21/09/2026
Breytingar og persónuleg þróun
Við höfum öll upplifað breytingar í lífinu, stórar og smáar, sumar sem við veljum sjálf og aðrar sem við höfum ekkert um að segja. Við tölum mikið um breytingar í fyrirtækjum og á vinnustöðum, um breytingastjórnun, mótspyrnu, innleiðingu og mikilvægi þess að fólk skilji tilgang breytinga.
En hvað með breytingarnar sem eiga sér stað innra með okkur sjálfum?
Mér finnst reyndar persónuleg þróun betra orð yfir þær breytingar, því fyrir mér snýst persónuleg þróun meðal annars um að styrkja okkar eigin sjálfsforystu.
Að þekkja sjálfan sig nógu vel til að geta valið hvernig lífi við viljum lifa og taka ábyrgð á því vali ❤️🙏
Ég skrifaði nokkur orð einmitt um persónulega þróun og sjálfsforystu - ef þú vilt kafa dýpra mæli ég með að kíkja á greinina 🍀
Persónuleg þróun snýst ekki bara um að breyta ytri aðstæðum, skipta um vinnu, flytja, enda samband eða taka stórar ákvarðanir. Hún snýst um að þora að horfa inn á við, skoða eigin hugsanir, hegðun, skugga og mynstur og spyrja sig af hreinskilni: Hvað af þessu þjónar mér vel...