Snælandsskóli

Snælandsskóli Snælandsskóli er staðsettur Kópavogsmegin í Fossvoginum. Þar stunda nám rúmlega 400 yndislegir nemendur undir handleiðslu frábærs starfsfólks.

Degi íslenskrar náttúru fagnaðÍ dag var degi íslenskrar náttúru (sem er opinberlega 16. september) fagnað í skólanum og ...
17/09/2026

Degi íslenskrar náttúru fagnað

Í dag var degi íslenskrar náttúru (sem er opinberlega 16. september) fagnað í skólanum og voru fyrstu fjórir tímar dagsins helgaðir fjölbreyttum verkefnum, útiveru, leikjum og fræðslu. Dagskráin var ólík eftir aldursstigum en alls staðar var áhersla lögð á samveru, hreyfingu og tengsl við náttúruna.

Á yngsta stigi hófst dagurinn á fræðslu og umræðum um náttúruna. Nemendur unnu síðan skapandi verkefni undir leiðsögn kennara. Að því loknu voru stöðvar kynntar og eftir frímínútur héldu bekkirnir í stöðvafjör við Aparóló. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum leikjum og verkefnum, meðal annars kubbum, fótlabolta, ærslabelg, boltaleikjum og „snú snú og sipp“. Markmiðið var að eiga skemmtilega stund saman og njóta útiverunnar.

Á miðstigi hófst morguninn á mætingu og manntali áður en hóparnir hittust. Síðan tók við dagskrá undir yfirskriftinni „Nesti, leikir og fjör“. Nemendur fóru út, nutu samverunnar og tóku þátt í leikjum og verkefnum með hópnum sínum.

Unglingastigið hélt út fyrir skólalóðina. Eftir mætingu og manntal héldu nemendur að Gerðarsafni og tóku síðan þátt í Náttúruáskorun á svæðinu í kringum Borgarholtið. Þar fengu þeir tækifæri til að takast á við verkefni tengd náttúrunni og nærumhverfinu áður en haldið var aftur í skólann.

Dagurinn bauð því upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Nemendur fengu að læra um náttúruna, hreyfa sig, vinna saman og njóta útiveru og samveru – við hæfi á degi íslenskrar náttúru

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Igló í septemberFélagsmiðstöðin Igló er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístu...
09/09/2026

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Igló í september

Félagsmiðstöðin Igló er starfrækt allt skólaárið og er undir stjórn Frístundadeildar hjá Kópavogsbæ. Félagsmiðstöðin er staðsett í Snælandsskóla. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að bjóða upp á markvisst frístunda- og forvarnarstarf undir handleiðslu fagfólks.

Forstöðumaður: Sigurður Pálmarsson

Treyjudagurinn Í dag klæddust nemendur og starfsfólk skólans uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamei...
04/09/2026

Treyjudagurinn

Í dag klæddust nemendur og starfsfólk skólans uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Treyjudagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil og er nú haldinn hér á landi.

Börn með krabbamein, styrktarfélag barna með krabbamein og fjölskyldna þeirra, stendur að deginum. Félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.

Með þátttökunni sýnum við samstöðu og stuðning við mikilvægt málefni.

Matseðill í septemberGrænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara.
31/08/2026

Matseðill í september

Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara.

Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara.
27/08/2026

Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara.

Skólasetning og upphaf vetrarstarfsNemendur í 1. bekk mættu í skólann fyrir og eftir helgi ásamt foreldrum sínum í viðta...
25/08/2026

Skólasetning og upphaf vetrarstarfs

Nemendur í 1. bekk mættu í skólann fyrir og eftir helgi ásamt foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara. Í tilefni skólabyrjunar fengu þau rós til að fagna þessum merku tímamótum.

Í morgun mættu svo nemendur annarra árganga ásamt foreldrum sínum til skólasetningar í sal skólans. Að skólasetningu lokinni var foreldrum boðið á námskynningu í stofum með kennurum, á meðan nemendur nutu góða veðursins úti.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 26. ágúst kl. 8:30 í öllum árgöngum.

Frístund opnar einnig miðvikudaginn 26. ágúst.

Skólasetning og kennslaTímasetningar á skólasetningu sem verður þriðjudaginn 25. ágúst eru eftirfarandi:1. bekkur verður...
12/08/2026

Skólasetning og kennsla

Tímasetningar á skólasetningu sem verður þriðjudaginn 25. ágúst eru eftirfarandi:

1. bekkur verður áfram í viðtölum hjá umsjónarkennurum.

Kl. 8:30. 2. og 3. bekkur, námskynning fyrir foreldra í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal. Nemendur fara út að leika ásamt skólaliðum á meðan.

Kl. 9:30. 4.-5. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal. Nemendur í 4. bekk fara út að leika ásamt skólaliðum á meðan.

