25/09/2026
Kveðjuorð til Rannveigar Pálsdóttur
Það eru sannarlega tímamót í sögu Menntaskólans að Laugarvatni við fráfall Rannveigar Pálsdóttur. Elsku Bubba. Það var sannur heiður að kynnast þér og þeim kærleik sem af þér geislaði. Þær eru ófáar sögurnar sem ég hef fengið að hlýða á þar sem rakin er góðmennska þín og umhyggja fyrir þeim sem störfuðu eða lögðu stund á nám við skólann. Frægðarsögur af þér og Kristni hafði ég heyrt sem kennari við skólann og svo var það þegar ég tók við sem skólameistari að mér gafst raunverulegt tækifæri til að kynnast þér. Með okkur tókust miklir kærleikar enda sameinaði okkur ást á Menntaskólanum að Laugarvatni.
Það er engum blöðum um það að fletta að Menntaskólinn að Laugarvatni og allir þeir nemendur hans sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja á Laugarvatni undir þinni verndarhendi munu um alla tíð búa að þeirri hlýju og vinsemd sem þú sýndir. Með þessari stuttu kveðju minni vil ég einnig senda öllum afkomendum þínum mínar innilegustu samúðarkveðjur; frá mér og okkur öllum hér í ML.
Það komast líklega fáir í skóna þína elsku Bubba en við sem eftir erum höfum í þér góða fyrirmynd og reynum sem mest að tileinka okkur þína góðu kosti. Hafðu Guðs blessun fyrir alla þá umhyggju sem þú sýndir Menntaskólanum að Laugarvatni og megi hann lengi lifa. Megi almættið taka þér opnum örmum og hjartans þakkir fyrir samstarf undanfarinna ára.
Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Útför Rannveigar fer fram í dag, föstudaginn 25. september kl. 14, frá Skálholtskirkju og erfidrykkja í Menntaskólanum að Laugarvatni