14/04/2023
Mælum með að hlusta á Óttar okkar! Flott og þarft doktorsverkefni 🙌🏼
GEÐHEILSA UNGMENNA VERSNAÐ VERULEGA UNDANFARIN 10 ÁR
Óttar Guðbjörn Birgisson, aðjunkt og doktorsnemi í Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði, er fyrsti höfundur greinar sem var birt nýlega í tímaritinu Scandinavian Journal of Public Health.
Rannsóknin sem greinin vísar í, sýnir að marktækt samband er á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkanna hjá 15 ára stúlkum. Í rannsókninni er rýnt í breytingar á geðheilsu ungs fólks í upphafi 21. aldar. Óttar ræddi niðurstöður rannsóknarinnar í Speglinum á dögunum. Við mælum með ⤵
https://www.ruv.is/utvarp/spila/spegillinn/25249/7gpdc5/netsamskipti-og-gedheilsa-stulkna
📸Kristinn Ingvarsson
04/12/2022
Þuríður Helga er að vinna að afar spennandi doktors rannsókn þessa dagana 📝💡
Aflar nýrrar þekkingar til að bæta heilsu
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun
15/11/2022
Erlingur Jóhannsson fjallar hér um rannsóknir sínar - þar með talið Heilsuhegðun ungra Íslendinga.
Þáttur 2 í Vísindin og Við sem er á Hringbraut 💡
Sería 2 | Þáttur 2: Erlingur Sigurður Jóhannsson
15/11/2022
Við mælum með þessu 🙌🏼
HEILSUHEGÐUN UNGRA ÍSLENDINGA 2. þáttaröð komin í loftið 📣
Heilsuhegðun ungra Íslendinga er vísindahlaðvarp sem heldur áfram göngu sinni, um lifnaðarhætti ungs fólks hér á landi. Hlaðvarpið byggir á samnefndri langtímarannsókn vísindafólks við Háskóla Íslands og er markmið hlaðvarpsins að miðla áfram nýjum niðurstöðum á heilsuhegðun ungmenna hér á landi.
Fyrstu tveir þættir hljóðvarpsins eru komnir í loftið og munu þættirnir koma út nú vikulega til jóla.
📣1. þáttur - Skjánotkun ungmenna og áhrif á heilsu
Viðmælendur: Óttar Birgisson doktorsnemi og Bertrand Lauth læknir.
Hlusta hér ➡️ https://open.spotify.com/episode/67IIeukXFrGYfQvnzQcr4o
📣 2. þáttur - Skjárinn, foreldrahlutverkið og heilbrigð samskipti
Viðmælendur: Hildur Inga Magnadóttir foreldrafræðari og Eyrún Eggertsdóttir sálfræðingur.
Hlusta hér ➡️https://open.spotify.com/episode/3XJbHVNMkIkm5wlGSaUlRL
Lesa nánar um Vísindahlaðvarpið Heilsuhegðun ungra Íslendinga hér - https://www.hi.is/frettir/onnur_thattarod_af_heilsuhegdun_ungra_islendinga_komin_i_loftid
13/08/2022
Hvað er svefn og af hverju er hann svona mikilvægur?
Frábær grein eftir Rúnu Sif Stefánsdóttur, aðjúnkt við HÍ.
Setur þú svefninn í forgang?
„Þú getur sofið þegar þú ert dáin“ sagði rokkarinn Warren Zevon og virðist vera orðtak sem allmargir hafa tileinkað sér, allt frá lífsglöðum unglingum til hugsandi morgunhana. Undanfarin ár hefur ...
27/06/2022
„Það var mikill heiður að fá að taka þátt í ráðstefnu af þessari stærðar- og gæðagráðu. Grein okkar um svefn og námsárangur sem byggir á gögnum úr Heilsuhegðun ungra Íslendinga var valin til þátttöku úr hópi hundruða umsækjenda.“
Rúna Sif Stefánsdóttir, aðjúnkt við HÍ, flutti erindi á SLEEP-ráðstefnunni sem haldin var í Norður-Karólína í Bandaríkjunum nýverið. SLEEP er ein virtasta ráðstefna heims á sviði svefnrannsókna. Í ár var ráðstefnan tileinkuð klínískum svefnrannsóknum, svefnheilsu og svefnlækningum. Þúsundir lækna, hjúkrunarfræðinga og fræðimanna tóku þátt í ráðstefnunni að þessu sinni. 💤 💤
30/05/2022
👋 Hvernig getum við brugðist við svefnvanda barna og ungmenna?
👋 Hvað geta foreldrar gert?
👋 Hvað getur samfélagið gert?
Þegar stórt er spurt. Erlingur Jóhannesson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði, segir að margt sé hægt að gera til að bæta svefn barna og ungmenna.
Erlingur flutti erindi á ráðstefnunni SVEFN í Hörpu nýverið.
23/05/2022
🎓Tengsl hreyfingar og heilsu íslenskra ungmenna
Þuríður Helga Ingvarsdóttir er nýr doktorsnemi í rannsókninni Heilsuhegðun ungra Íslendinga. Þuríður er hjúkrunarfræðingur að mennt en hún lauk einnig meistaraprófi í heilbrigðisvísindum frá Háskólanum á Akureyri.
Í doktorsverkefninu skoðar hún breytingar á hreyfingu íslenskra ungmenna frá 7 til 18 ára aldurs og tengsl þeirra við líkamlega og andlega heilsu.
Þuríður stefnir á að verja doktorsverkefnið árið 2025.
Við bjóðum Þuríði innilega velkomna til starfa!
20/05/2022
Erlingur Jóhannsson, prófessor við HÍ, vill að hugað verði að fræðslu um skaðsemi skjánotkunar strax í ungbarnavernd. Sífellt fleiri börn leita á barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna skjáfíknar en fíkn þarf ekki að vera til staðar til að skjánotkun hafi neikvæð áhrif á heilsu barna og unglinga.
Rætt var við Erling í Speglinum á RÚV.
👇
https://www.ruv.is/utvarp/spila/spegillinn/25249/7gpd62/heilsa-og-skjair-ungmenna
17/05/2022
Gleðifréttir🎈
Þuríður Ingvarsdóttir hlaut styrk úr Doktorsstyrkjasjóði HÍ í síðustu viku. Þuríður mun vinna að rannsókn á líkamlegri og andlegri heilsu ungs fólks og hreyfanleika. Leiðbeinandi Þuríðar er Erlingur Jóhannsson og stuðst verður við gögn úr Heilsuhegðun ungra Íslendinga.
Við óskum Þuríði innlega til hamingju og bjóðum hana hjartanlega velkomna í okkar flotta rannsóknarhóp.🙌
Hátt í 40 doktorsnemar fá styrki úr sjóðum skólans
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun
30/04/2022
🤷♂️ Hvernig getum við brugðist við svefnvanda barna og ungmenna?
Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði við HÍ og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Heilsuhegðun ungra Íslendinga flytur erindi um svefnvanda barna og unglinga á ráðstefnunni SVEFN í Hörpu þann 2. maí næstkomandi.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er hinn virti vísindamaður Matthew Walker, prófessor við Berkeley-háskóla í Bandaríkjunum og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði.
Fylgist með!
SVEFN
Harpa - Eldborg || 2. maí 2022