Háaleitisskóli á Ásbrú - upplýsingasíða

Háaleitisskóli á Ásbrú - upplýsingasíða Háaleitisskóli á Ásbrú er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10. bekk.

Flöggum saman fyrir heimsmarkmiðunumÍ dag, 25. september, tekur Háaleitisskóli þátt í Fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þ...
25/09/2026

Flöggum saman fyrir heimsmarkmiðunum

Í dag, 25. september, tekur Háaleitisskóli þátt í Fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Markmið dagsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum 17 og mikilvægi sjálfbærrar þróunar, jafnréttis og alþjóðlegrar samvinnu. Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er hluti af alþjóðlega framtakinu , þar sem skólar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sameinast um að sýna stuðning við heimsmarkmiðin.

Sem UNESCO-skóli leggur Háaleitisskóli áherslu á að fræða nemendur um sjálfbærni, mannréttindi og ábyrga samfélagsþátttöku. Með þátttöku í deginum viljum við minna á að öll getum við lagt okkar af mörkum til betri framtíðar fyrir fólk og plánetu.

Höfundarheimsókn í 5. OÞNemendur í 5. OÞ fengu nýverið skemmtilega heimsókn frá Kristrúnu Guðmundsdóttur, höfundi bókari...
25/09/2026

Höfundarheimsókn í 5. OÞ

Nemendur í 5. OÞ fengu nýverið skemmtilega heimsókn frá Kristrúnu Guðmundsdóttur, höfundi bókarinnar Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla, sem þau hafa verið að lesa í septembermánuði.

Það vakti mikla ánægju meðal nemenda að fá tækifæri til að hitta höfund bókarinnar sem þau hafa kynnst í lestrinum. Nemendur spurðu Kristrúnu spjörunum úr um bókina, persónurnar og ritstörfin og fengu fróðleg og áhugaverð svör.

Stundin var notaleg og lærdómsrík og nemendur sýndu einstaka kurteisi, áhuga og virka þátttöku. Það var ánægjulegt að sjá hversu vel þau höfðu undirbúið sig og hversu áhugasöm þau voru um lesturinn.

Við þökkum Kristrúnu Guðmundsdóttur, höfundi Appelsínuguls himins yfir Austurbæjarskóla, kærlega fyrir komuna og skemmtilega samveru.

Brúum bilið - samstarf við leikskólana Skógarás og VöllHáaleitisskóli er í mjög uppbyggilegu samstarfi við leikskólana S...
25/09/2026

Brúum bilið - samstarf við leikskólana Skógarás og Völl

Háaleitisskóli er í mjög uppbyggilegu samstarfi við leikskólana Skógarás og Völl og vinnur að þróunarverkefni á þessu skólaári. Markmið samstarfsins er að skapa samfellu í námi og starfi barna og auðvelda þeim flutninginn úr leikskóla yfir í grunnskóla.
Leikskólarnir fengu bækling með gagnlegum orðaforða sem gott er að börnin kynnist áður en þau hefja nám í 1. bekk. Bæklingurinn var unninn af Halldóru Björk, grunnskólakennara við Háaleitisskóla, í samstarfi við aðra kennara skólans. Til að auðvelda fjölskyldum að vinna með orðaforðann heima eru orðin einnig þýdd á ensku, pólsku, spænsku, arabísku og fleiri tungumál.

Unnið verður markvisst með íslenskan orðaforða í leikskólunum og í Háaleitisskóla allt skólaárið. Góður skilningur á hugtökum á móðurmáli barnsins styður við íslenskunám þess og auðveldar því að tileinka sér nýjan orðaforða og ný hugtök. Með þessu samstarfi er lagður traustur grunnur að farsælum skólabyrjun og áframhaldandi námi barnanna.

