Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Suðurnesja Fjölbrautaskóli Suðurnesja - Stofnaður 1976

Mánudaginn 28. september mættu fulltrúar Rafmenntar, fræðsluseturs rafiðnaðarins, og afhentu rafiðnnemum á 1. ári vandað...
28/09/2026

Mánudaginn 28. september mættu fulltrúar Rafmenntar, fræðsluseturs rafiðnaðarins, og afhentu rafiðnnemum á 1. ári vandaðar vinnubuxur. Þetta er fimmta árið í röð sem Rafmennt gefur buxur. Allir nemendur sem hefja nám í rafiðnum fá þessa gjöf og það var því stór hópur sem fékk buxur að þessu sinni. Það voru Þór Pálsson framkvæmdastjóri Rafmenntar og Hafdís Reinaldsdóttir skrifstofustjóri sem afhentu gjöfina. Við þökkum fyrir okkar fólk en gjöfin á eftir að nýtast vel í námi og starfi.

Við höldum áfram að birta sögur sem fyrrum nemendur sendu okkur í tilefni 50 ára afmælis skólans. Í þetta sinn er það Ha...
24/09/2026

Við höldum áfram að birta sögur sem fyrrum nemendur sendu okkur í tilefni 50 ára afmælis skólans. Í þetta sinn er það Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir en hún varð stúdent vorið 2001. Halldóra Fríða er með skemmtilega sögu um Gísla Torfason sem fjölmargir FS-ingar eiga hlýjar minningar um.

Nemendur í teiknivali fóru í safnfræðslu og leiðsögn ásamt kennara sínum Gunnhildi Þórðardóttur-Place í Listasafn Reykja...
22/09/2026

Nemendur í teiknivali fóru í safnfræðslu og leiðsögn ásamt kennara sínum Gunnhildi Þórðardóttur-Place í Listasafn Reykjanesbæjar á sýninguna Nína, okkar kærasta Nína. Á sýningunni eru verk Nínu Sæmundsson ásamt verkum listamanna sem notuðu verk Nínu sem útgangspunkt. Sýningin stendur til 29. nóvember.

Í tilefni af 50 ára afmæli skólans óskuðum við eftir sögum og minningum úr skólanum frá fyrrum nemendum. Við fengum þó n...
21/09/2026

Í tilefni af 50 ára afmæli skólans óskuðum við eftir sögum og minningum úr skólanum frá fyrrum nemendum. Við fengum þó nokkuð af skemmtilegum sögum og birtum þær á næstunni. Það er Guðjón Skúlason sem ríður á vaðið en hann varð stúdent frá FS á haustönn 1989.

Ásdís María Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur verður í vetur til viðtals fyrir nemendur í skólanum alla miðvikudag kl. 10...
16/09/2026

Ásdís María Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur verður í vetur til viðtals fyrir nemendur í skólanum alla miðvikudag kl. 10:00-14:00. Hún starfar sem skólahjúkrunarfræðingur á HSS og sinnir þjónustu í grunnskólum og mun nú bæta FS við.

Hlutverk Ásdísar Maríu í skólanum verður fyrst og fremst að veita nemendum stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi heilsu og líðan. Hún mun aðstoða nemendur með það sem tengist andlegri líðan, geðheilbrigði, svefni, mataræði og hreyfingu, kynheilbrigði, nikótín-, áfengis- og vímuefnanotkun, verkjum, veikindum eða almennri heilsu og vellíðan. Hún mun einnig aðstoða nemendur við að finna viðeigandi úrræði og leiðbeina um hvert best sé að leita innan heilbrigðiskerfisins þegar þörf er á frekari aðstoð.

Ásdís María verður með aðstöðu við hliðina á skrifstofu skólans. Nemendur geta komið til hennar þangað eða bókað tíma í gegnum tengil á vef skólans. Utan viðverutíma er hægt að senda skilaboð á netfangið [email protected].

Við bjóðum Ásdísi Maríu velkomna til starfa.

Í tilefni 50 ára afmælis skólans var gefið út veglegt afmælisblað. Í blaðinu eru viðtöl við fyrrverandi og núverandi nem...
14/09/2026

Í tilefni 50 ára afmælis skólans var gefið út veglegt afmælisblað. Í blaðinu eru viðtöl við fyrrverandi og núverandi nemendur, kennara og skólameistara. Einnig er þar fjöldi mynda úr sögu skólans og tölur um útskrifaða nemendur o.fl. Hér er hægt að skoða blaðið rafrænt.
https://drive.google.com/file/d/1_55TLnDoe4P2CLE3KoClc70645GaTVkT/view

Haldið var upp á 50 ára afmæli skólans með opnu húsi og hátíðardagskrá laugardaginn 12. september. Gestir gátu skoðað sk...
13/09/2026

Haldið var upp á 50 ára afmæli skólans með opnu húsi og hátíðardagskrá laugardaginn 12. september. Gestir gátu skoðað skólann og aðstöðuna og reynt sig í ýmsum námsgreinum í kennslustofum. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék á sal og tók nokkur lög áður en hátíðardagskrá hófst.

