Smáraskóli

Smáraskóli Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur. Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal. Smáraskóli er grunnskóli með um 430 nemendur í 1.-10. bekk.

Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal í fallegu umhverfi nálægt íþróttavelli Kópavogs, Fífunni og Kópavogslæk. Skólinn leggur m.a. áherslu á uppeldi til ábyrgðar, heilsueflingu og umhverfismennt. Skólinn er einnig þekktur fyrir útivistarátak sitt og blómlegt tónlistarlíf. Einkunnarorð skólans eru; virðing, vöxtur, viska og víðsýni. Skólastjóri er Börkur Vígþórsson, aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri 6.- 10. bekkja er Kristín Sigurðardóttir. Deildarstjóri 1. - 5. bekkja er Emilía Sigurðardóttir. Deildarstjóri stoðþjónustu er Heiða Gunnarsdóttir. Forstöðumaður frístundaheimilisins Drekaheima er Jónína Sveinbjarnardóttir og forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þebu er Guðrún Svava Baldursdóttir.

Við erum öll í sama liði 🥰Það var líflegt og lítríkt um að litast í Smáraskóla í dag, þar sem nemendur og starfsfólk tók...
04/09/2026

Við erum öll í sama liði 🥰

Það var líflegt og lítríkt um að litast í Smáraskóla í dag, þar sem nemendur og starfsfólk tóku þátt í Treyjudeginum, til stuðnings börnum með krabbamein.

Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.

Með Treyjudeginum bætist Ísland í hópinn þar sem við stöndum með börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. ❤️

Laugavegsganga 8. bekkjar ⛰8. bekkur Smáraskóla gengur nú Laugaveginn í 30. skiptið. Þetta er frábær hefð, sem hristir v...
28/08/2026

Laugavegsganga 8. bekkjar ⛰

8. bekkur Smáraskóla gengur nú Laugaveginn í 30. skiptið.
Þetta er frábær hefð, sem hristir vel saman hópinn í upphafi skólaárs og þroskar, bætir og kætir!

Gangan tekur fjóra daga en gist er í skálum Ferðafélags Íslands í Hrafntinnuskeri, Álftavatni og Emstrum. Krakkarnir, ásamt umsjónarkennurum sínum, ganga allan Laugaveginn - vaða yfir jökulár og upp og niður um fjöll og firnindi, alls 55 km. Þau ganga með bakpoka með nesti en trússbíll ferjar farangurinn. Þess má geta að undanfarin 15 ár hefur Klemenz Geir Klemenzson, Klemmi, verið bílstjórinn í þessum ferðum.

Ótrúlega mikið afrek og nemendur (og kennarar) mega sannarlega vera stolt af sér. 💪

Kór Smáraskóla 🎶🎵Nú er kórastarfið að hefjast á ný eftir sumarfrí og við hvetjum alla nemendur sem hafa áhuga á að taka ...
27/08/2026

Kór Smáraskóla 🎶🎵

Nú er kórastarfið að hefjast á ný eftir sumarfrí og við hvetjum alla nemendur sem hafa áhuga á að taka þátt! Enda er stórskemmtilegt, þroskandi og nærandi að syngja saman í kór.

Barnakór Smáraskóla mun æfa á þriðjudögum kl. 13:30-14:30 og
Skólakór Smáraskóla mun æfa á fimmtudögum kl. 14:10-15:30.

Til þess að skrá nemenda í kórinn þarf að senda póst á Ástu kórstjóra: [email protected] 🎹

19/08/2026

Skólabyrjun í Smáraskóla skólaárið 2026-2027 ☀

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst. Skólastjóri mun hitta nemendur á sal og þeir eiga síðan stund með umsjónarkennurum þar sem farið verður yfir skipulag fyrstu daganna.
Foreldrar eru velkomnir á skólasetninguna með börnum sínum.

Skólasetning:
Nemendur í 2. bekk mæta kl. 9:00.
Nemendur í 3. – 4. bekk mæta kl. 9:30
Nemendur í 5.-7. bekk mæta kl. 10:30
Nemendur í 8.-10. bekk mæta kl. 11:15

Verðandi 1. bekkingar fá boð frá sínum umsjónarkennurum en þeir koma til viðtals ásamt foreldrum mánudaginn 24. eða þriðjudaginn 25. ágúst eftir atvikum.
Fyrsti skóladagur 1. bekkinga er miðvikudaginn 26. ágúst.

