Kópavogsskóli

Kópavogsskóli

Share

Kópavogsskóli
v/Digranesveg
200 Kópavogur
Sími 441 3400

11/08/2026

Nú hallar sumri og senn líður að skólabyrjun.

Nýir nemendur sem sækja munu 2.-10. bekk verða boðaðir á fund með sínum umsjónarkennurum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 15 í sal skólans.

Umsjónarkennarar 1. bekkjar munu boða foreldra í einstaklingsviðtöl með börnum sínum sem munu fara fram mánudaginn 24. ágúst og þriðjudaginn 25. ágúst.

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst n.k. og verður tekið á móti nemendum í sal skólans samkvæmt eftirfarandi skipulagi:
• Kl. 8:30 2.- 4. bekkur
• Kl. 9:00 5. - 6. bekkur
• Kl. 9:30 7. - 10. bekkur
Námsefniskynning verður strax að lokinni skólasetningu í umsjónarstofum og við hvetjum alla foreldra til þess að mæta. Þar verður farið yfir skólaárið framundan og foreldrum gefst þar tækifæri til þess að hitta kennara og ræða saman. Við hvetjum sem allra flesta til þess að koma gangandi í skólann þennan dag.

Námsefniskynning fyrir foreldra 1. bekkjar verður auglýst síðar en eins og hefð er fyrir verður haldinn súpufundur og fræðsla til foreldra.

Á skólasetningardegi, 25. ágúst á milli kl. 16:00-18:00 verður hausthátíð foreldrafélagsins á skólalóðinni og verður hátíðin auglýst nánar síðar.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst.

Foreldrar nemenda í 1.-4. bekk eru hvattir til þess að skrá börnin sín í frístund á vala.is.

Almyrkvi í Kópavogi 12. ágúst 09/08/2026

Almyrkvi í Kópavogi 12. ágúst Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Þetta er jafnframt fyrsti almyrkvinn sem sést frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní 1433.

04/06/2026

Skólaslit 2026

Þann 9. júní verða skólaslit og úrskrift í Kópavogsskóla. Nemendur í 1.-9. bekk mæta á hefðbundnum tímum að morgni til og eru í skólanum til hádegis. Skólaslit verða með eftirfarandi hætti:

Kl: 15:00 eru skólaslit hjá 1. - 9. bekk í heimastofum árganga.
Kl: 16:30 er útskrift hjá 10. bekk í sal skólans.

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst.
Kl. 8:30. 2. - 4. bekkur
Kl. 9:00. 5. - 6. bekkur
Kl. 9:30. 7.-10. bekkur
Námsefniskynning verður strax að lokinni skólasetningu í umsjónarstofum og hvetjum við því foreldra til þess að fjölmenna í skólann á þessum degi.

Foreldrar nemenda 1. bekkjar verða boðuð í einstaklingsviðtöl dagana 25. og 26. ágúst.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst fyrir nemendur í 2.-10. bekk og fimmtudaginn 27. ágúst fyrir nemendur í 1. bekk.

Photos from Kópavogsskóli's post 22/05/2026

Sævar Helgi Bragason kom í heimsókn í Kópavogsskóla miðvikudaginn 20. maí og var með skemmtilega fræðslu um Almyrkvan sem mun sjást á Íslandi 12. ágúst 2026. Nemendur í 1. – 6. bekk fengu fræðsluna að þessu sinni en Sævar kemur aftur í næstu viku með fræðslu fyrir nemendur í 7. – 10. bekk. Nemendur voru áhugasamir og tóku virkan þátt í fræðslunni. Slóð inn á síðu sem Sævar heldur úti og er hægt að fræðast um almyrkvan þar. https://solmyrkvi2026.is/

Photos from Kópavogsskóli's post 21/05/2026

Í gær þann 20. maí fóru Árný og Fjóla kennarar ásamt Guðrúnu námsráðgjafa með stelpunum í 9. bekk á Stelpur, stálp og tækni en það er viðburður þar sem stelpum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla er boðið í háskólann og tæknifyrirtæki. Við fórum með rútu í HR þar sem við fengum skemmtilega og áhugaverða fræðslu um RU racing sem er kappaksturlið nemenda í HR og fengum einnig að skoða bílana sem þau hafa smíðað.
Stelpurnar fengu einnig kennslu í Minecraft forritun og svo var boðið upp á pizzur og gos í hádeginu. Eftir hádegismat fórum við með rútu í Reykjanesbæ í gagnaverið At north þar sem var tekið mjög vel á móti okkur við fengum að skoða og kynnast starfseminni þar. Stelpurnar voru mjög áhugasamar og allir virtust skemmta sér vel.

Photos from Pangea stærðfræðikeppni's post 22/04/2026

Við gleðjumst yfir frábærum árangri okkar nemanda í Pangea stærðfræðikeppni en Stefán Pálmason í 9. bekk bar þar sigur úr býtum um síðustu helgi.

21/04/2026

Útivistartími barna og unglinga

Við viljum minna á útivistarreglur fyrir börn og unglinga nú þegar vorið er að ganga í garð. Reglurnar eru settar með velferð og öryggi barna að leiðarljósi og mikilvægt er að við vinnum saman að því að fylgja þeim.

Fram til 1. maí:
• Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20:00.
• Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 22:00.

Eftir 1. maí:
• Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22:00.
• Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 24:00.

Foreldrar/forráðamenn mega stytta útivistartímann en ekki lengja hann frá þessum viðmiðum. Við hvetjum ykkur til að ræða þessar reglur við börnin ykkar og tryggja að þau viti hvaða tímamörk gilda. Einnig er mikilvægt að foreldrar fylgist með ferðum barna sinna og viti hvar þau eru stödd hverju sinni.

We would like to remind you of the outdoor curfew rules for children and teenagers as we move into the spring season. These rules are set with the safety and well-being of children in mind, and it is important that we work together to follow them.

Until May 1st:
• Children aged 12 and younger may be outside until 8:00 PM.
• Teenagers aged 13–16 may be outside until 10:00 PM.
After May 1st:
• Children aged 12 and younger may be outside until 10:00 PM.
• Teenagers aged 13–16 may be outside until midnight.

Parents/guardians may shorten the curfew time, but they may not extend it beyond these limits. We encourage you to discuss these rules with your children and make sure they are aware of the curfew times. It is also important for parents to keep track of their children’s whereabouts and know where they are at all times.

Photos from Kópavogsbær's post 09/04/2026
07/04/2026
27/03/2026

Nemendur skólans eru komnir í páskafrí og hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl.

Want your school to be the top-listed School/college in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Digranesvegur
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 07:45 - 16:00
Thursday 07:45 - 16:00
Friday 07:45 - 16:00