Stríðsárin á Íslandi

Stríðsárin á Íslandi Ýmis fróðleikur um hernámsárin á Íslandi og myndir frá stríðsárunum úr safni mínu. www.fbi.is

27/09/2026

Í framhaldi af tundurduflabanananum þá kemur mynd um framleiðslu á tundurduflum, skyldi eitthvað af þessum hafa rekið á Íslands strendur?

26/09/2026

Stórmerkilegt myndskeið með Haraldi Guðjónssyni tundurduflabana.

07/07/2026

Litmynd frá afhendingu Reykjavíkurflugvallar til Íslendinga,

Nú 10 maí eru 86 ár liðin frá að 746, mest breskir landgönguliðar stigu á land aðfaranótt 10.maí og hertóku Reykjavík, þ...
10/05/2026

Nú 10 maí eru 86 ár liðin frá að 746, mest breskir landgönguliðar stigu á land aðfaranótt 10.maí og hertóku Reykjavík, það er gaman að skoða forsíður blaðanna frá 11. maí 1940. Þetta er upphaf mestu breytinga tíma í íslenskri sögu þar sem við förum frá því að vera eitt fátækasta land Evrópu í að vera eitt það efnaðasta eftir stríðið. Svo var uppbygging hersins mikil og efni, tæki og verkkunnátta sem urðu eftir í landinu eftir stríð gífurleg lyftistöng fyrir þjóðfélagið, Þar má nefna flugvellina sem herinn gerði og þá þeir stærstu í Reykjavík og í Keflavík. Atvinnuleysi hafði verið mikið á árunum á undan en hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar herinn kom og fékk fólk þá meira fé milli handanna en áður hafði tíðkast. Það er merkilegt að eftir 80 ár frá stríðslokum er ekki neitt safn um stríðsárin á Íslandi á höfuðborgarsvæðinu sem gerir þessum tímum góð skil því áhugi á þessu tímabili í Íslandssögunni er mikill, safnið er til en vantar húsnæði.
Þann 17. maí komu svo 4000 breskir landhermenn til að leysa af hólmi landgönguliða breska flotans frá 49th (West Riding) Infantry Division.

Síðari heimsstyrjöldin hófst í Evrópu 1. september 1939 þegar Þjóðverjar réðst inn í Poland. Þá lýstu Bretland og Frakkl...
08/05/2026

Síðari heimsstyrjöldin hófst í Evrópu 1. september 1939 þegar Þjóðverjar réðst inn í Poland. Þá lýstu Bretland og Frakkland yfir stríði á hendur Þýskalandi.

Stríðinu í Evrópu lauk 8. maí 1945 þegar Þýskaland gafst upp. Sá dagur kallast Victory in Europe Day eða VE-dagurinn.

Þegar leið á nóttina urðu þó óeirðir í miðbænum. Slagsmál brutust út og rúður í verslunum brotnuðu. Einnig urðu skemmdir á verslunum og mikið um rúðubrot, lögreglan átti erfitt með að halda reglu á mannfjöldanum.

Síðari heimsstyrjöldinni lauk svo alveg 2. september 1945 þegar Japan gafst upp eftir kjarnorkuárásir á Hiroshima og Nagasaki.

Viðurkenning á okkar starfi, þökkum Mosfellsbæ fyrir  styrkinn.
30/04/2026

Viðurkenning á okkar starfi, þökkum Mosfellsbæ fyrir styrkinn.

Hér á síðunni okkar eru myndir frá þessum tímahttps://fbi.is/nordmenn-a-islandi
25/04/2026

Hér á síðunni okkar eru myndir frá þessum tíma

https://fbi.is/nordmenn-a-islandi

💡Vissir þú að norski flugherinn var stofnaður á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni sem hluti af breska konunglega flughernum?

🇳🇴Fyrsta norska sveitin, 330-sveitin, var stofnuð í Reykjavík fyrir 85 árum í dag, þann 25. apríl 1941.

Í stríðinu var sveitin notuð til kafbátaleitar og til fylgdar við skipalestir og gegndi mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn þýskum kafbátum. 21 Norðmaður lét lífið í þessari baráttu og er grafinn á Íslandi. 8. maí nk. munum við minnast frelsunar Noregs og þeirra sem féllu hér á Íslandi.

🚁Í dag er helsta hlutverk 330-sveitarinnar leit og björgun, en hún styður einnig önnur verkefni, svo sem sjúkraflutninga, aðstoð við lögreglu og mannúðaraðgerðir. Hæfni sveitarinnar til að starfa við krefjandi veðurskilyrði og í erfiðu landslagi gerir hana að lykilþætti í viðbragðskerfi Noregs.

//

💡Visste du at det Norske Luftforsvaret ble opprettet på Island under andre verdenskrig som del av UK Royal Air Force?

🇳🇴Den første norske skvadronen, 330-skvadron, ble opprettet i Reykjavík for 85 år siden i dag: den 25. April 1941.

Under krigen ble skvadronen brukt i anti-ubåt patruljer og til eskortering av konvoier, og spilte en viktig rolle i kampen mot tyske ubåter. 21 nordmenn ga sitt liv i denne innsatsen, og er gravlagt på Island. 8. mai i år skal vi minnes frigjøringen av Norge og de som falt i frihetens tjeneste her på Island.

🚁I dag er 330-skvadrons hovedoppdrag søk og redning, men den støtter også andre typer oppdrag som medisinsk evakuering, støtte til politiet og humanitære oppdrag. Skvadronens evne til å operere under krevende værfold og terreng gjør den til en kritisk del av Norges beredskapssystem.

📸: Fabian Helmersen / Forsvaret

Forsvaret 330 Skvadron

Stríðsárin á Íslandi óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Hér er eitt af jólakortum breska hersins sem var...
23/12/2025

Stríðsárin á Íslandi óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Hér er eitt af jólakortum breska hersins sem var gefið út fyrir jólin 1940. Á því er ísbjörninn (Polar Bear)merki 49th í miðjunni ásamt Royal Navy (breski sjóherinn), Hvít rós (Yorkshire- / “White Rose of York”) þekkt sem merki 49th (West Riding) Infantry Division, sem var oft kölluð “Polar Bears”. Hlynslaufið tákn kanadíska hersins (Canadian forces) og merki breska flughersins Royal Air Force (RAF)

Address

Mosfellsbær
270

Telephone

+3548225344

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stríðsárin á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share