Kl. 10:30. 6.-8. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.

Kl. 11:30. 9. -10. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.

Frístund verður opin 25. ágúst frá kl. 13:30 fyrir þá nemendur sem eru þar skráðir. Breyting frá því sem var aður auglýst til að samræma opnunartíma milli skóla í Kópavogi.



Kennsla hefst svo skv. stundatöflu miðvikudaginn 26. ágúst.

Gleðilegt sumar!Starfsfólk Snælandsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar samstarfið á li...
16/06/2026

Gleðilegt sumar!

Starfsfólk Snælandsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar samstarfið á liðnu skólaári.
Við hlökkum til að sjá ykkur hress og endurnærð næsta haust!

Skrifstofa skólans verður lokuð frá 22. júní til 4. ágúst.

Skólaslit hjá nemendum í 1.–9. bekkÍ morgun fóru fram skólaslit hjá nemendum í 1.–9. bekk. Nemendur í 1.–6. bekk komu sa...
10/06/2026

Skólaslit hjá nemendum í 1.–9. bekk

Í morgun fóru fram skólaslit hjá nemendum í 1.–9. bekk. Nemendur í 1.–6. bekk komu saman í sal skólans þar sem þeir tóku við vitnisburði vetrarins við hátíðlega athöfn. Nemendur í 7.–9. bekk söfnuðust síðan saman í gamla íþróttasalnum áður en þeir héldu í heimastofur sínar til að taka við vitnisburði sínum.

Við athöfnina var skólasöngurinn sunginn af miklum krafti við undirleik Margrétar Thoroddsen tónlistarkennara og skapaði það hlýlega og hátíðlega stemningu.

Kristín Pétursdóttir, deildarstjóri yngsta- og miðstigs, og Brynjar Marinó Ólafsson skólastjóri ávörpuðu nemendur og kvöddu þá með hlýjum orðum. Þau þökkuðu nemendum fyrir veturinn sem er að líða, hvöttu þau til að njóta sumarsins og óskuðu þeim góðs gengis á komandi tímum.

Með skólaslitunum lýkur enn einu skólaári sem einkenndist af fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Við óskum öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og hlökkum til að sjá þau aftur að hausti.

Glæsileg útskriftarhátíð 10. bekkjar í SnælandsskólaÞann 9. júní fór fram glæsileg útskriftarhátíð 10. bekkjar í Snæland...
10/06/2026

Glæsileg útskriftarhátíð 10. bekkjar í Snælandsskóla

Þann 9. júní fór fram glæsileg útskriftarhátíð 10. bekkjar í Snælandsskóla þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk komu saman til að fagna merkilegum tímamótum við lok grunnskólagöngu nemenda.

Hátíðin hófst með fallegum tónlistaratriðum þegar Þórunn og Þuríður Hekla fluttu lögin Flower Duet og Remember Me á klarinett og þverflautu. Flutningurinn skapaði hátíðlega og hlýlega stemningu sem setti tóninn fyrir dagskrána.

Að því loknu flutti Brynjar Marinó Ólafsson skólastjóri ávarp þar sem hann fór yfir helstu áfanga skólaársins, hrósaði nemendum fyrir árangur þeirra og óskaði þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Fulltrúar útskriftarnema, þær Tinna Líf, Hrafnhildur Ýr, Gyða Matthildur og Þórunn, fluttu einlæga og áhrifamikla ræður. Þar rifjuðu þær upp eftirminnilegar stundir úr skólagöngunni, þökkuðu kennurum og starfsfólki fyrir stuðninginn í gegnum árin og horfðu bjartsýnar til framtíðarinnar.

Tónlistin var áfram í öndvegi þegar Marel flutti lagið Down at the Drive-In á tenórsaxófón og vakti flutningurinn verðskuldaða athygli gesta.

Sjálf útskriftin fór síðan fram við virðulegt og hátíðlegt andrúmsloft þar sem nemendur tóku við útskriftarskjölum sínum. Á þessari stundu mátti finna bæði gleði yfir áfanganum sem náðst hafði og söknuð yfir því að kveðja samferðafólk eftir mörg ár saman í skólanum.

Síðar í dagskránni flutti Gyða Matthildur lagið We’ll Meet Again af mikilli innlifun.

Hátíðinni lauk með hlýjum kveðjuorðum og heilræðum frá stjórnendum skólans. Að því loknu voru veitingar bornar fram og gafst gestum tækifæri til að eiga notalega samverustund og fagna þessum mikilvæga áfanga með útskriftarnemum.

Snælandsskóli óskar útskriftarnemum sínum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar á nýjum leiðum.

Address

Víðigrund
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:45
Tuesday 07:45 - 15:45
Wednesday 07:45 - 15:45
Thursday 07:45 - 15:45
Friday 07:45 - 15:45

Telephone

+3544414200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Snælandsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share