26/04/2017
Dagskrá fyrir leikskólahópa á Barnamenningarhátíð í Kópavogi hófst með opnun á sýningu á verkum eftir börn af leikskólunum Marbakka og Álfatúni. Börnin unnu ljóð með ljóðatrúðnum Gjólu og myndskreyttu ljóðin svo í skólanum. Þá unnu börnin á Marbakka einnig að eftirmyndum dýra sem sýnd eru við fyrirmyndirnar á Náttúrufræðistofu Kópavogs. Leikskólahópar fá fræðsludagskrá um seli á vegum Náttúrufræðistofu og sögustund á Bókasafni Kópavogs. Á laugardag er svo fjölskyldudagur, sjá; https://www.kopavogur.is/…/barnamenningarhatid-i-menningarh…
Gleðilega hátíð!
Dagskrá fyrir leikskólahópa á Barnamenningarhátíð í Kópavogi hófst með opnun á sýningu á verkum eftir börn af leikskólunum Marbakka og Álfatúni. Börnin unnu ljóð með ljóðatrúðnum Gjólu og myndskreyttu ljóðin svo í skólanum. Þá unnu börnin á Marbakka einnig að eftirmyndum dýra sem sýnd eru við fyrirmyndirnar á Náttúrufræðistofu Kópavogs. Leikskólahópar fá fræðsludagskrá um seli á vegum Náttúrufræðistofu og sögustund á Bókasafni Kópavogs. Á laugardag er svo fjölskyldudagur, sjá; https://www.kopavogur.is/is/mannlif/vidburdir/barnamenningarhatid-i-menningarhusunum-i-kopavogi
Gleðilega hátíð!