Tónlistarskóli Reykjanesbæjar

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Hér á þessari síðu birtast upplýsingar og tilkynningar frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Ennþá nokkur pláss laus í Söngleikjadeild TR! Hægt að sækja um á heimasíðunni www.tonrnb.is 🎤👩‍🎤
21/09/2026

Ennþá nokkur pláss laus í Söngleikjadeild TR! Hægt að sækja um á heimasíðunni www.tonrnb.is 🎤👩‍🎤

SÖNGLEIKJADEILDVið bjóðum upp á nám í söngleikjadeild sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng og h...
28/08/2026

SÖNGLEIKJADEILD
Við bjóðum upp á nám í söngleikjadeild sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng og hreyfingum á söngleikjasviði.
Nú eru laus pláss fyrir nokkra nýja nemendur.
Námið hentar öllum sem hafa áhuga á söngleikjum og sviðslistum og er ætlað nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla sem og í framhaldsskóla, en nemendur þurfa að eiga lögheimili í Reykjanesbæ.
Söngleikjadeild er tveggja ára nám sem felst í vikulegri söngkennslu, hóptímum og píanó-meðleikstímum.
Í hóptímunum er farið í sviðsframkomu og æfð þau samsöngslög sem verið er að vinna með hverju sinni.
Námsgjald fyrir skólaárið er kr. 80,796 sem Reykjanesbær innheimtir í gegn um heimabanka. Skipta má gjaldinu í 4 greiðslur.
Umsóknir eru á vefsíðu Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, www.tonrnb.is undir flipanum „Sækja um nám“.
Smella á „Söngur“ og síðan á „Söngleikjadeild“.

FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Tónlistarskólans
í síma 420-1400 eða í tölvupósti á [email protected]
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-17
og föstudaga frá kl. 9-16.

Kynntu þér tónlistarnám fyrir alla aldurshópa. Heimsæktu okkur í Reykjanesbæ.

27/07/2026

Orkester Norden heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30
Orkester Norden er sinfóníuhljómsveit skipuð ungum framúrskarandi hljóðfæraleikurum frá Norðurlöndunum og Eistrasaltslöndunum. Það er prufuspilað inn og komast færri að en vilja. Í ár eru fjórir Íslendingar í hljómsveitinni, þ.á.m. þær Karen Jóna Steinarsdóttir, þverflautuleikari og fyrrum nemandi við TR og Sólrún Svava Kjartansdóttir, fiðluleikari, sem kenndi hér við skólann 2024-2025.

Það er ókeypis inn á tónleikana. Við hvetjum alla til að mæta og heyra þessa frábæru hljómsveit flytja glæsilega efnisskrá.

26/05/2026

Skólaslit:
Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöll, föstudaginn 29. maí kl.18.00.
Afhending vitnisburðarskjala vetrarins og áfangaprófsskírteina. Hvatningarverðlaun Íslandsbanka verða afhent og tónlistarflutningur.

Nýjar umsóknir:
Nú er heppilegur tími til að sækja um skólavist fyrir skólaárið 2026-2027. Því fyrr sem sótt er um, því meiri líkur eru á að komast að.
Sækja skal um á vef skólans tonrnb.is undir hnappnum „Sækja um nám“.

18/05/2026

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR

Ösp Birgisdóttir sópran, heldur framhaldsprófstónleika sína í
Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 21. maí 2026 kl. 20:00.
Meðleikari á píanó er Helga Bryndís Magnúsdóttir.

Á efnisskrá eru m.a. verk eftir César Franck, Sigvalda Kaldalóns, Andrew Lloyd Webber, Hugo Wolf, Árna Thorsteinsson og John Rutter.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

12/05/2026

Gamanóperan „Gianni Schicchi“ í Stapa.

Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar eru þessa dagana að setja upp gamanóperuna „Gianni Schicchi“ eftir ítalska tónskáldið Giacomo Puccini.
Óperan er þýdd og staðfærð á Suðurnesin af Jóhanni Smára Sævarssyni listrænum stjórnanda Norðuróps og söngkennara við Tónlistarskólann.
Söguþráður óperunnar er í stuttu máli sá, að gamall ríkur karl liggur fyrir dauðanum og gráðugir ættingjarnir eru mættir til hans í von um arf. En karlinn vissi um græðgi þeirra og von um að komast yfir auðæfi hans og hafði því annað í huga. Ættingjarnir áttuðu sig fljótt á því að það yrði ekki svo auðvelt og í örvæntingu sinni leita þeir til Gianni Schicchi, ítalsks manns, og bjóða honum gull og græna skóga ef hann gæti leyst málið. Gianni gerir það, en þó ekki alveg eins og þau vonuðust til að yrði.
Uppfærslan er í Stapa, Hljómahöll, með sviðsmynd, hljómsveit og öðru sem til þarf til að gera góða sýningu. Miðaverð kr. 7900.
Miðasala á tix.is
Starfsfólk og nemendur skólans og eldri borgarar greiða kr. 6900.
Þá miða þarf að sækja á skrifstofu Tónlistarskólans milli kl. 9 og 17.

Sýningar verða sem hér segir:
Föstudagur 15. maí kl. 20 Frumsýning
Laugardagur 16. maí kl.16 2. sýning
Sunnudagur 17. maí kl.16 Lokasýning

Stjórnandi og leikstjóri: Jóhann Smári Sævarsson.
Konsertmeistari: Rozalia Mietus.

05/05/2026

Vortónleikar lúðrasveita Tónlistarskólans kl 18:00 í Stapa í dag 🎶 Allir hjartanlega velkomnir 🙂

29/04/2026

Vortónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða í Stapa, Hljómahöll, þriðjudaginn 5. maí kl.18:00.
Fram koma allar deildir sveitarinnar; A, B og C sveitir.
Stjórnendur og kennarar lúðrasveitarinnar eru Anna Lilja Karlsdóttir, Magnús Már Newman og Ragnheiður Eir Magnúsdóttir.
Efnisskráin verður mjög fjölbreytt og áhugaverð.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

16/04/2026

„Nótan-uppskeruhátíð tónlistarskóla“ stendur fyrir tónleikum á nokkrum stöðum á landinu n.k. laugardag, þann 18. apríl, þar sem fram koma nemendur tónlistarskóla eftir landsvæðum.
Í Salnum í Kópavogi verða tvennir tónleikar fyrir svæðið „Kraginn, sem er höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur, Suðurland og Suðurnes“. Alls munu 10 tónlistarskólar frá þessu svæði taka þátt. Fyrri tónleikarnir verða kl.11:00 og þeir seinni kl.13:00.
Við tökum sjálfsögðu þátt í hátíðinni og teflum fram þremur atriðum á tónleikunum kl.13:00. Sara Cvjetkovic, píanónemandi mun ásamt Mariiu Ishchenko kennaranum sínum, leika fjórhent verkið „Marche Militaire Ópus 51 Nr.1“ eftir Franz Schubert. Strengjakvartett sem þær Gisselle Pinto, Vanessa Godlewska, Helena Ósk Vilhjálmsdóttir og Elin Mia Hardonk skipa, munu flytja lagið „Promise“ eftir Laufeyju Lín Jónsdóttur í glænýrri útsetningu eftir Þórunni Harðardóttur stjórnanda kvartettsins. Þriðja atriðið frá okkur er tríó-atriði úr gamanóperunni „Gianni Schicchi“ eftir ítalska óperutónskáldið Giacomo Puccini. Flytjendur eru þær Birna Rúnarsdóttir, Jelena Raschke og Bryndís Schram Reed, en að auki mun fjórði aðilinn, Kristinn Thor Schram Reed, koma við sögu. Við píaníóið verður Antonía Hevesi.
Aðgangur að tónleikum Nótunnar er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Við hvetjum alla sem hafa tök á, að mæta í Salinn í Kópavogi á laugardaginn. Þetta verða frábærir tónleikar.
Skólinn ásamt Óperufélaginu Norðurópi er að vinna að uppsetningu óperunnar „Gianni Schicchi“ í Stapa, Hljómahöll. Óperan er þýdd og staðfærð á Suðurnesin, sem mun auka á skemmtilegheitin fyrir heimamenn. Frumsýning verður 15. maí n.k.

Address

Hjallavegur 2
Njarðvík
260

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3544201400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistarskóli Reykjanesbæjar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:

Shortcuts

Share