Varmárskóli

Varmárskóli Varmárskóli er grunnskóli með nemendur frá 1. bekk til 6. bekk. Nemendur eru um 431. Skólinn

Varmárskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur frá 1. - 10.

Nemendur eru um 430. Við Varmárskóla starfar skólastjóri og þrír deildarstjórar. Varmárskóli er að móta sér stefnu með áherslu á útikennslu, heilsueflingu og sjálfbæra þróun. Skólinn er staðsettur í ómetanlegu umhverfi þar sem leirurnar, Varmáin, fellin og móarnir fléttast við íþróttaparadís Varmársvæðisins. Varmárskóli, www.varmarskoli.is
Skólastjóri. Jóna Benediktsdóttir. Varmárskóli var stofnaður árið 1961 í húsnæði Brúarlands sem áður hýsti Brúarlandsskóla og var hann starfræktur sem barnaskóli til lokar síðustu aldar er ákveðið
var að sameina Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar og Varmárskóla undir nafninu Varmárskóli. Nemendafjöldi barnaskólans óx í takt við stækkandi bæjarfélag og sem dæmi má nefna að árið 1978 voru í Varmárskóla um 500 nemendur en 1999 voru þeir orðnir 1100, enda eini grunnskóli bæjarins. Varmárskóla var skipt aftur upp í tvo skóla 2021 og eldri deildin fékk nafnið Kvíslarskóli en yngri deild heldur nafni Varmárskóla.
Áherslur í starfi Varmárskóla, auk hefðbundins skólastarfs, er útikennsla og umhverfisvernd.
Í Varmárskóla fer fram metnaðarfullt og árangursríkt skólastarf. Námsárangur nemenda virðist með ágætum og fjölbreytt þróunar‐ og umbótastarf á sér stað. Jákvætt andrúmsloft er í skólanum og góð samskipti milli nemenda og kennara.

Í þessari viku segjum við frá ferð 6.bekkjar í Reykholt, Hlégarðshlaupinu og fyrsta fundi nemendaráðs þetta skólaárið.Be...
25/09/2026

Í þessari viku segjum við frá ferð 6.bekkjar í Reykholt, Hlégarðshlaupinu og fyrsta fundi nemendaráðs þetta skólaárið.

Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu í Reykholti tók á móti 6.bekk á mánudaginn þar sem nemendur fengu fræðslu og leiðsögn um staðinn. Fræðslan var meðal annars um tengsl Snorra Sturlusonar við Marvel myndir og Lord of the Rings. Á eftir var svo farið í sund í Borgarnesi. Þessi ferð var í tengslum við vinnu nemenda um Sturlungaöldina með áherslu á þátt Snorra.

Í dag var svo hið stórskemmtilega Hlégarðshlaup þar sem nemendur hlaupa eins marga hringi og þeir geta, á tilteknum tíma, um Hlégarðstúnið. Þetta er alltaf mjög skemmtilegt og margir vinna sigra á sjálfum sér en ekki síst er þetta félagslegur viðburður sem styrkir samkennd og tengsl milli nemenda.

Í dag var svo einnig fyrsti fundur nemendaráðs á þessu skólaári. Af hálfu skólans lágu fyrir þau verkefni að velja mat fyrir 30.október og hvaða greinar yrði unnið með í Barnasáttmálanum þetta skólaár. Hvað matseðlinn varðar fengu pylsur í brauði flest atkvæði en val á greinum í Barnasáttmálanum var aðeins flóknara. Sáttmálinn samanstendur af 42 aðalgreinum og fjórar þeirra tókum við fyrir á síðasta ári. Endanlegt val nemendaráðs er að taka greinar 23 - Fötluð börn, 28 - Aðgangur að menntun, 33 - Vernd gegn skaðlegum vímuefnum, 34 - vernd gegn kynferðisofbeldi og 38 - vernd í stríði fyrir að þessu sinni. Þessi vinna hefst í nóvember og lýkur með opnu húsi þann 20.nóvember á degi mannréttinda barna. Undir liðnum ,,önnur mál” komu nemendur svo með margar tillögur sem búið er að flokka og koma í framkvæmd eftir því sem hægt er.

Hafið það gott um helgina
Starfsfólkið í Varmárskóla

Það er alltaf líf og fjör í Varmárskóla og engir tveir dagar eins. Í þessari viku fór 4.bekkur á skólatónleika Sinfónínu...
18/09/2026

Það er alltaf líf og fjör í Varmárskóla og engir tveir dagar eins. Í þessari viku fór 4.bekkur á skólatónleika Sinfónínuhljómsveitar Íslands, þar sem nemendur fengu létta og skemmtilega kynningu á klassískum meistaraverkum. 3.bekkur fór í fjöruferð, lærði um lífverur og æfði hugrekki og 5.bekkur fór í heimsókn á Gljúfrastein og fékk þar fræðslu um Halldór Laxnes, uppvöxt hans og ævistarf.