23/09/2026
Dagur íslenskrar náttúru í Háaleitisskóla 🌿Í tilefni dags íslenskrar náttúru unnu nemendur skólans fjölbreytt og skapand...
22/09/2026

Dagur íslenskrar náttúru í Háaleitisskóla 🌿

Í tilefni dags íslenskrar náttúru unnu nemendur skólans fjölbreytt og skapandi verkefni sem beina athyglinni að náttúru landsins, plöntulífi og mikilvægi þess að vernda umhverfið. Verkefnin sýna vel hvernig náttúran getur orðið uppspretta fróðleiks, sköpunar og samvinnu í skólastarfi.

Nemendur í 9. og 10. bekk gerðu verkið Lambagrasið. Þar skoðuðu þau þessa kunnuglegu íslensku jurt, einkenni hennar og tengsl við landslagið. Afraksturinn er bæði fallegur og fræðandi og endurspeglar vandvirkni nemendanna.

Hrafnkatla og Cecília í 10. bekk unnu jafnframt stóra mynd Felulitir, sem má finna á sal skólans. Myndin vekur athygli á því hvernig dýr og plöntur geta fallið inn í umhverfi sitt, nýtt liti og mynstur sér til verndar.

Við þökkum öllum sem komu að verkefnunum fyrir þetta frábæra framlag. Vonandi hvetja verkin fleiri til að staldra við, skoða og meta íslenska náttúru betur.

DISKÓTEKMiðvikudaginn 23. september5.–7. bekkur: kl. 17:00–18:00
17/09/2026

DISKÓTEK

Miðvikudaginn 23. september
5.–7. bekkur: kl. 17:00–18:00

DISKÓTEKÞriðjudaginn 22. september1.–2. bekkur: kl. 16:00–17:003.–4. bekkur: kl. 17:15–18:15
17/09/2026

DISKÓTEK

Þriðjudaginn 22. september
1.–2. bekkur: kl. 16:00–17:00
3.–4. bekkur: kl. 17:15–18:15

💫 Stundum byrja stórir hlutir á mjög einfaldri spurningu: „Hvað gerist næst?“ Nú getum við loksins sagt það upphátt – OP...
17/09/2026

💫 Stundum byrja stórir hlutir á mjög einfaldri spurningu: „Hvað gerist næst?“ Nú getum við loksins sagt það upphátt – OPEN4SKILLS er komið! 🚀
🙌🏻 Í dag opnum við formlega OPEN4SKILLS námsvettvanginn, þar sem meðal annars er að finna app fyrir náms- og starfsferilsáætlanagerð:
🔗 https://open4skills.eu/
🫵 Á vettvanginum geta ungmenni kynnst sjálfum sér betur, fræðst um vinnumarkað samtímans, kannað mögulegar náms- og starfsleiðir og smám saman breytt hugmyndum sínum í raunhæfa aðgerðaáætlun. Fagfólk sem vinnur með ungmennum finnur þar einnig gagnleg efni og verkfæri sem styðja við innihaldsríkari samtöl um framtíð þeirra, nám og störf.
🫶🏻 Að baki þessum vettvangi liggja margir mánuðir af vinnu, samtöl samstarfsaðila, endurgjöf frá ungmennum, prófanir, endurbætur og óteljandi augnablik þar sem hugsunin var: „Prófum að bæta þetta aðeins meira.“ En fyrir okkur felur þessi opnun í sér miklu meira en bara opnun á nýjum stafrænum vettvangi.
🙏 Það mikilvægasta er að ungmenni hafa nú stað þar sem þau þurfa ekki að vera búin að ákveða alla framtíð sína strax. Þau geta byrjað á því að skoða hver þau eru í dag, hvað skiptir þau máli og hvert næsta skref þeirra gæti verið.
🔵 Að velja sér náms- eða starfsleið er ekki próf þar sem aðeins eitt rétt svar er til. Það má prófa sig áfram, skipta um skoðun, uppgötva eitthvað nýtt og velja aðra leið.
📍 Kíktu inn, skoðaðu þig um og byrjaðu á því sem vekur áhuga þinn – kannski verður ein góð spurning upphafið að algjörlega óvæntu ferðalagi!
❗️ Kynningarviðburður OPEN4SKILLS verkefnisins í Lettlandi verður haldinn 18. september frá kl. 13:00 til 19:00 í Forum Cinemas í Riga.
🧩 Verkefnið er fjármagnað með stuðningi Evrópusambandsins.

