27/03/2026
Það er óhætt að segja að "dagsverkið" hans Jóhanns Ísaks Péturssonar í Menntaskólanum í Kópavogi sé langt en hann hóf störf sem stundakennari haustið 1976, þá nýútskrifaður jarðfræðingur. Það eru nokkur ár síðan hann hætti kennslu í dagskóla MK en Jóhann hélt áfram að koma einu sinni í viku og fræða nemendur Leiðsöguskólans um jarðfræði. Áhugi hans og þekking á jarðfræði smitaðist svo sannarlega til nemenda Leiðsöguskólans!
Eftir 50 ára starf í MK ætlar Jóhann Ísak Pétursson að láta staðar numið og "fara að leika sér" eins og hann sagði sjálfur þegar honum var þakkað fyrir vel unnin störf í upphafi síðustu kennslustundarinnar í Leiðsöguskólanum.
Kærar þakkir fyrir fagmennsku, liðlegheit og gæsku alla tíð sem og einstakt framlag við menntun leiðsögunema síðustu áratugina kæri Jóhann Ísak!