Fab Lab Suðurnes

Fab Lab Suðurnes Hönnunar og nýsköpunarsmiðja

Dagskrá Fab Lab Suðurnes haustið 2026🔹 Opnir tímar: Öll eru velkomin í opna tíma á mánudögum kl. 14:00–18:30. Það þarf e...
11/09/2026

Dagskrá Fab Lab Suðurnes haustið 2026

🔹 Opnir tímar: Öll eru velkomin í opna tíma á mánudögum kl. 14:00–18:30. Það þarf ekki að skrá sig – bara mæta!

🔹 Skóla- og fræðsluhópar: Grunnskólar, framhaldsskólar, háskólar og símenntunarhópar geta bókað tíma í smiðjunni fyrir kynningar, vinnustofur og verkefnavinnu. Hafið endilega samband og við finnum tíma sem hentar.

🔹 Handleiðslutímar: Þeir eru ætlaðir fyrir stærri og lengri verkefni, til dæmis samstarfsverkefni með fyrirtækjum, frumkvöðlum og öðrum samstarfsaðilum.

🔹 Námskeið: Námskeið fara fram á fimmtudögum og verða auglýst síðar. Ef þið hafið áhuga á námskeiði eða kynningu fyrir ykkar hóp, endilega hafið samband.

Við erum líka alltaf opin fyrir samtali, heimsókn, kaffibolla eða góðum hugmyndafundi ☕️💡

Lísbet Guðný
📧 [email protected]
📞 690-3875
📍Sunnubraut 36, Keflavík, Iceland

🎉 Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar 2026 🎉Við hjá Fab Lab Suðurnesjum erum afar stolt af því að samstarfsverk...
04/06/2026

🎉 Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar 2026 🎉

Við hjá Fab Lab Suðurnesjum erum afar stolt af því að samstarfsverkefnið „FabLab samstarf: Eflum sköpunarkraft nemenda“ hafi hlotið Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar í ár.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Elsu Þóru kennara í Heiðarskóla og hefur það markmið að efla nýsköpun, lausnaleit og tæknilæsi nemenda. Með verkefninu fá nemendur tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og umbreyta þeim í raunveruleg verkefni með hjálp stafrænnar hönnunar, þrívíddarprentunar, laserskurðar og annarrar tækni sem Fab Lab býður upp á.

Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvernig samstarf skóla og Fab Lab getur opnað nýjar leiðir í námi, aukið áhuga nemenda á sköpun og tækni og styrkt sjálfstraust þeirra til að takast á við verkefni framtíðarinnar.

Við óskum Elsu Þóru innilega til hamingju með verðlaunin og þökkum fyrir frábært samstarf. Við hlökkum til að halda áfram að styðja við skapandi og öflugt skólastarf í Reykjanesbæ.

Við viljum jafnframt hvetja kennara og skólasamfélagið allt til að hafa samband eða koma í heimsókn til okkar. Við höfum mikinn áhuga á að þróa fleiri samstarfsverkefni þar sem sköpun, tækni og nýsköpun fá að njóta sín í námi nemenda. Saman getum við skapað enn fleiri tækifæri til skapandi náms og lausnamiðaðrar hugsunar. ✨

Húrra fyrir okkur 🎉

🌞 Sumarfríið er handan við hornið! 🌞Áður en við lokum dyrunum og förum að njóta sumarsins eigum við nokkra opna tíma eft...
02/06/2026

🌞 Sumarfríið er handan við hornið! 🌞

Áður en við lokum dyrunum og förum að njóta sumarsins eigum við nokkra opna tíma eftir sem vert er að nýta sér:

Fimmtudagur 4.júní: kl. 10:00–16:00
Mánudagur 8.júní : kl. 14:00–18:30
Fimmtudagurinn 11.júní: kl. 10:00–16:00

Þetta eru síðustu opnunartímarnir okkar fyrir sumarfrí svo nú er tækifærið til að klára verkefnið, prófa nýja hugmynd eða kíkja í heimsókn.

Við hlökkum til að sjá ykkur og óskum öllum yndislegs sumars!

Opið hús í dag, mánudag frá 14-18:30
01/06/2026

Opið hús í dag, mánudag frá 14-18:30

Sköpun, tækni og bókmenntir mættust á skemmtilegan hátt í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.Fab Lab Suðurnes og íslenskuáfangi ...
05/05/2026

Sköpun, tækni og bókmenntir mættust á skemmtilegan hátt í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Fab Lab Suðurnes og íslenskuáfangi skólans unnu saman verkefni þar sem nemendur fengu að nálgast ljóð á skapandi og nýstárlegan hátt. Í stað hefðbundinnar úrvinnslu fengu þau tækifæri til að vinna með ljóðin í bland við hönnun og tækni – og útkoman lét ekki á sér standa!

Meðal afraksturs má nefna:
✨ Geislaskorinn viðarplatta með ljóði og myndskreytingu
✨ Útsaumaða hettupeysu með texta úr ljóði

Verkefnið sýnir vel hvernig hægt er að brjóta upp hefðbundið nám, efla sköpunargáfu og dýpka skilning nemenda á texta með því að færa hann yfir í áþreifanlegt form.

Við erum spennt fyrir áframhaldandi samstarfi þar sem listir, tækni og nám fléttast saman 💡
Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Listamenn nýttu sér vínyl- og geislaskera í Fab Lab Suðurnesja við gerð listaverka sem nú má sjá á sýningu á listasafnin...
30/04/2026

Listamenn nýttu sér vínyl- og geislaskera í Fab Lab Suðurnesja við gerð listaverka sem nú má sjá á sýningu á listasafninu Duus - sannkölluð veisla fyrir augað!

Innilega til hamingju með glæsilega sýningu 👏

Í dag og á morgun fer fram vörumessa í Smáralind þar sem ungir og efnilegir frumkvöðlar kynna afrakstur vinnu sinnar 👏✨Þ...
17/04/2026

Í dag og á morgun fer fram vörumessa í Smáralind þar sem ungir og efnilegir frumkvöðlar kynna afrakstur vinnu sinnar 👏✨

Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hóp nemenda sem hefur nýtt aðstöðuna í Fab Lab Suðurnes til að þróa hugmyndir sínar áfram og gera þær að veruleika. Sköpunarkrafturinn, hugrekkið og metnaðurinn sem birtist í verkefnunum er virkilega til fyrirmyndar.

Við óskum öllum hópunum innilega til hamingju með frábæran árangur – þetta er bara byrjunin! 🚀

Address

Sunnubraut 36
Keflavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fab Lab Suðurnes posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fab Lab Suðurnes:

Shortcuts

Share

Category