04/06/2021
Skólaslit 3. júní 2021.
Að þessu sinni voru skólaslit í tvennu lagi. Fyrir hádegi voru 1-7 bekkur mætt að sækja sinn vitnisburð eftir skólaárið. Þau áttu stund með sínum umsjónarkennurum og síðan fórum við öll á sal þar sem við sungum saman og sýndum nokkur atriði á skjánum frá því í vetur.
Eftir hádegi var úrkskrift 10 bekkjar og afhending vitnisburða fyrir 8-9 bekk. Þar voru foreldrar boðnir velkomnir og áttum við einkar ánægjulega stund saman. Kveðjustundin er ljúfsár, því útskriftarnemar eru sannarlega tilbúin að taka sig á flug á næsta skólastig eftir góðan árangur hér við Bláskógaskóla á Laugarvatni. Við erum þakklát góðum stundum og óskum þeim innilega til hamingju. Foreldrum þökkum við einkar gott samstarf.
Elfa Birkisdóttir skólastjóri sagði nokkur orð um liðið ár og lagði meðal annars áherslu á næstu skref:
,,Stóra verkefnið sem er framundan hjá okkur öllum, þ.e að fóta okkur á ný. Það getur verið áskorun fyrir ansi marga en engu að síður mikilvægt að finna taktinn á ný. Eiga góðar innihaldsríkar stundir í samskiptum við aðra. Ég hugsa til verkefnisns okkar frá því í Skjálfta þar sem mátti greina í sköpunarverkinu, ákall til samskipta. Raunverulegra samskipta, þar sem við horfumst í augu og finnum í sameiningu leiðir til að upplifa jákvæð samskipti. Skynfærin okkar eru farin að þrá að hlusta á raddir, horfa í augun og verða þess áskynja að við erum ekki ein heldur eru hér allt í kringum okkur manneskjur sem eiga það sameiginlegt með okkur að vilja og óska sér kannski hvað mest að fá að upplifa samkennd og skilning og að fá að vera hluti af heildinni. Heildinni sem er allskonar.
Er það ekki stóra verkefnið okkar? Að umbera og þykja vænt fólk – skilja og virða mismunandi skoðanir – hlusta og horfa. Bera ábyrgð og rétta fram hjálparhönd og ekki dæma.
En auðvitað fyrst og fremst að efla okkur sjálf og gefa okkur þá sjálfsmildi sem við eigum skilið. Við viljum oft fyrst og fremst sýna öðrum mildi og fyrirgefa en okkur þurfum við líka að hlúa að"
Með kærri þökk fyrir skólaárið 2020-2021.