Dagur íslenskrar náttúruMiðvikudaginn 16.september er dagur íslenskrar náttúru og hafa nemendur skólans aldeilis notið g...
15/09/2026

Dagur íslenskrar náttúru

Miðvikudaginn 16.september er dagur íslenskrar náttúru og hafa nemendur skólans aldeilis notið góðs af okkar fallega nærumhverfi upp á síkastið. Útiíþróttirnar eru auðvitað á sínum stað, göngutúrar hafa verið vinsælir og svo hafa aðrir skellt sér út í náttúrufræðitímum. Í tilefni dags íslenskrar náttúru í vikunni munum við leggja sérstaka áherslu á útikennslu og að njóta samverunnar utandyra.

5.bekkur tók þátt í skemmtilegu verkefni í náttúrufræði á dögunum þar sem þau rannsökuðu plöntur í nærumhverfi skólans. Haustið er frábær tími til að skoða hvernig árstíðarskiptin hafa áhrif á plönturnar. Bekkurinn fór í smá rannsóknarvinnu á plöntuvefnum áður en út var haldið og var megin tilgangurinn að finna út hvaða plöntur væri líklegast að finna í nærumhverfinu, skoða þær á vísindalegan hátt og læra nöfnin á þeim. Nöfnin Geldingahnappur og Hvítmaðra fannst þeim ansi sérkennileg og vildu nemendur meina að Túnsúra ætti nú bara skipta um nafn og fá að heita Hundasúra „eins og allir kalla það“.

Eftir rannsóknina á plöntuvefnum héldu nemendur út og kepptust við að tína eins margar ólíkar tegundir og hægt var…. og að sjálfsögðu skella sér í berjamó í leiðinni því slík rannsóknarvinna kallar á aukna næringu fyrir kroppinn.

Þegar inn var komið merktu nemendur við þær plöntur sem þeir fundu. Síðasta skrefið í verkefninu var að skoða plönturnar með smásjá.

Eins og gengur og gerist í lifandi lærdómsumhverfi þá lærði bekkurinn ýmislegt af veraldarvefnum í leiðinni með myndbandsáhorfi eins og t.d. hvernig er æskilegt að nota og umgangast smásjár, hvernig maður býr til sultu úr krækiberjum og uppgötvuðu ýmis myndbönd þar sem vísindamenn skoðuðu allskonar hluti í smásjá – mjög spennandi allt saman.

Bókasafnsdagurinn vekur gleði meðal nemenda og starfsfólksÍ tilefni af Bókasafnsdeginum og Degi læsis var sett upp skemm...
09/09/2026

Bókasafnsdagurinn vekur gleði meðal nemenda og starfsfólks

Í tilefni af Bókasafnsdeginum og Degi læsis var sett upp skemmtileg og áhugaverð þraut á göngum skólans undir yfirskriftinni „Hver á hvaða uppáhaldsbók?“

Nemendur og starfsfólk voru hvött til að taka þátt í leiknum og reyna að para saman uppáhaldsbækur starfsfólks við rétta eigendur. Á veggnum má sjá fjölbreytt úrval bóka, allt frá sígildum barnabókum til spennandi ævintýrasagna, sem veitir skemmtilega innsýn í lestraráhuga starfsfólks skólans.

Verkefnið er frábær leið til að vekja áhuga á lestri, hvetja nemendur til að heimsækja bókasafnið og skapa um leið skemmtilegar samræður um bækur og bókmenntir.

Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir þátttökuna og hlökkum til að sjá hvort þátttakendum tekst að giska rétt á hver á hvaða uppáhaldsbók!

📚 Lestrargleðin lifir góðu lífi í skólanum okkar!

Address

Lindarbraut 624
Njarðvík
262

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Háaleitisskóli á Ásbrú - upplýsingasíða posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Háaleitisskóli á Ásbrú - upplýsingasíða:

Share

Category