Heiðarskóli Reykjanesbæ

Heiðarskóli Reykjanesbæ Heiðarskóli í Reykjanesbæ tók til starfa árið 1999. Einkunnarorð hans eru: Háttvísi - hugvit - heilbrigði

Matthildur Yrsa nemandi í 9. bekk í Heiðarskóla hlaut íslensku barnabókarverðlaunin 2026 💙 Við erum að rifna úr stolti a...
15/09/2026

Matthildur Yrsa nemandi í 9. bekk í Heiðarskóla hlaut íslensku barnabókarverðlaunin 2026 💙 Við erum að rifna úr stolti af henni og óskum henni innilega til hamingju. Hér má sjá frétt á heimasíðu skólans:

Það er sannarlega ánægjulegt að segja frá því að Matthildur Yrsa Sigurðardóttir, nemandi í Heiðarskóla, er einn höfunda bókarinnar Síðasti dagurinn sem hlaut í dag Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin 2026. Verðlaunin voru afhent í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð.

💛 Guli dagurinn – 10.sept 💛Á morgun, 10. september, er Guli dagurinn, alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna og geðræktar....
09/09/2026

💛 Guli dagurinn – 10.sept 💛
Á morgun, 10. september, er Guli dagurinn, alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna og geðræktar.
Í tilefni dagsins hvetjum við nemendur og starfsfólk Heiðarskóla til að mæta í gulu.
Guli liturinn táknar von, hlýju og samstöðu. Dagurinn minnir okkur á hversu mikilvægt það er að hlúa að geðheilsunni, rækta vellíðan og samveru og vera til staðar hvert fyrir annað. Stundum getur lítið skipt miklu, bros, góð orð, hlustun eða einfaldlega það að sýna öðrum að við sjáum þá. Enginn á að þurfa að standa einn. Klæðumst gulu á morgun og sýnum að í Heiðarskóla stöndum við saman. 🫶

08/09/2026

Þann 9. september verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum.

Skólahald mun vera með sama hætti og venjulega, nemendur fylgja sinni stundarskrá.
Íþróttir og sund: Þeir nemendur sem eiga að fara í sund munu fara í aðra virkni með íþróttakennara. Þeir nemendur sem eiga að fara í íþróttir í salnum munu gera það en í lágmarksvirkni, þar sem ekki verður hægt að fara í sturtu eftir íþróttir.

Skólamatur mun gera breytingar á matseðli þennan dag.
Í hádegismat verður boðið upp á pastabakka með kjúklingi. Í salatbar verður eingöngu boðið upp á ávexti.
Fyrir þá sem eru í ávaxtaáskrift verða sendir óskornir bananar og perur.
Sérfæðið gerir ráð fyrir þau sem þurfa annað.
Við biðjum alla vinsamlegast að nota eigin vatnsbrúsa þennan dag.

Frábær Ljósanæturdagur í dag þar sem endað var í Brekkusöng 💙 Fleiri myndir og myndbönd munu birtast á heimasíðunni efti...
04/09/2026

Frábær Ljósanæturdagur í dag þar sem endað var í Brekkusöng 💙 Fleiri myndir og myndbönd munu birtast á heimasíðunni eftir helgi 💙🩵💚❤️

TREYJUDAGUR föstudaginn 4. september 💙🩵❤️💚💛Allir nemendur og starfsfólk hvatt til að mæta í treyjum -
03/09/2026

TREYJUDAGUR föstudaginn 4. september 💙🩵❤️💚💛
Allir nemendur og starfsfólk hvatt til að mæta í treyjum -

Fyrir börn með krabbamein.

Heiðarskóli sigrar sumarlesturinn 🥰Nemendur Heiðarskóla stóðu sig frábærlega í sumarlestarverkefni Bókasafns Reykjanesbæ...
26/08/2026

Heiðarskóli sigrar sumarlesturinn 🥰
Nemendur Heiðarskóla stóðu sig frábærlega í sumarlestarverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar og tryggðu skólanum 1. sætið með samtals 615 lestrarstundir!
Við erum himinlifandi og virkilega stolt af duglegu lestrarhestunum okkar og þökkum öllum nemendum sem tóku þátt 💙
Hér er frétt á heimasíðu skólans:

Nemendur Heiðarskóla stóðu sig frábærlega í sumarlestarverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar og tryggðu skólanum 1. sætið með samtals 615 lestrarstundir!

Í gær kvöddum við skólaárið með skólaslitum og útskrift 10. bekkjar. Við þökkum fyrir samveruna, gleðina og allt það góð...
11/06/2026

Í gær kvöddum við skólaárið með skólaslitum og útskrift 10. bekkjar. Við þökkum fyrir samveruna, gleðina og allt það góða sem einkenndi veturinn. Sjá nánar á heimasíðu skólans. 🩵
www.heidarskoli.is

Address

Heiðarhvammur
Keflavík
230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heiðarskóli Reykjanesbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Heiðarskóli Reykjanesbæ:

Shortcuts

Share