Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, High School, Bjarkarholti 35, Mosfellsbær.
(1)

FMOS kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og verða þær áherslur samfléttaðar við skólastarfið. Þar er átt jafnt við auðlindir í náttúrunni sem og mannauð með áherslu á lýðheilsu og menningarlegar auðlindir.

30/09/2026

Ætlar þú að vera með??

30/09/2026

Hreyfivika í FMOS!

Nemendur sem búa fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu vegna náms geta átt rétt á jöfnunarstyrk frá Menntasjóði námsmanna...
11/09/2026

Nemendur sem búa fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu vegna náms geta átt rétt á jöfnunarstyrk frá Menntasjóði námsmanna. Umsóknarfrestur vegna haustannar er til 15. október.

Nemendur sem þurfa að búa fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu vegna náms geta átt rétt á jöfnunarstyrk frá Menntasjóði námsmanna. Umsóknarfrestur vegna ha

03/09/2026

Við erum öll í sama liði!
Komdu í treyju í skólann. Það skiptir ekki máli með hverjum þú heldur. Komdu eins og þú vilt vera. Við stöndum öll með börnum með krabbamein! Komdu í treyju föstudaginn 4. sept.

Við vottum fjölskyldum og vinum þeirra sem fórust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi innilega samúð.  Við hvetjum nemendur í ...
02/09/2026

Við vottum fjölskyldum og vinum þeirra sem fórust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi innilega samúð. Við hvetjum nemendur í FMOS sem eiga um sárt að binda vegna þessa hörmulega atburðar, eða upplifa vanlíðan, til að leita til Aðalsteins námsráðgjafa eða Örnu hjúkrunarfræðings.

Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju miðvikudaginn 2. september kl. 17:30 vegna fráfalls Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur.

Yfir eitthundrað nýnemar hefja nám við FMOS í haust. Dagurinn í dag var helgaður þeim. Hefðbundinni kennslu lauk kl. 10:...
01/09/2026

Yfir eitthundrað nýnemar hefja nám við FMOS í haust. Dagurinn í dag var helgaður þeim. Hefðbundinni kennslu lauk kl. 10:30 og við tóku fjölbreytt verkefni, þar sem nemendum var skipt í hópa. Síðan var gengið milli stöðva þar sem leysa þurfti af hendi fjölbreyttar þrautir. Markmiðið var númer eitt að kynnast og hafa gaman. Ekki ber á öðru en að það hafi tekist vel.

01/09/2026

Yfir hundrað nýnemar eru að hefja nám við FMOS þetta haustið. Þeir voru boðnir velkomnir í dag með leikjum og þrautum.

Fulltrúar úr Nemendafélagi Fmos buðu nýnema velkomna á sólríkum föstudegi. Rúnar og Elenora tóku á járnunum og buðu upp ...
28/08/2026

Fulltrúar úr Nemendafélagi Fmos buðu nýnema velkomna á sólríkum föstudegi. Rúnar og Elenora tóku á járnunum og buðu upp á vöfflur með rjóma, sem runnu ljúflega niður.

Annir – spannir, nýtt skipulag Nú hefur skipulagi skólaársins í FMOS verið breytt. Skólaárið skiptist áfram í tvær annir...
21/08/2026

Annir – spannir, nýtt skipulag
Nú hefur skipulagi skólaársins í FMOS verið breytt. Skólaárið skiptist áfram í tvær annir, haustönn og vorönn, en hvorri önn er nú skipt í tvær 8 vikna spannir. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára.

Á hverri spönn taka nemendur að jafnaði 15-20 einingar, eða 3-4 áfanga, eftir námsmarkmiðum hvers og eins. Fullt nám er 30 einingar á önn en þeir nemendur sem stefna að því að ljúka stúdentsprófi á þremur árum þurfa að ljúka að jafnaði um 35 einingum á önn.

Með þessu fyrirkomulagi taka nemendur færri áfanga í einu og geta þannig einbeitt sér betur að náminu á hverju tímabili. Fyrirkomulagið fellur vel að áherslum FMOS á leiðsagnarnám og fjölbreyttar kennslu- og námsmatsaðferðir sem miða að því að mæta ólíkum þörfum nemenda.

Í dag er fyrsti skóladagur haustannar 2026 og það er alltaf jafn gaman að sjá skólann fyllast aftur af lífi eftir sumarf...
19/08/2026

Í dag er fyrsti skóladagur haustannar 2026 og það er alltaf jafn gaman að sjá skólann fyllast aftur af lífi eftir sumarfrí.

Í haust eru rúmlega 100 nýnemar að hefja skólagöngu í FMOS. Þar af eru 75 nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk síðastliðið vor og eru nú að stíga sín fyrstu skref í framhaldsskóla.

Við bjóðum nýja nemendur hjartanlega velkomna í FMOS og hlökkum til að hefja önnina og vinna með þessum flotta hópi í vetur.

Við hvetjum alla nemendur til að hefja skólaárið af krafti, mæta vel í tíma og sinna náminu frá fyrsta degi. Góð mæting, skipulag og samfelld vinna eru lykillinn að góðum árangri og ánægjulegri skólagöngu.

Við óskum öllum nemendum og starfsfólki góðs gengis á önninni og hlökkum til samstarfsins framundan.

Address

Bjarkarholti 35
Mosfellsbær
270

Telephone

+3544128500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ:

Shortcuts

Share

Category