23/03/2026
Opið fyrir umsóknir
Í sumar er búist við miklum fjölda nemenda í Vinnuskóla Kópavogs. Reiknað er með að um 1.500 nemendur sæki skólann sem er svipaður fjöldi og verið hefur síðustu ár.
Nemendur Vinnuskólans vinna við fjölbreytt störf í bænum og má þar nefna hreinsun bæjarlands og fjölmörg störf innan stofnanna og fyrirtækja.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskólann og verður opið fyrir umsóknir til 15. maí. Mikilvægt er að þeir nemendur sem eru á 16. og 17. aldursári sæki um fyrir þann tíma þar sem þá verður byrjað að raða í störf utan hefðbundinna hreinsunar starfa.
Að þessu sinni verður garðyrkja ekki eitt af verkefnum 17 ára nemenda og munu allir starfa á stofnunum eða fyrirtækjum sem hafa óskað eftir samstarfi við Vinnuskólann
Einnig er gerð sú breyting á starfi þeirra að nú velja þau ekki tímabil til að vinna á heldur veður unnið í samráði við yfirmenn á hverjum vinnustað.
Boðað verður til foreldrafundar áður en Vinnuskólinn hefur störf og verður hann á vefformi og skipt eftir aldri nemenda. Dagsetning á honum verður auglýst síðar.
Vinnuskólinn
Vinnuskólinn í Kópavogi býður 14 til 17 ára íbúum Kópavogs vinnu yfir sumartímann. Starfstími Vinnuskólans er frá maí til ágúst ár hvert.
05/08/2025
Takk fyrir okkur - þið eruð snillingar!!!
Jafningjafræðsla í annað skipti í Kópavogi!
Starfi jafningjafræðslunnar lauk 25. júlí en þau heimsóttu hópa í Vinnuskólanum í Kópavogi og veittu fræðslu á jafningjagrundvelli frá 2. júní.
Þetta er í annað skipti sem Kópavogur heldur utan um jafningjafræðslu yfir sumartímann en jafningjafræðsla er mikilvægur hluti af forvarnar- og fræðslustarfi fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu.
Markmið jafningjafræðslunnar er að skapa öruggt og virðingarfullt rými þar sem ungmenni fræða hvert annað um málefni sem snerta þau beint. Í ár voru 11 ungmenni á aldrinum 16-20 ára starfandi sem jafningjafræðarar.
22/07/2025
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Við viljum upplýsa ykkur um að Vinnuskólinn er í fullri virkni í dag og öll starfsemi fer fram samkvæmt áætlun. Loftgæði eru metin góð og því ekkert sem hamlar útivinnu eða annarri dagskrá dagsins.
Við fylgjumst áfram náið með loftgæðum og höfum ákveðið að vera í samstarfi við aðra vinnuskóla á höfuðborgarsvæðinu, komi til þess að loftgæði versni. Með því tryggjum við að viðbrögð verði samræmd og í samræmi við leiðbeiningar almannavarna hverju sinni.
Við þökkum ykkur fyrir gott samstarf og minnum á að allar helstu upplýsingar verða áfram settar inn á hefðbundna boðleiðir.
Bestu kveðjur
Starfsfólk Vinnuskólans í Kópavogi
21/07/2025
Kæru foreldrar/forráðamenn og nemendur,
Vegna lélegra loftgæða í dag, hefur verið tekin ákvörðun um að stöðva starfsemi Vinnuskólans í Kópavogi tímabundið. Ákvörðunin var tekin með öryggi nemenda og starfsmanna að leiðarljósi og í samráði við Umhverfis og orkustofnun.
Við fylgjumst náið með þróun mála og munum koma með frekari tilkynningar um framhald starfsins um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilning ykkar.
Greitt verður fyrir daginn eins og hefðbundin vinnudag.