Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun

Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun

Share

Ég er viðurkenndur Adult Chair® markþjálfi, lærður jógakennari og jóga nidra kennari.

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi 27/08/2025

Nokkur laus pláss!

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi Tveggja daga sjálfsræktarnámskeið fyrir konur. Dýpkaðu sjálfsþekkingu, efldu innri styrk, fáðu skýrari framtíðarsýn og ræktaðu sjálfsmildi með einstakri blöndu af markþjálfun og jóga. Slökun, núvitund og markmiðasetning í nærandi umhverfi.

Vala Ósk Fríðudóttir 05/08/2025

✨ Ég er nýbyrjuð í Master Coaching Certification Programme (markþjálfun/ráðgjöf) hjá The Adult Chair® en ég lauk grunnréttindum í þeirri nálgun árið 2023.

Sem hluti af þjálfuninni þarf ég að safna tímum og ætla því að bjóða fólki upp á einn ókeypis 45 mínútna tíma á Zoom. 💻

Skjólstæðingar mínir mega ekki vera vinir mínir eða fjölskylda, en vinir vina og fjölskyldu eru velkomnir — svo endilega deilið eins og vindurinn.

Ég tek bæði á móti íslensku- og enskumælandi einstaklingum og þið getið bókað beint í gegnum Calendly-hlekkinn minn hér: https://calendly.com/valaoskfridudottir

💬 Ef þið þekkið fólk sem leitar að skýrleika, stuðningi eða einfaldlega rými til að taka stöðuna, þá gæti þetta verið akkúrat það sem það þarf.

📝 Það eina sem ég bið um í staðinn er að þið fyllið út stutta könnun eftir tímann okkar.

Takk fyrir að hjálpa mér að ná til þeirra sem hafa áhuga og þörf á. 🙏

✨ I’m currently in the Master Coaching Certification Programme with The Adult Chair® — the same approach where I completed my Coaching Certification in 2023.
As part of my training I need to collect practicum hours and therefore I am offering people one free 45-minute coaching session on Zoom. 💻
I can’t coach my friends or family, but friends of friends and extended circles are welcome — so please feel free to spread the word!
This is open to both Icelandic and English speakers, and you can book directly through my Calendly link here: https://calendly.com/valaoskfridudottir
💬 If you know someone who’s looking for clarity, support, or simply space to explore what’s going on in their life, this might be just what they need — this might be exactly what they need.
📝 The only thing I ask in return is that you fill out a short feedback form after our session.
Thanks for helping me reach the right people 🙏

Vala Ósk Fríðudóttir

24/06/2025

Lærimeistari minn og fyrirmynd að deila því sem ég hef hugsað og fundið innra með mér en ekki komið í orð. Takk!

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi 18/06/2025

Ert þú búin að skrá þig? Snemmskráningu lýkur 30. júní! Ef þú hefur einhverjar spurningar þá hafðu samband.

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi Tveggja daga sjálfsræktarnámskeið fyrir konur. Dýpkaðu sjálfsþekkingu, efldu innri styrk, fáðu skýrari framtíðarsýn og ræktaðu sjálfsmildi með einstakri blöndu af markþjálfun og jóga. Slökun, núvitund og markmiðasetning í nærandi umhverfi.

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi 13/05/2025

Er kominn tími á að staldra við, hlusta á þitt innra sjálf og styrkja þig? Við Lella markþjálfi ætlum að bjóða upp á einstakt námskeið fyrir konur í haust.
Sjálfsrækt, djúpslökun, markþjálfun
📍 Hlíðasmári 4 | 📅 19.–21. september
🎟 39.900 kr. | 🐥Snemmskráning: 29.900 kr.

Helgarnámskeið: Sjálfsrækt og innri friður — Lella markþjálfi Tveggja daga sjálfsræktarnámskeið fyrir konur. Dýpkaðu sjálfsþekkingu, efldu innri styrk, fáðu skýrari framtíðarsýn og ræktaðu sjálfsmildi með einstakri blöndu af markþjálfun og jóga. Slökun, núvitund og markmiðasetning í nærandi umhverfi.

Photos from Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun's post 18/01/2025

Hefur þú verið að velta fyrir þér að bóka tíma í öðruvísi markþjálfun hjá mér? Þá er tíminn núna! Ég á lausa tíma næstu tvær vikurnar. Bókaðu þinn tíma á www.noona.is/valaosk

Photos from Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun's post 15/01/2025

Ég fékk frábæran hóp starfsfólks úr umönnunargeiranum í dag í spjall um tilfinningar, að setja mörk og tilfinningakveikjur. Yoga Nidra var svo eftirrétturinn. 💛
P.s. Ég lofa, fólk mætti nokkrum mínútum eftir fyrstu mynd og fór sirka 15 mínútum fyrir seinni. 😊

Photos from Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun's post 31/12/2024

Kæru vinir,
Nú þegar árið 2024 er alveg að klárast langar mig til að þakka ykkur öllum fyrir samfylgdina á árinu. Þetta hefur verið ár vaxtar, lærdóms og breytinga.
Og þegar við stígum inn í árið 2025 óska ​​ég ykkur árs fyllt af mildi, samkennd og áframhaldandi vexti. Tökum því sem kemur til okkar með opnu hjarta og hugrekki, hvað sem árið kann að færa okkur. 🥂✨🌸

2025 mun örugglega færa okkur alls kyns áskoranir, upplifanir og veður! Og munið, það er ekkert víst að þetta klikki! 😉

Dear Friends,
As we wrap up 2024, I want to say thank you to all of you. It’s truly been a year of growth, learning and transformation.
Moving into 2025, I wish you a year filled with gentleness, self-compassion, and continued growth. May you embrace each moment with an open heart and the courage to honour your path, whatever it may hold. 🥂✨🌸

Here's to a new year which will definitely bring us all kinds of challenges, experiences and weather! And, remember it might even turn out to be okay! 😉

Photos from Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun's post 23/10/2024

GJÖF EN EKKI GREMJA 💗Mikið var gaman að fá að deila minni sögu og reynslu með starfsfólki Póstsins í tilefni Bleika dagsins. 🎀

GIFTS, NOT GRIEVANCES 💗 How wonderful it was to share my story and experience with the people at Iceland Post today celebrating Pink October, breast cancer awareness month. 🎀

Ég, um mig, frá mér, til mín - Námskeið — Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun 18/09/2024

Ég er að fara af stað með fjögurra vikna námskeið fyrir konur sem vilja rými og verkfæri til að hægja á huganum og slaka á.

Frekari upplýsingar og skráning á

Ég, um mig, frá mér, til mín - Námskeið — Vala Ósk - Öðruvísi markþjálfun Fjögurra vikna námskeið fyrir konur sem vilja fá rými og verkfæri til að hægja á huganum, tengjast líkama og tilfinningum og slaka á. Hver tími er stútfullur af sjálfsmildi, kyrrð og forvitni um eigin líðan.

Want your school to be the top-listed School/college in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hlíðasmári 14/Jarðhæð
Kópavogur
201