Dagskráin hófst á því að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp og bar skólanum afmæliskveðju. Guðlaug Pálsdóttir skólameistari ávarpaði síðan samkomuna. Þá var komið að Benóný Einari Færseth Guðjónssyni sem söng frumsamið lag og lék undir á píanó. Atli Þorsteinsson flutti ávarp fyrir hönd kennara skólans og Sveindís Valdimarsdóttir fyrir hönd fyrsta árgangs stúdenta frá skólanum. Þeir sem voru viðstaddir úr þeim hópi komu síðan á svið og var vel fagnað. Guðbrandur Einarsson settist við píanóið og leiddi salinn í afmælissöngnum til heiðurs FS. Sveindís tilkynnti síðan að hópurinn hyggst stofna nýsköpunarsjóð Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Honum er ætlað að styrkja nýsköpun í skólastarfinu og er ætlunin að fá fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu til að styðja við sjóðinn. Það var Kjartan Már Gunnarsson sem kynnti dagskrána og sagði um leið nokkrar skemmtilegar sögur frá veru sinni í FS.

Við lok dagskrárinnar undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, viljayfirlýsingu um stækkun verknámsaðstöðu skólans. Að því loknu var boðið upp á kaffi og afmælistertu og fleira bakkelsi. Gestir áttu góða stund og á meðan lék Djassbandið Þríó létta tónlist. Þríó skipa þau Birta Rós Sigurjónsdóttir, Jón Böðvarsson og Sigurður Baldvin Ólafsson en þau eru öll fyrrum nemendur skólans.

Við þökkum gestum okkar fyrir komuna og ánægjulegan dag.

Á 50 ára afmælishátíð skólans undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri ...
13/09/2026

Á 50 ára afmælishátíð skólans undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, viljayfirlýsingu um stækkun verknámsaðstöðu skólans. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum að 1.800 fermetra stækkun sem mun fyrst og fremst hýsa aðstöðu fyrir kennslu í verknámi. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Reykjanesbær fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa umsjón með framkvæmdunum.

Á vef ráðuneytisins er haft eftir mennta- og barnamálaráðherra. "Við þurfum að tala verk- og starfsnám upp og líka sýna það í verki. Þessi stækkun er einmitt slíkt skref, fjárfesting í unga fólkinu, atvinnulífinu og framtíð Suðurnesja. Ég fagna sérstaklega því hversu myndarlega sveitarfélögin á svæðinu koma að verkefninu. Þegar ríki, sveitarfélög og skólarnir taka höndum saman þá getum við látið hlutina gerast."

Á 50 ára afmælisdegi skólans 11. september var boðið upp á stórtónleika í Hljómahöll. Þar kom fram fjöldi tónlistarmanna...
12/09/2026

Á 50 ára afmælisdegi skólans 11. september var boðið upp á stórtónleika í Hljómahöll. Þar kom fram fjöldi tónlistarmanna sem flestir eru fyrrverandi nemendur skólans. Vel var mætt og var mikil stemning og gleði í salnum og ekki síður á sviðinu þetta kvöld.

Það voru þeir Hallbjörn Valgeir Rúnarsson, betur þekktur sem Halli Valli, og Ingi Þór Ingibergsson sem kynntu dagskrána en þeir eru auðvitað báðir fyrrverandi nemendur FS. Þeir fóru á kostum og héldu uppi stemningu á meðan stillt var upp fyrir næsta atriði.

Það var Guðjón Þorgils sem hóf tónleikana en hann sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna í vor og varð þar með fyrsti fulltrúi FS til að sigra keppnina. Síðan komu þeir Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson úr hljómsveitinni Valdimar og þá Sigurður Guðmundsson. Þá var komið að hverri hljómsveitinni á eftir annarri þar sem fyrrverandi FS-ingar eru í lykilhlutverkum og jafnvel öllum. Þetta voru Klassart, Demo, Heiða Eiríks og Gleðilegt fokking ár, Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn, Deep Jimi/Pandora og það var síðan Kolrassa krókríðandi sem lauk tónleikunum eins og þeim einum er lagið.

Það er óhætt að segja að tónleikarnir hafi heppnast frábærlega og gestir skemmtu sér vel og ekki síður þeir sem tróðu upp. Við þökkum tónleikagestum fyrir komuna og tónlistarfólkinu fyrir þeirra framlag.

Á vef skólans eru fleiri myndir frá tónleikunum:
https://www.fss.is/is/skolinn-starfid/annad/myndasafn/album/DDB8Tx

Í dag heldur skólinn upp á 50 ára afmæli og er afmælinu fagnað á margvíslegan hátt. Í löngu frímínútum í morgun var afmæ...
11/09/2026

Í dag heldur skólinn upp á 50 ára afmæli og er afmælinu fagnað á margvíslegan hátt. Í löngu frímínútum í morgun var afmælissöngurinn sunginn á sal og að því loknu var boðið upp á tertu í tilefni dagsins.

Í kvöld verða svo stórtónleikar í Hljómahöllinni kl. 18:00-21:00. Þar koma fram fjölmargir tónlistarmenn sem allir eru fyrrverandi og núverandi nemendur skólans. Ókeypis er inn meðan húsrúm leyfir.

Á morgun verður svo opið hús í skólanum kl. 12:00-16:00. Þar geta gestir skoðað skólann og prófað ýmsar námsgreinar sem kenndar eru í skólanum. Kl. 14:00 hefst svo dagskrá á sal þar sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ávarpar gesti. Að dagskránni lokinni verður boðið upp á kaffi og með því.

Address

Sunnubraut 36
Keflavík
230

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3544213100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjölbrautaskóli Suðurnesja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fjölbrautaskóli Suðurnesja:

Shortcuts

Share

Category