09/09/2026
Arctic Young Chef keppnin á Íslandi var haldin í MK um helgina.
Undankeppni Arctic Young Chef, en keppnin er alþjóðleg og haldin á Íslandi, í Færeyjum, í Noregi og á Grænlandi. Aðalkeppnin verður svo haldin hér á Íslandi á næsta ári.
Það voru 7 keppendur sem kepptust um titillinn en Janus Þorsteinsson Roelfs, matreiðslunemi á Grand Hótel Reykjavík, stóð uppi sem sigurvegari eftir glæsilega frammistöðu. Aðalhráefni í keppninni voru svið og fersk tindabykkja. Janus stefnir á að ljúka náminu og taka sveinspróf í matreiðslu vorið 2027.
Það voru þeir Hermann Þór , Hinrik Carl og Ægir, kennarar við Hótel- og matvælaskólann, sem sáu um keppnina.
Dómnefndina skipuðu þeir Þráinn Freyr, Gunnar Karl, Enok Burkni, Ari Freyr og Gutti Winter, alþjóðlegur dómari frá Færeyjum.
Við þökkum kennurunum, dómurunum og svo Birni Skúlasyni, sem afhenti verðlaunin, kærlega fyrir þeirra aðkomu að keppninni og óskum Janusi innilega til hamingju með sigurinn.
Myndirnar tók Karl Petersson og eru þær birtar með góðfúslegu leyfi hans.
Undankeppnin í Færeyjum var haldin 22. ágúst og þar var Lassi Klein sigurveri.
Framundan er svo keppnin í Noregi sem verður haldin í Mosjoen 28. október.
Hægt er að fylgjast með Arctic Young Chef keppninni á Instagram:
https://www.instagram.com/arctic_young_chef/