12/09/2026
Stór tíðindi hjá okkur!
Við höfum keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi og hlökkum mikið til þess sem fram undan er.
Dale Carnegie heldur áfram sem sjálfstæð rekstrareining og vörumerki, en með félögin undir sama eignarhaldi skapast spennandi tækifæri til að nýta styrkleika beggja.
NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi. Unnur Magnúsdóttir segir engan missa vinnuna og félögin verði rekin sem eins konar systurfélög undir sama eignarhaldi. Unnur keypti reksturinn árið 2006 en hefur starfað á vegum Dale Carnegie í 25 ár. Hún segir um mikil tímamót að ræða.