Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum Við hjálpum einstaklingum og fyrirtækjum að efla þekkingu og færni með fjölbreyttu námi, faglegri ráðgjöf og persónulegri þjónustu.

Íslenskukennslan hjá MSS er komin á fullt skrið þetta haustið! 🍂Margir hópar farnir af stað og fleiri að hefjast á næstu...
22/09/2026

Íslenskukennslan hjá MSS er komin á fullt skrið þetta haustið! 🍂
Margir hópar farnir af stað og fleiri að hefjast á næstu vikum. Við bjóðum upp á námskeið nánast allan daginn – frá klukkan 09:00 til 21:00, svo allir ættu að geta fundið tíma sem hentar.

Við erum stolt af okkar fjölbreytta hópi kennara og leiðbeinenda, sem samanstendur af fólki með ólíkan bakgrunn og þjóðerni. Á dögunum tók kennarahópurinn vinnufund þar sem farið var yfir nýjungar í kennslunni, hugmyndum og reynslu deilt og nýir kennarar boðnir velkomnir til starfa. Við hlökkum til vetrarins og að hitta nýja sem eldri nemendur.

Hér má sjá námskeiðin sem eru framundan og skrá sig 👇
www.mss.is/nam/islenska-icelandic-islandzki

MSS er þátttakandi í FareGreen verkefninu og þann 26. september frá 13:30 - 14:30 fer fram málstofa ætluð frumkvöðlum og...
16/09/2026

MSS er þátttakandi í FareGreen verkefninu og þann 26. september frá 13:30 - 14:30 fer fram málstofa ætluð frumkvöðlum og smærri aðilum í ferðaþjónustu. Á málstofunni munu aðilar verkefnisins m.a. kynna heimasíðu verkefnisins og kennslumyndbönd sem þar er að finna öllum að kostnaðarlausu.

Við hvetjum áhugasama til að skrá sig👇
www.faregreen.org/webinar

📢 Our upcoming Fare Green Webinar is just around the corner! Don't miss the chance to explore the open educational resources developed by our project partners, focusing on sustainable tourism, circular economy, and local community development.

🎯 Who is it for? Educators, entrepreneurs, community leaders, and anyone passionate about local sustainability and circular economy principles.

📅 Monday, 28 September 2026
🕞 15:30–16:30 (CEST / Norway)
🕝 14:30–15:30 (WEST / Faroe Islands)
🕜 13:30–14:30 (GMT / Iceland)
🕤 09:30–10:30 (EDT / Ontario, Canada)

🔗 See the full program and register: www.faregreen.org/webinar

Co-funded by NORA (Nordisk Atlantsamarbejde)

Do you want to work with children in a kindergarten but need stronger Icelandic language skills?Teaching is hands-on and...
15/09/2026

Do you want to work with children in a kindergarten but need stronger Icelandic language skills?

Teaching is hands-on and practical, with workshops taking place at MSS and at partner workplaces. Participants also gain valuable experience through vocational training in a kindergarten environment.

For more information contact Nanna Bára - 421-7500 - [email protected]

https://www.mss.is/nam/namskeid-og-namsbrautir/24594

11/09/2026

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) óskar Fjölbrautaskóli Suðurnesja innilega til hamingju með 50 ára afmælið.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur verið samofinn sögu MSS frá upphafi. Skólinn var meðal stofnenda MSS og fyrstu mánuðina var starfsemi miðstöðvarinnar til húsa í skólanum. Frá stofnun MSS hefur FS átt fulltrúa í stjórn miðstöðvarinnar og verið öflugur samstarfsaðili og mikilvægur bakhjarl í uppbyggingu og þróun starfsins.

Við erum afar þakklát fyrir farsælt samstarf í gegnum árin og þann stuðning sem skólinn hefur veitt. Um leið og við óskum Fjölbrautaskóla Suðurnesja til hamingju með þennan merka áfanga, óskum við skólanum alls hins besta um ókomin ár.

Mikilvægt námskeið fyrir sjúkraliða - Á námskeiðinu er fjallað um grunnþætti í bráðahjálp fullorðinna með áherslu á hlut...
09/09/2026

Mikilvægt námskeið fyrir sjúkraliða - Á námskeiðinu er fjallað um grunnþætti í bráðahjálp fullorðinna með áherslu á hlutverk sjúkraliða í bráðum aðstæðum. Lögð er áhersla á örugg og markviss viðbrögð, bæði í tali og verki, þegar líf og heilsa eru í húfi.

Skráning og nánari upplýsingar👇
www.mss.is/nam/namskeid-og-namsbrautir/6904

04/09/2026

New Icelandic courses starting in September 🇮🇸

Icelandic 2 and 3 starting next week

Icelandic 1 starting 15th of September

Check out all our courses 👇
www.mss.is/nam/islenska-icelandic-islandzki

03/09/2026
MSS leitar að kennurum/leiðbeinendum til kennslu að degi til🧐Endilega hafið samband við Nönnu Báru eða Kristínu fyrir fr...
03/09/2026

MSS leitar að kennurum/leiðbeinendum til kennslu að degi til🧐
Endilega hafið samband við Nönnu Báru eða Kristínu fyrir frekari upplýsingar📙

Það er ljúft að heyra fréttir af fyrrum nemendum okkar sem hafa blómstrað í lífinu🧡Kristjana Þórarinsdóttir sálfræðingur...
31/08/2026

Það er ljúft að heyra fréttir af fyrrum nemendum okkar sem hafa blómstrað í lífinu🧡

Kristjana Þórarinsdóttir sálfræðingur var í viðtali á RÚV á dögunum þar sem hún fór yfir líf sitt - æsku, áföll, menntun, líf og starf og hvar hún er stödd í dag.

Kristjana hóf nám sitt hér hjá okkur í MSS, hún lauk Grunnmennt og svo Menntastoðum með glæsibrag. Eftir það hélt hún áfram í námi og er nú með doktorsgráðu í sálfræði👏 Saga Kristjönu er dæmi um að það er aldrei of seint að hefja nýjan kafla og láta drauma sína rætast.

Við hvetjum ykkur til að hlusta á viðtalið við Kristjönu og kynnast þessari áhugaverðu sögu. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild hér fyrir neðan eða lesa greinina👇

💬„Ég fer í menntastoðirnar einstæð móðir með tvö börn og það er gaman að segja frá því að ég held að ef fólk myndi gúggla mig þá finna þau: „Dúxinn sem hélt að hún væri heimsk.“ Ég var búin að telja mér trú um að ég gæti ekki lært, gæti ekki lesið mér til gagns.“💬

Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur og eldabuska, býr með eiginmanni og börnum auk þess að hafa verið með fósturbörn á heimilinu. Sjálf er hún alin upp við erfiðar aðstæður og skort og sér til þess að heimilið sé fullt af mat, samveru og ást.

Address

Krossmóa 4a
Njarðvík
260

Telephone

+3544217500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:

Shortcuts

Share

Category