31/03/2026
Það stefnir í bestu páska í Bláfjöllum í áraraðir. Allt á kafi í snjó og veðurspáin meira og minna góð. Við erum farin að taka við bókunum í kennslu á morgun, miðvikudag og svo á föstudag. Nú er tækifærið til að koma fjölskyldunni á skíði! Frekari upplýsingar í skilaboðum og á skidakennsla.is
28/02/2026
Loksins loksins kom snjórinn! Það er eitthvað laust hjá okkur í kennslu á morgun (sunnudag) í Bláfjöllum og á mánudaginn í Ártúnsbrekku. Áhugasamir geta sent skilaboð eða hringt í 895-0219.
06/01/2025
Við erum að fá mjög mikið af fyrirspurningum um kennslu um næstu helgi. Staðan er þannig að það eru mjög miklar líkur á slæmu veðri um helgina og í næstu viku. Við tökum þess vegna bara við bókunum í kennslu fram á föstudaginn næsta.
Góðu fréttirnar eru þær að við eigum eitthvað af lausum tímum núna í vikunni, spáin er góð og færið flott. Um að gera að nýta sér það þar sem hlákan um helgina gæti brætt mikið af snjónum í fjöllunum
20/01/2024
Vegna forfalla eru lausir tímar í kennslu á morgun sunnudag og veðurspáin frábær.
Líka eitthvað laust í næstu viku. Best að panta tíma með því að senda okkur skilaboð.
21/12/2023
Hægt er að kaupa gjafabréf í skíðakennslu á síðunni okkar, https://skidakennsla.is Tilvalin jólagjöf! Einnig er hægt að nota hreyfistyrk frá stéttarfélögum og vinnustöðum til að borga fyrir gjafabréf frá okkur.
Skidakennsla
08/02/2023
Það eru ennþá lausir tímar hjá okkur á morgun fimmtudag og veðurspáin ótrúlegt en satt ágæt og snjórinn mættur í fjöllin
Eftir það tökum við okkur frí til 20. febrúar en höldum uppteknum hætti seinnipartinn í febrúar!
05/01/2023
Það eru komnar tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum og fullt af nýjum brekkum. Er ekki tilvalið að bæta stílinn aðeins og koma í skíðakennslu?
Við eigum lausa tíma í dag (fimmtudag), föstudag og laugardag. Erum líka byrjuð að taka við bókunum í næsu viku, en það er meiri óvissa með veðrið þá.
Við kennum börnum og fullorðnum, byrjendum og lengra komnum. Best að bóka með því að senda skilaboð á Facebook.
26/12/2021
Skíðakennsla á milli jóla og nýars! Við verðum að kenna í Bláfjöllum á milli jóla og nýárs. Bjóðum upp á einkakennslu fyrir byrjendur sem og lengra komna, bæði börn og fullorðna.
Tíminn kostar 8.000 krónur. Bókað með skilaboðum á Facebook
13/12/2021
Nú eru nær fullkomnar aðstæður í Bláfjöllum, allt á kafi í nýjum snjó.
Það er ennþá laust í kennslu hjá okkur í dag (mánudag). Hægt að bóka með því að senda skilaboð.
Vegna veðurs er ekki útlit fyrir að það verði meira opnað þessa vikuna. Við tökum því ekki við bókunum fyrir aðra daga í þessari viku, en um að gera að nýta tækifærið og skella sér á skíði í dag!
01/12/2021
Gleðilagan vetur! Við verðum að kenna seinnipartinn í dag miðvikudag og á morgun fimmtudag (ef snjóalög leyfa) í Breiðholti.
Frekari upplýsingar og tímabókanir í skilaboðum.
14/04/2021
Við höfum fengið talsvert af fyrirspurnum um skíðakennslu næstu daga. Þrátt fyrir að lyftur megi opna frá og með morgundeginum er ekki útlit fyrir að nægur snjór verði í Bláfjöllum næstu daga og líklegast verður ekki skíðað meira þar þennan veturinn. Við tökum því ekki við bókunum í kennslu á næstunni.
Annars er nægur snjór fyrir norðan og austan og um að gera að skella sér þangað á skíði.