Lestrarspretturinn tvær síðustu vikur gekk vel og allir voru duglegir að lesa heima. Við leggjum áfram áherslu á mikilvægi heimalesturs og setjum upplýsingar um bekki sem ná 100% skráningu á nemendaskjáinn í anddyrinu daglega. Það hefur byggt upp metnað og hvatningu og vonandi skilar hún sér í meiri lestri.

Í daglega starfinu eru umsjónarkennarar núna að leggja lokahönd á bekkjarsáttmála með nemendum. Í þeirri vinnu skilgreinum við þau gildi sem hópurinn í sameiningu telur mikilvægt að halda í heiðri og eru líkleg til að hjálpa okkur við að byggja upp gott samfélag. Í janúar verða sáttmálarnir svo endurskoðaðir og gerðar áætlanir um hverju þurfi að breyta til að láta þá virka.

Í næstu viku eru bara fjórir skóladagar nemenda. Miðvikudaginn 23.september er starfsdagur og þá verðum við meðal annars með fyrirlestur frá Shirley Clarke fyrir alla starfsmenn. Clarke er sérfræðingur í innleiðingu leiðsagnarnáms og hvernig maður byggir upp hvetjandi námsumhverfi. Þetta er fyrsti fyrirlesturinn af fjórum frá henni sem við fáum til okkar í vetur og er hluti af áætlun skólans um innleiðingu leiðsagnarnámsins.

Við minnum ykkur svo á að haustið er farið að láta á sér kræla og mikilvægt er að nemendur séu alltaf klæddir eftir veðri.
Hafið það gott um helgina
Starfsfólkið í Varmárskóla

15/09/2026

Ágætu foreldrar
Nú spáir hellirigningu á morgun. Við minnum ykkur á að senda krakkana klædda miðað við það.

10.septemberVið áttum allt að því fullkominn fjallgöngudag á þriðjudaginn. Veðrið lék við okkur og allir voru í sólskins...
10/09/2026

10.september

Við áttum allt að því fullkominn fjallgöngudag á þriðjudaginn. Veðrið lék við okkur og allir voru í sólskinsskapi. Börnin komu með nesti að heiman og fyrir suma var hápunktur dagsins að fá að vera með nesti sem þau ákváðu sjálf og svo voru starfsmennirnir okkar með lifrarpylsu og kex til viðbótar. Þetta tókst allt mjög vel og verður vonandi eitt af því sem fer jákvætt í reynslubanka nemenda.

Það er líka gaman að segja frá því að margir bekkir hafa staðið sig mjög vel í heimalestri þessa viku og einn bekkur hefur fengið 100% skráningar í Læsi þrjá daga í röð. Við erum mjög ánægð með þetta því við vitum að æfingin skapar meistarann. Fleiri bekkir eru nú að keppast við að ná 100% þátttöku í heimalestrinum og við hvetjum foreldra auðvitað til að sinna þessu og muna eftir að skrá. Þetta hefur farið vel með lestrarsprettinum okkar. Nemendur fá ljósaperu fyrir hverjar 30 mínútur sem þeir lesa. Í dag voru perurnar á göngum skólans orðnar 1404. Þær verða taldar aftur á mánudaginn og vonandi verða þær þá orðnar 1500.
Hafið það gott um helgina
Starfsfólkið í Varmárskóla

Allt fólkið okkar í Varmárskóla átti dásamlegan dag á fjöllum í dag. Nánari upplýsingar koma í vikufréttum á föstudaginn...
08/09/2026

Allt fólkið okkar í Varmárskóla átti dásamlegan dag á fjöllum í dag. Nánari upplýsingar koma í vikufréttum á föstudaginn.

Þá er fyrsta heila skólavikan liðin. Nemendur hafa fengist við fjölbreytt verkefni eins og alltaf.  Miðstigsmixið er að ...
04/09/2026

Þá er fyrsta heila skólavikan liðin. Nemendur hafa fengist við fjölbreytt verkefni eins og alltaf. Miðstigsmixið er að fara af stað og nemendur 5.bekkjar eru mjög spenntir fyrir því. Eins og í fyrra var vinsælast að fá að fara í aðstoð á leikskóla og næst vinsælastur var baksturinn. Við munum reyna að sýna ykkur myndir frá öllum hópum áður en veturinn er liðinn.

Útikennsla er virk í skólanum okkar, og ekki bara í greininni sem er skilgreind sem kennsla sem er alltaf úti. Kennaranir okkar eru útsjónarsamir við að nýta góða veðrið til að skapa meiri fjölbreytni í daglega starfinu. Í dag fóru nemendur í tæknimennt út í skóg að æfa sig að tálga og þriðji bekkur fór í ævintýraferð í Grasagarðinn í Laugardal. Á þriðjudaginn í næstu viku stefnum við svo á árlegu fellagöngurnar.

Lestrarátakið gengur vel og víða eru komnar fallegar ,,ljósaseríur” á veggina. Við hvetjum alla til að vera duglegir að lesa um helgina, hverjar 30 mínútur gefa eina ljósaperu.

