Akurskóli

Akurskóli Akurskóli hóf starfsemi haustið 2005. Skólinn var formlega vígður 9. nóvember 2005.

📢 **Mikilvæg tilkynning vegna veðurs á morgun**Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris á Reykjanesska...
20/09/2026

📢 **Mikilvæg tilkynning vegna veðurs á morgun**

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris á Reykjanesskaga snemma í fyrramálið. Spáð er talsverðum vindi þegar skólastarf hefst kl. 8:00 og geta myndast snarpir vindstrengir við skólann.

Við biðjum foreldra og forráðamenn að huga sérstaklega að aðstæðum við komu nemenda í skólann og meta hvort ástæða sé til að fylgja börnum sínum alla leið inn í skólann sérstaklega þeim yngstu.

Einnig er mikilvægt að nemendur séu vel klæddir eftir veðri.

Við fylgjumst náið með þróun veðurs og munum upplýsa foreldra ef frekari ráðstafanir reynast nauðsynlegar.

💨 Sýnum aðgát og förum varlega í fyrramálið.

Minnum á aðalfund Foreldrafélags Akurskóla.
17/09/2026

Minnum á aðalfund Foreldrafélags Akurskóla.

16/09/2026

Námfús tekið við af Mentor

Við viljum minna foreldra og forráðamenn á að Námfús er nú orðið aðalkerfi skólans og Mentor er ekki lengur í notkun.

Ef þið eigið í vandræðum með innskráningu eða vantar lykilorð vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans og við aðstoðum ykkur. Sendið tölvupóst á [email protected]

📅 Nú standa yfir bókanir fyrir samtalsdag.
Bókunarhnappinn eigið þið að sjá á forsíðu Námfús, bæði í appinu og á vefsíðunni.

⚠️ Mikilvægt er að vera skráð inn á réttan nemanda þegar viðtal er bókað. Foreldrar sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum þurfa að skipta yfir á viðkomandi barn áður en bókað er hjá umsjónarkennara þess.

Annars getur komið upp sú staða að sami nemandinn sé bókaður í viðtal hjá kennara annars barnsins, til dæmis bæði í 2. og 9. bekk.

✅ Ef bókun lendir á röngum nemanda er auðvelt að laga það:

Fara inn á rétta nemandann.
Afbóka ranga tímann.
Bóka nýjan tíma hjá réttum umsjónarkennara.

Við vitum að eðlilegt er að smávægilegir hnökrar komi upp þegar nýtt kerfi er tekið í notkun og við erum stöðugt að yfirfara ferla og lagfæra það sem betur má fara.

Takk fyrir þolinmæðina og samstarfið! 🌟

Vegna framkvæmda á vegum HS Veitna verður lokað fyrir heitt vatn í Akurskóla miðvikudaginn 9. september frá kl. 08:00 ti...
08/09/2026

Vegna framkvæmda á vegum HS Veitna verður lokað fyrir heitt vatn í Akurskóla miðvikudaginn 9. september frá kl. 08:00 til 13:00.

Þrátt fyrir lokunina verður skólastarf að mestu með hefðbundnum hætti en eftirfarandi atriði breytast þennan dag:

Hádegismatur
Til að einfalda framkvæmd hádegisverðar á meðan lokað er fyrir heita vatnið verður boðið upp á Júmbó pastabakka með kjúklingi frá Skólamat ásamt fjölbreyttu meðlæti af meðlætisbar með ávöxtum.

Íþróttir og sund
Ekki verður hægt að bjóða upp á sturtuaðstöðu á meðan heita vatnið er tekið af. Þeir sem eiga að vera í sundi fara í íþróttahúsið og íþróttir eru úti þessa vikuna.

Skólastarf að öðru leyti
Kennsla og annað skólastarf fer fram samkvæmt stundaskrá og er gert ráð fyrir að allt verði komið í eðlilegt horf þegar heita vatnið kemst aftur á um hádegi.

Við í Akurskóla tökum að sjálfsögðu þátt í treyjudeginum á morgun. Nemendur og starfsfólk eru hvattir til þess að mæta í...
03/09/2026

Við í Akurskóla tökum að sjálfsögðu þátt í treyjudeginum á morgun. Nemendur og starfsfólk eru hvattir til þess að mæta í einhverskonar íþróttatreyju í skólann. https://treyjudagur.is/

Address

Tjarnabraut 5
Njarðvík
260

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:30
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 14:00

Telephone

+3544204550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Akurskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Akurskóli:

Shortcuts

Share

Category