
https://tonviska.is/form/47/5ab4e8e0dfc9c4fc/

Svipmyndir frá hátíðahöldum í blíðskaparveðri á Bíldudal í tilefni af 17. júní. Noah Þráinn lék á píanó fyrir okkar hönd...
24/06/2026

Svipmyndir frá hátíðahöldum í blíðskaparveðri á Bíldudal í tilefni af 17. júní. Noah Þráinn lék á píanó fyrir okkar hönd, Arna Margrét var fjallkonan, Nanna Sjöfn flutti ræðu, Einar Skarphéðins var krýndur bæjarlistamaður 2026 og allt hófst með skrúðgöngu þar sem við lánuðum göngutrommu. Vonandi verða nemendur okkar trymblar næst 🇮🇸🎵🌼🥁

59. skólaslit Tónlistaskóla Vesturbyggðar voru haldin í Patreksfjarðarkirkju. Þar kvöddum við 3 nemendur þau André úr Pa...
03/06/2026

59. skólaslit Tónlistaskóla Vesturbyggðar voru haldin í Patreksfjarðarkirkju. Þar kvöddum við 3 nemendur þau André úr Patreksskóla, Hildi Ásu úr Bíldudalsskóla og Noah Þráinn úr Tálknafjarðarskóla en þau eru öll að klára 10. bekk og á leið í framhaldsskóla. Einnig kvöddum við einn kennara hana Alejöndru sem hefur kennt við skólann um árabil. Óskum þeim öllum alls hins besta. Það sem stóð uppúr á skólaárinu var að sjálfsögðu svæðistónleikar Nótunnar sem voru haldnir á Patreksfirði um miðjan apríl. Takk fyrir veturinn kæru nemendur og við hlökkum til að sjá ykkur hress næsta haust!

Fimmtudaginn 28. maí fóru nemendur frá Tálknafirði ásamt Mayu í Vindheima og spiluðu nokkur lög. Alltaf gott að koma þan...
03/06/2026

Fimmtudaginn 28. maí fóru nemendur frá Tálknafirði ásamt Mayu í Vindheima og spiluðu nokkur lög. Alltaf gott að koma þangað, nutum góðra veitinga og áttum notalega stund. Takk fyrir okkur!

Það er alltaf gaman að samfélagstónleikum Tónlistarskólans á vorin þegar við förum með nemendur út í bæ að spila. Í þett...
02/06/2026

Það er alltaf gaman að samfélagstónleikum Tónlistarskólans á vorin þegar við förum með nemendur út í bæ að spila.
Í þetta sinn var það Hvest sjúkrahúsið á Patreksfirði og fóru Helga og Maya með nokkra nemendur miðvikudaginn 27.mai að spila.

01/06/2026
Í dag fóru Helga og Maya með nokkra nemendur úr Tónlistarskólanum í félagsheimilið Birkimel til að spila fyrir fólkið þa...
26/05/2026

Í dag fóru Helga og Maya með nokkra nemendur úr Tónlistarskólanum í félagsheimilið Birkimel til að spila fyrir fólkið þar.
Mættu yfir 20 manns og var mjög gaman. Allir ánægðir með útkomuna enda allir nemendur sem tóku þátt á einhvern hátt tengdir inn á Barðaströnd.

Samfélagstónleikar í Eyrarseli fimmtudaginn 21. maí, þriðju tónleikarnir í þessari tónleikaröð í maí. Vel heppnað og ske...
25/05/2026

Samfélagstónleikar í Eyrarseli fimmtudaginn 21. maí, þriðju tónleikarnir í þessari tónleikaröð í maí. Vel heppnað og skemmtilegt eins og alltaf 🎵🎸🌹🎹🎻

Tónleikar í Birkimel þriðjudaginn 26. maí kl. 16:00 með nemendum tónlistarskólans sem búa á Barðaströnd eða eigar þar ræ...
25/05/2026

Tónleikar í Birkimel þriðjudaginn 26. maí kl. 16:00 með nemendum tónlistarskólans sem búa á Barðaströnd eða eigar þar rætur. Tónleikarnir eru hluti af samfélagstónleikaröðinni okkar í maí.
Verið öll velkomin!

Þriðjudaginn 19. maí fóru þeir Magnús og Szymon að skemmta leikskólabörnunum í Tjarnarbrekku, líklega í síðasta sinn á þ...
21/05/2026

Þriðjudaginn 19. maí fóru þeir Magnús og Szymon að skemmta leikskólabörnunum í Tjarnarbrekku, líklega í síðasta sinn á þessum stað. Þeir brilleruðu báðir og vöktu mikla aðdáun yngri barnanna 🎵❤️🌹

Address

Patreksfjordhur
450

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3544502340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistarskóli Vesturbyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Tónlistarskóli Vesturbyggðar:

Shortcuts

Share

Category