08/09/2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ – Góðgerðahlaup Salaskóla:
Á morgun, miðvikudaginn 9. september tökum við í Salaskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ eins og við höfum gert í mörg ár. Íþróttakennarar
skipuleggja hlaupið en það fer fram í kennslulotu fyrir hádegi. Hlaupið tekur mislangan tíma eftir því hvaða vegalengdir verða fyrir valinu.
Eins og sl. 3 ár ætlum við í Salaskóla að útfæra hlaupið sem „Góðgerðahlaup Salaskóla“ og bjóða foreldrum og nærsamfélaginu að styrkja okkur við að hlaupa til góðs.
Þeir sem vilja styrkja gott málefni og hvetja hlauparana til góðra verka eru beðnir um að leggja styrkinn inn á reikning Salaskóla, 0536-14-750900, kt. 670601-3070. Upphæð styrks er valfrjáls en við óskum að lágmarki eftir kr. 500 per aðila/fjölskyldu, það er um
það bil ein króna í stuðning fyrir hvern nemanda Salaskóla.
Í ár ætlum við að styrkja Grænuhlíð – fjölskyldumiðstöð. Grænahlíð er sérhæft
fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0 til 25 ára og fjölskyldur þeirra. Í Grænuhlíð starfar þverfaglegt teymi meðferðaraðila sem leitast við að veita fjölskyldum og einstaklingum sérhæfða og heildræna meðferð óháð aldri. Lögð er áhersla á áfallamiðaða nálgun og tengslaeflandi meðferð til að efla farsæld barna.
Síðustu þrjú ár höfum við, með ykkar aðstoð, styrkt eftirfarandi góðgerðafélög:
2023 Styrktarfélag barna með krabbamein
2024 Minningarsjóður Bryndísar Klöru
2025 Downs félagið
Með fyrirfram þökkum fyrir stuðninginn og hvatninguna – og að hjálpa okkur að láta gott af okkur leiða!
Hlýjar hlaupakveðjur frá öllum í Salaskóla 💚🍀