29/05/2021
Fimmtudaginn 27. maí útskrifuðust fimm ferðaráðgjafar frá Ferðamálaskólanum í Kópavogi við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju. Á meðfylgjandi mynd má sjá þennan frábæra hóp ásamt fagstjóra skólans. Þessir ferðaráðgjafar eru þeir síðustu sem útskrifast frá skólanum að sinni þar sem ákveðið hefur verið að setja skólann í hvíld, sem vonandi verður þó aðeins tímabundin. Ferðamálaskólinn í Kópavogi hefur verið starfræktur í rúm 30 ár og vakið verðskuldaða athygli fyrir að skila út í ferðaþjónustuna vel menntuðum og hæfum starfskröftum. Á þessum ljúfsáru tímamótum vill skólinn þakka öllum þeim sem að honum hafa komið í gegnum tíðina – stjórnendum, kennurum og nemendum – og árna hinum nýútskrifuðu ferðaráðgjöfum allra heilla í framtíðinni.