Talþjálfun Reykjavíkur

Talþjálfun Reykjavíkur Talþjálfun Reykjavíkur sinnir greiningum, meðferð og ráðgjöf vegna margvíslegra tal-, mál-

Anna María Gunnarsdóttir: [email protected]
Berglind Bjarnadóttir: [email protected]
Bjarnfríður Leósdóttir: [email protected]
Bryndís Gudmundsdottir: [email protected],
Erla Agnes Guðbjörnsdóttir: [email protected]
Hildur Rut Sigurbjartsdóttir: [email protected]
Íris Wigelund Pétursdóttir: [email protected]
Jóhanna Einarsdóttir: [email protected]
Jónína Rannveig Ingimundardóttir: [email protected]
Logi Pálsson: [email protected]
Ragnar Hjörvar Hermannsson: [email protected]
Sigríður Ásta Vigfúsdóttir: [email protected]
Silja Jóhannsdóttir: [email protected]
Sólveig Arnardóttir: [email protected]

26/03/2026

🌪️❄️Ekki verður svarað í símann í dag fyrir hádegi í dag vegna veðurs🌪️❄️🟠 Fólki er bent á að hafa samband við viðkomandi talmeinafræðing ef þörf er á. Njótum þess að vera inni í hlýjunni, spjalla saman og lesa skemmtilega bók📖📚 Gott tilefni í dag að spá í fjölbreyttum veður-orðaforða. Orð eins og snjókoma, úrhelli, vindstig, úrkoma, skúrir, slydduél, stórhríð, veðurviðvörun og illviðri eru dæmi um orð sem mætti fara yfir í dag á meðan versta veðrið gengur yfir😊 ❄️🌪️🌧️💨☂️💦

Virkilega áhugaverð grein eftir Álfhildi Þorsteinsdóttur talmeinafræðing sem hún skrifaði í tilefni dagsins.
06/03/2026

Virkilega áhugaverð grein eftir Álfhildi Þorsteinsdóttur talmeinafræðing sem hún skrifaði í tilefni dagsins.

Málþroskaröskun DLD (Developmental Language Disorder) er algeng taugaþroskaröskun sem veldur miklum erfiðleikum við að nota og/eða skilja tungumálið en um það bil eitt af hverjum 14 börnum glímir við DLD.

Dagur Evrópuþjálfunar er í dag, 6. mars. Talmeinafræðingar sinna fjölbreyttum og mikilvægum störfum.
06/03/2026

Dagur Evrópuþjálfunar er í dag, 6. mars. Talmeinafræðingar sinna fjölbreyttum og mikilvægum störfum.

Dagur vitundarvakningar um apraxíu er í dag.
14/05/2025

Dagur vitundarvakningar um apraxíu er í dag.

🔸Myndun málhljóðanna 🔸Hljóðaklettar Lubba gefa vísbendingu um hvenær börn tileinka sér málhljóðin.Mikilvægt er að hafa í...
20/02/2025

🔸Myndun málhljóðanna 🔸
Hljóðaklettar Lubba gefa vísbendingu um hvenær börn tileinka sér málhljóðin.
Mikilvægt er að hafa í huga að börn eru misfljót að tileinka sér málhljóðin og ekki þarf að vera um seinkun í framburði að ræða þótt barnið nái ekki að fylgja dæmigerðri tileinkunarröð. 

Góð ráð varðandi framburð og íslensku málhljóðin:
🌸Leikum með hljóðin - Lubbi finnur málbein og Lærum og leikum með hljóðin eru tilvalin til að æfa og leika með íslensku málhljóðin.

🌸Endurtökum leiðrétt það sem barnið segir svo barnið heyri alltaf réttan framburð orðanna (barn: hvar er gúkkan mín? fullorðinn: Hér er dúkkan þín). Gott er að leggja áherslu á hljóðið sem barnið myndaði rangt og jafnvel gera táknið fyrir hljóðið með (hvort heldur sem er stuðst við Lubba eða Lærum og leikum með hljóðin). Þá bæði heyrir barnið rétta hljóðmyndun og sér táknið sem hjálpar til við að ná réttri hljóðmyndun og yfirfærslu í samfellt tal.

🌸Leikum með rím. Finnum orð sem ríma og börnum finnst líka oft gaman að “bulluríma” og það er oft skemmtilegt, fyndið og góð samverustund.

🌸Þegar börn byrja að sýna bókstöfunum áhuga er gott að tala bæði um hvað stafurinn heitir og hvað stafurinn segir (stafurinn B (bé) segir b-b-b-b, stafurinn í segir ííííí).

🌸Leikum með hljóðin og bókstafina í orðum: 
☀️Hlusta eftir hvort ákveðið hljóð sé í orði, t.d. fyrsti stafurinn í nafni barnsins og/eða annarra í kringum barnið.
☀️Hvað er fyrsta hljóðið í sól? (Hér er gott að lengja fyrsta hljóðið fyrir þau börn sem eru að byrja að átta sig á stöfunum: sssssól). 
☀️Fyrir eldri börn: hvað er síðasta hljóðið í sól? Hvaða orð er ég að segja: s-ó-l (hér er mikilvægt að segja hljóðið sem bókstafurinn stendur fyrir).

Gleðilega hátíð 🎄
24/12/2024

Gleðilega hátíð 🎄

Óskilamunir desember 2024
19/12/2024

Óskilamunir desember 2024

Jóladagatöl og tölustafirnir 🔢🎄🎅
10/12/2024

Jóladagatöl og tölustafirnir 🔢🎄🎅

Tímahugtökin í gær, í dag, á morgun 🗓️Börn geta átt erfitt með að átta sig á tímahugtökum. Tilvalið er að nýta jóladagat...
01/12/2024

Tímahugtökin í gær, í dag, á morgun 🗓️
Börn geta átt erfitt með að átta sig á tímahugtökum. Tilvalið er að nýta jóladagatöl og íslensku jólasveinana til að nota þessi hugtök með börnunum og ná fram mörgum endurtekningum🎄🎅

Vissir þú þetta um málþroskaröskun DLD?
27/11/2024

Vissir þú þetta um málþroskaröskun DLD?

Address

Hlíðasmári 14
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545535030

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Talþjálfun Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share