Tvennt mikilvægt að lokum. Lús hefur fundist í börnum í að minnsta kosti tveimur árgöngum. Við náum mun betri árangri í baráttunni við hana ef allir kemba í einu. Því viljum við eindregið mælast til þess að allir kembi börn sín um helgina og meðhöndli með lúsasjampói ef eitthvað finnst.

Svo er það aðkoman að skólanum. Það er mjög mikilvægt að foreldrar sem eru að skutla börnum í skólann sleppi þeim út á stæðinu við Varmárlaug en noti ekki starfsmannastæðið til þess. Þar er ekki hringakstur og það skapar mikla hættu þegar verið er bakka til snúa við innan um fullt af litlum börnum sem fylgjast takmarkað með umhverfi sínu.

Hafið það gott um helgina
Starfsfólkið í Varmárskóla

28/08/2026

28.ágúst 2026

Ágætu vinir Varmárskóla.

Skólastarfið hófst með hefðbundnum hætti á þriðjudaginn og á miðvikudaginn var svo komin full dagskrá hjá nemendum. Það eru margir þættir sem þarf að taka tillit til við skipulag í svona stórum skóla og því alveg eðlilegt að það séu einhverjir hnökrar sem sníða þarf af á fyrstu dögum, en núna er allt komið á ,,blússandi swing” hjá okkur eins og sjá má á myndbandinu af fyrsta bekk í tæknimennt, alvöru vinna strax í fyrstu viku.

Fyrsti lestrarsprettur skólaársins hefst strax í upphafi skólaárs, það er mikilvægt að koma öllum vel af stað eftir sumarið. Að þessu sinni teljum við lesnar mínútur dagana 31.ágúst - 13.september. Þetta er samvinnuverkefni og að þessu sinni ætlum við að safna ljósaperum. Fyrir lestur í 30 mínútur vinnur nemandi sér inn ljósaperu sem fer upp á vegg hjá árgangi eða bekk eftir því sem hver árgangur ákveður. Umsjónarkennarar senda nánar um fyrirkomulagið.

Við minnum á að hádegisverður nemenda er foreldrum að kostnaðarlausu. Matseðillinn er á heimasíðunni okkar og við leggjum áherslu á að vera með fjölbreyttan og hollan mat. Nemendaráð hefur einnig atkvæðisrétt um eina máltíð í mánuði, en þó með þeim skilyrðum að það er regla að vera með fisk á mánudögum og fimmtudögum. Börnin eru skráð í mat gegnum Völu, það er nauðsynlegt svo við höfum yfirlit yfir hversu mikið á að elda og þar á líka að setja inn vottorð ef nemendur eru með ofnæmi. Ef foreldrar kjósa að senda börn sín með nesti frekar en að þau borði í mötuneytinu er það að sjálfsögðu í lagi, en við getum ekki boðið upp á að nesti að heiman sé hitað, samlokur grillaðar eða slíkt.

Það er alltaf mesta spennan að fylgjast með nemendum 1.bekkjar í upphafi hvers skólaárs. Það er svo margt sem þarf að læra, fara í röð, verklag í matsal, fara í íþróttir og sund, fyrir utan allt hið hefðbundna nám sem fólk gerir ráð fyrir. Á meðfylgjandi myndbandi voru krakkarnir að læra Varmárskólalagið sem allir krakkar hjá okkur læra.

Hafið það gott um helgina
Starfsfólkið í Varmárskóla.

20/08/2026

Kæru foreldrar

Skólasetning verður þriðjudaginn 25.ágúst. Allir mæta á sal.
Tímasetningar eru sem hér segir:
2. bekkur kl. 9:00
3. bekkur kl. 9:30
4.bekkur kl.10:00
5.bekkur kl. 10:30
6.bekkur kl. 11:00
Nemendur fyrsta bekkjar koma í viðtal með foreldrum sínum þennan sama dag. Skráningar í það eru á mentor.

Stafræn skóladagatöl fyrir leik- og grunnskóla Mosfellsbæjar eru nú aðgengileg á heimasíðu Mosfellsbæjar.
12/08/2026

Stafræn skóladagatöl fyrir leik- og grunnskóla Mosfellsbæjar eru nú aðgengileg á heimasíðu Mosfellsbæjar.

Þó að það sé sumarfrí heldur lífið áfram og við vorum að fá niðurstöðurnar okkar úr Íslensku æskulýðsrannsókninni sem er...
27/07/2026

Þó að það sé sumarfrí heldur lífið áfram og við vorum að fá niðurstöðurnar okkar úr Íslensku æskulýðsrannsókninni sem er könnun sem nemendur tóku í vor. Svona mælingar eru ekki staðreyndir en þær gefa ákveðnar vísbendingar um hvernig nemendur meta stöðuna þegar þeir svara. Við erum stolt og þakklát og megum til með að deila þessu með ykkur.

Address

Skólabraut
Mosfellsbær
IS-270

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Varmárskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Varmárskóli:

Shortcuts

Share