Kennsla hefst miðvikudaginn 26. ágúst samkvæmt stundaskrám.

Frístundin Drekaheimar opnar fyrir 1. bekk á skólasetningardag 25. ágúst kl. 13:30. Nánari upplýsingar um inntöku nemenda í 2. – 4. bekk koma frá stjórnendum Drekaheima

Gleðilegt sumarfrí 🌼Takk fyrir veturinn og njótið sumarsins ☀️Sjáumst kát og hress í haust 💛
09/06/2026

Gleðilegt sumarfrí 🌼

Takk fyrir veturinn og njótið sumarsins ☀️

Sjáumst kát og hress í haust 💛

Útskrift 10. bekkjar Útskrift 10. bekkjar fór fram í Hjallakirkju í gær við fallega og hátíðlega athöfn.Við í Smáraskóla...
09/06/2026

Útskrift 10. bekkjar

Útskrift 10. bekkjar fór fram í Hjallakirkju í gær við fallega og hátíðlega athöfn.
Við í Smáraskóla þökkum þessum frábæru krökkum fyrir árin þeirra hér í skólanum og óskum þeim velfarnaðar í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur, framtíðin er ykkar ✨

Hreyfifjör og ratleikur🤸‍♀️Á föstudaginn var mikið stuð hér í Smáraskóla þar sem allir skelltu sé út í hreyfifjör og rat...
08/06/2026

Hreyfifjör og ratleikur🤸‍♀️

Á föstudaginn var mikið stuð hér í Smáraskóla þar sem allir skelltu sé út í hreyfifjör og ratleik.

Nemendur létu smá votviðri ekki á sig fá og skemmtu sér vel við ýmsar þrautir 😃

05/06/2026

Útskrift 10. bekkjar verður mánudaginn 8. júní 17:00 - 19:00 í Hjallakirkju.
Samkomusalur skólans rúmar ekki útskriftarathöfnina með góðu móti og því bregðum við á það ráð að þessu sinni að fá salarkynni Hjallakirkju fyrir útskriftina okkar.

Skólaslit annarra árganga verða þriðjudaginn 9. júní í sal skólans.
Kl. 9:00 1.- 2. bekkur
kl. 9:45 3. - 4. bekkur
Kl. 10:30 5.- 7. bekkur
Kl. 11:15 8.- 9. bekkur

ATH að frístundaheimilið er opið eftir skólaslit fyrir þá sem þar eru skráðir samkvæmt sérstakri skráningu.

Fjallgöngur og útvistargleði ⛰️😁🌳Skóladagurinn var óhefðbundinn síðasta miðvikudag, en þá reimuðu allir á sig útiskóna o...
05/06/2026

Fjallgöngur og útvistargleði ⛰️😁🌳

Skóladagurinn var óhefðbundinn síðasta miðvikudag, en þá reimuðu allir á sig útiskóna og skelltu sér út til þess að njóta þess sem íslenska náttúran hefur upp á að bjóða.

Eldri nemendur fóru í fjallgöngur á nærliggjandi fjöll, Esjuna, Helgafell, Úlfarsfell og Búrfell, á meðan yngri nemendur rannsökuðu skóga, vötn og strendur.

Dagurinn var frábær í alla staði, gleðin og ekki síst stoltið yfir eigin afrekum, skein úr útiteknum andlitum.🤩

Stærðfræði spilastund 🎲8. bekkur fékk það skemmtilega verkefni að útbúa stærðfræðispil og í dag buðu þau krökkunum í 2. ...
02/06/2026

Stærðfræði spilastund 🎲

8. bekkur fékk það skemmtilega verkefni að útbúa stærðfræðispil og í dag buðu þau krökkunum í 2. bekk að spila með sèr. Úr varð frábær og fræðandi samverustund þessara árganga 😁🧩

Address

Dalsmári 1
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:30
Tuesday 07:45 - 15:30
Wednesday 07:45 - 15:30
Thursday 07:45 - 15:30
Friday 07:45 - 15:00

Telephone

+3544414800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Smáraskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share