26/03/2026
Því miður virðist tölvupóstur ekki hafa borist til allra foreldra í gær vegna veðurs og biðjumst við velvirðingar á því. En hér er það sem stóð í póstinum.
Tilmæli almannavarna eru að allir sem mögulega geta haldi sig heima í fyrramálið og fram að hádegi. Halda á þó skólum opnum fyrir framlínustarfsfólk sem verður að mæta til vinnu (starfsfólk spítala, slökkvilið, sjúkraflutningamenn o.s.frv.).
Arnarskóli verður því opinn í fyrramálið, en algjör lágmarksmönnun verður í húsi.
Hefðbundið skólastarf hefst þegar viðvörun lýkur, klukkan 13. Þið megið líka gjarnan láta vita ef barnið ykkar mætir þá í skólann.
____________________________________________
Unfortunately, it seems that the email did not reach all parents yesterday due to the weather, and we apologize for that. But here is what was in the email.
The recommendation from Almannavarnir is that everyone who possibly can, should stay at home tomorrow morning and until noon. However, schools are to remain open for frontline workers who must go to work (hospital staff, firefighters, paramedics, etc.).
Therefore, Arnarskóli will be open tmorning, but there will only be minimal staffing in the building.
Note that transportation services will likely not be operating while the warning is in effect.
Regular school activities will resume once the warning ends, at 13:00 . We ask you to let us know if your child will be attending today
FRÉTTATILKYNNING FRÁ AÐGERÐASTJÓRN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS – english below
Samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofunnar eru spár að ganga eftir og má gera ráð fyrir að veðrið gangi niður fljótlega eftir hádegið á höfuðborgarsvæðinu. Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi líkt og komið hefur fram. Leik- og grunnskólar eru opnir en með lágmarksopnun og með fáu starfsfólki og einungis gert ráð fyrir þeim sem nauðsynlega þurfa að mæta með börn sín í grunn- og leikskóla. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun gengur yfir. Minnt er á að lokað er fyrir umferð á Hellisheiði og á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Reykjanesbraut er á óvissustigi til hádegis og gæti lokast með stuttum fyrirvara.
Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima á veðrið gengur yfir, en appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til kl. 13.
Press Release
According to the latest information from the Icelandic Met Office, forecasts are being confirmed and weather conditions are expected to deteriorate shortly after noon in the Capital Region. Disruptions to preschool and primary school operations will occur as previously announced. Preschools and primary schools are open but operating with minimal staffing, and attendance is only expected from those who absolutely need to bring their children in. Regular preschool, primary school, and after-school activities will resume once the weather warning has passed.
It is noted that the road over Hellisheiði and the road to Vesturland via Kjalarnes are closed to traffic. Reykjanesbraut is on an uncertainty level until noon and may close with short notice.
We want to reiterate that people should stay home while the weather passes. An orange weather warning is in effect until 1:00 PM.
https://www.vedur.is/vidvaranir
https://www.vegagerdin.is/