Kvíslarskóli

Kvíslarskóli

Share

Þessi síða er upplýsingasíða fyrir Kvíslarskóla.

Photos from Kvíslarskóli's post 08/05/2026

Þann 6. maí keppti Kvíslarskóli í Skólahreysti. Eyþór Örn stuðningsfulltrúi hjá okkur og fimleikakappi þjálfaði hópinn með miklum glæsibrag. Krakkarnir stóðu sig ótrúlega vel og við erum svo stolt af þeim öllum.

Nemendur hittust í skólanum fyrir keppnina og þar myndaðist mikil og góð stemmning, svo röltu allir saman á okkar heimavöll í miklu stuði.

Til hamingju Díana, Fannar, Emma Björk, Anton, Emma Guðrún, Þorbjörn og Eyþór, þið voruð skólanum til mikils sóma! Áfram Kvísló!

09/04/2026

Í tilefni 117 ára afmælis Aftureldingar þann 11. apríl nk. mættu nemendur og starfsfólk Kvíslarskóla í rauðu í dag. Afturelding skipar gríðarlega stóran og mikilvægan sess í daglegu lífi nemenda okkar og við erum stolt að klæðast rauðu til að styðja félagið okkar ❣️
♥️ Áfram UMFA ♥️

05/04/2026

Gleðilega páska frá okkur öllum í Kvíslarskóla. Páska/árshátíðarblað Kvíslótíðinda er komið út ☺️🐣 Njótið!

Kvíslótíðindi_2tbl_2026

Vegagerðin 26/03/2026

Tilkynning frá Mosfellsbæ. Fréttir af færð – english below

Samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofunnar eru spár að ganga eftir og má gera ráð fyrir að veðrið gangi niður fljótlega eftir hádegið á höfuðborgarsvæðinu.

Röskun verður á skólastarfi líkt og komið hefur fram. Leik- og grunnskólar eru opnir en með lágmarksopnun og með fáu starfsfólki og einungis gert ráð fyrir þeim sem nauðsynlega þurfa að mæta með börn sín í grunn- og leikskóla.

Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun gengur yfir. Minnt er á að lokað er fyrir umferð á Hellisheiði og á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Reykjanesbraut er á óvissustigi til hádegis og gæti lokast með stuttum fyrirvara.

Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima á veðrið gengur yfir, en appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til kl. 13.


Press Release
According to the latest information from the Icelandic Met Office, forecasts are being confirmed and weather conditions are expected to deteriorate shortly after noon in the Capital Region. Disruptions to preschool and primary school operations will occur as previously announced. Preschools and primary schools are open but operating with minimal staffing, and attendance is only expected from those who absolutely need to bring their children in. Regular preschool, primary school, and after-school activities will resume once the weather warning has passed.

It is noted that the road over Hellisheiði and the road to Vesturland via Kjalarnes are closed to traffic. Reykjanesbraut is on an uncertainty level until noon and may close with short notice.

We want to reiterate that people should stay home while the weather passes. An orange weather warning is in effect until 1:00 PM.

https://www.vedur.is/vidvaranir

https://www.vegagerdin.is/

Vegagerðin Vegagerðin vinnur að öruggum og sjálfbærum samgöngum á landsvísu. Hér finnur þú upplýsingar um verkefni, framkvæmdir og samgöngukerfið.

Kvíslótíðindi_1tbl_2026 17/03/2026

Fyrsta tölublað ársins af Kvíslótíðindum er komið út! Allskonar skemmtilegt hefur verið í gangi hjá okkur í Kvíslarskóla. Njótið!

Kvíslótíðindi_1tbl_2026

21/02/2026

Yfir 200 nemendur Kvíslarskóla mættu ásamt kennurum í Bláfjöll á fimmtudaginn. Við fengum frábært veður og skemmum okkur konunglega!

Kvíslótíðindi_4tbl_2025 20/12/2025

Jólablað Kvíslótíðinda er komið út! Endilega kíkið á það og sjáið hvað við höfum verið að bralla undanfarið.

Við vonum að þið hafið það gott og njótið frísins með fjölskyldu og vinum.

Gleðilega hátíð 🎄

Kvíslótíðindi_4tbl_2025

15/11/2025

Hjá 10. bekk snýst tungumála Flipp floppið um að gera stuttmyndir á dönsku og ensku, gjarnan með smá hryllingsívafi þar sem þessir Flipp flopp dagar eru alltaf í kringum Hrekkjavökuna. Hver og einn 10. bekkur gerði eina stuttmynd saman þar sem allur bekkurinn tók þátt í að skrifa handrit, leika í myndinni, klippa hana saman, útbúa auglýsingaplaköt fyrir myndina og boðskort í Hrekkjavökupartý. Afraksturinn var svo sýndur á sal í vikunni við mikinn fögnuð (og smá hrylling) samnemenda. Góða helgi!

03/11/2025

Það var mikið fjör hjá okkur á Hrekkjavökunni. Nemendafélagið sá um skemmtun á sal þar sem nemendur og kennarar tókust á í allskyns leikjum. Á neðri hæðinni var mikil stemmning þar sem nemendur sungu og dönsuðu 👯‍♀️👯‍♂️
Starfsfólk skólans mætti svo í sérútbúnum six seeeven bolum í tilefni dagsins

Want your school to be the top-listed School/college in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Skólabraut
Mosfellsbær
270