Huðlæknastöðin - Rannsóknasíða

Huðlæknastöðin - Rannsóknasíða

Share

Erum að leita að einstaklingum með psoriasis Nú erum við að leita að einstaklingum með psoriasis, til að taka þátt í rannsókn á nýju lyfi.

Nánar á: http://www.cutis.is Sími: 520-4409

01/05/2019

VILT ÞÚ TAKA ÞÁTT Í KLÍNÍSKRI RANNSÓKN?
Óskað er eftir sjálfboðaliðum, heilbrigðum einstaklingum af báðum kynjum, á aldrinum 18 – 60 ára
Rannsókn á viðverutíma PreCold® / ColdZyme®

PreCold® / ColdZyme® munnúði dregur úr líkum á að fá kvef og getur hjálpað til við að stytta tímabil kvefeinkenna ef hann er notaður frá upphafi smits.
PreCold® / ColdZyme® er CE-merkt vara sem skráð er sem lækningatæki í flokki I.

Markmið rannsóknarinnar er að kanna þann tíma sem PreCold®/ColdZyme® er til staðar í munnholi notenda.

Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar og verður framkvæmd á Húðlæknastöðinni, Smáratorgi 1, Kópavogi.

Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Bárður Sigurgeirsson, sérfræðingur í húðsjúkdómum. Meðrannsakandi er Reynir Scheving, dr. í lyfjafræði hjá Zymetech.

Þátttakendur þurfa að vera almennt heilsuhraustir og skulu ekki hafa nein einkenni kvefs eða hálsbólgu. Þátttakendur mega ekki hafa notað PreCold / ColdZyme 24 klukkustundum fyrir þátttöku né neyta matar eða drykkjar um klukkustund fyrir þátttöku. Þátttaka tekur u.þ.b. 2-3 klukkustundir.

Þátttakendur munu úða PreCold® / ColdZyme® upp í sig samkvæmt leiðbeiningum og tekin verða sýni af slímhimnu munnhols með bómullarpinna með reglulegu millibili, fyrir og eftir úðun.

Ekki er talið að nein áhætta fylgi þátttöku í rannsókninni önnur en hugsanleg óþægindi við sýnatöku.

Þátttakendur fá að launum gjafapoka með vörum frá Zymetech að verðmæti um 10.000 kr.

Ef þú hefur áhuga á þátttöku eða vilt fá upplýsingar um rannsóknina, vinsamlegast hafðu samband við Sigríði Ólafsdóttur á tölvupóstfangið [email protected] eða í síma 520-4409.

Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa ekki skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Þeir sem taka þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án ástæðu.

Rannsóknin er studd af Enzymatica AB, móðurfélagi Zymetech ehf, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík.

Heimildir:
Clarsund, M., 2017, Evaluation of ColdZyme Mouth Spray for the Protection against Common Cold in Elite Athletes to Reduce Unwanted Absence from Training and Competition., Open Journal of Respiratory Diseases, p. 103-109.
Clarsund, M., U. Blom, and A. Gardulf, 2016, Evaluation of ColdZyme(R) Mouth Spray on prevention of upper respiratory tract infections in a boy with primary immunodeficiency: a case report: J Med Case Rep, v. 10, p. 302.
Clarsund, M., M. Fornbacke, L. Uller, S. L. Johnston, and C. A. m. Emanuelsson, 2017, A Randomized, Double-Blind, Placebo-Controlled Pilot Clinical Study on ColdZyme® Mouth Spray against Rhinovirus-Induced Common Cold: Open Journal of Respiratory Diseases, v. Vol.07No.04, p. 11.
Clarsund, M., and C. Persson, 2017, Evaluation of ColdZyme Mouth Spray against Common Cold in Elderly Care Personnel., Open Journal of Respiratory Diseases, p. 12-17.

1.4.24 02/03/2019

Óskað er eftir sjálfboðaliðum 18 ára og eldri til þátttöku í
klínískri lyfjarannsókn á meðferð við barnaexemi (ofnæmishúðbólgu, atopic dermatitis). Nánari upplýsing á síðu Húðlæknastöðvarinnar, eða í síma 5204409.

1.4.24 Óskað er eftir sjálfboðaliðum 18 ára og eldri til þátttöku íklínískri lyfjarannsókn á meðferð við ofnæmishúðbólgu (atopic dermatitis)Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar og verður framkvæmd á Húðlæknastöðinni, Smáratorg...

Forsíða | Húðlæknastöðin 29/01/2016

Ef þú þjáist af sveppasýkingu í tánöglum getur þú kíkt á heimasíðuna okkar. Við framkvæmum reglulega lyfjarannsóknir og erum að leita að þátttakendum til að taka þátt í slíkum rannsóknum. Þú getur kíkt á heimasíðuna okkar og fengið upplýsingar um nýjustu rannsóknirnar. Um þessar mundir erum við að framkvæma rannsókn á einstaklingum veð vægar sýkingar. Fleiri rannsóknir eru áætlaðar á næstunni.

Heimasíðan okkar:

http://www.cutis.is/isl/

Forsíða | Húðlæknastöðin

Forsíða 29/01/2016
Photos from Huðlæknastöðin - Rannsóknasíða's post 24/02/2014

Við vorum að hefja nýja rannsókn á sveppasýkingum í tánöglum. Sjá nánar hér: http://www.cutis.is

Photos from Huðlæknastöðin - Rannsóknasíða's post 24/02/2014

Við vorum að hefja nýja rannsókn á sveppasýkingum í tánöglum. Erum að leita að nýjum þátttakendum.
Nánari upplýsingar hér: http://www.cutis.is

Forsíða 20/06/2011

Á heimsíðu rannsóknarinnar getur þú gengið nánari upplýsingar

Forsíða Ath: Þó 1/6 þátttakenda fái lyfleysu í upphafi er heimilt að gefa þeim virkt lyf að 12 vikum liðnum hafi sjúkdómurinn ekki gengið til baka.

20. júní 2011 20/06/2011
20/06/2011

Hér getur þú fengið upplýsingar um klínískar rannsóknir sem eru í gangi á Húðlæknastöðinni. Þú getur einnig sent okkur fyrirspurnir. Um þessar mundir erum við að leita að einstaklingum með meðalslæman eða slæman psoriasis.

Want your school to be the top-listed School/college in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Húðlæknastöðin, Smáratorg 1
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00