Öxarfjarðarskóli

Öxarfjarðarskóli Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli við Öxarfjörð og staðsettur í Lundi.

25/06/2026

Enn leitum við að kennara. Ert það þú?

Vilt þú slá til og koma að kenna með okkur í Öxarfjarðarskóla næsta vetur?
Öxarfjarðarskóli er fámennur samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2026-27, þar af um 40 nemendur í grunnskóladeild.
Um er að ræða í samkennslu árganga í þremur deildum; yngri deild (1.-4.b), miðdeild (5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b).
Skólinn er staðsettur í fallegu og gróðursælu umhverfi við Öxarfjörð þar sem starfar góður og samhentur hópur fólks eftir gildum skólans sem eru vinátta, virðing, jákvæðni og metnaður.
Leitað er eftir umsjónarkennara í teymi á mið-og unglingastig í 100% stöðu með sérstaka áherslu á íslensku og dönsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjónarkennsla í teymi
• Samstarf við foreldra um nám og velferð barna
• Samstarf innan skólans að faglegum málefnum

Menntunar- og hæfniskröfur

• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
• Áhugi á teymisvinnu og teymiskennslu
• Áhugi á að starfa með börnum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum nemenda
• Ábyrgð og stundvísi

Umsóknir skulu sendar ásamt ferilskrá, afrit af prófskírteinum og meðmælum til skólastjóra á netfangið [email protected] sem veitir einnig allar frekari upplýsingar. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

Við óskum eftir að ráða starfsmann í ræstingar á skólahúsnæðinu frá og með næsta skólaári 👇
19/06/2026

Við óskum eftir að ráða starfsmann í ræstingar á skólahúsnæðinu frá og með næsta skólaári 👇

Vilt þú slá til og koma að kenna með okkur í Öxarfjarðarskóla næsta vetur?Öxarfjarðarskóli er fámennur samrekinn leik- o...
11/06/2026

Vilt þú slá til og koma að kenna með okkur í Öxarfjarðarskóla næsta vetur?

Öxarfjarðarskóli er fámennur samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2026-27, þar af um 40 nemendur í grunnskóladeild. Um er að ræða í samkennslu árganga í þremur deildum; yngri deild (1.-4.b), miðdeild (5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b). Skólinn er staðsettur í fallegu og gróðursælu umhverfi við Öxarfjörð þar sem starfar góður og samhentur hópur fólks eftir gildum skólans sem eru vinátta, virðing, jákvæðni og metnaður.

Leitað er eftir umsjónarkennara í teymi á mið-og unglingastig í 100% stöðu með sérstaka áherslu á íslensku og dönsku.

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Umsjónarkennsla í teymi.
- Samstarf við foreldra um nám og velferð barna.
- Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
- Áhugi á teymisvinnu og teymiskennslu.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af
mismunandi þörfum nemenda.
- Ábyrgð og stundvísi.
- Hreint sakavottorð.

Með umsókn skal senda afrit af prófskírteinum og meðmæli.

Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri á [email protected]

Umsóknarfrestur er til 16.júní.

Sækja um hér:

Laus störf hjá Norðurþingi

Stéttarfélag Húsavíkur færði skólanum veglegan styrk í vikunni sem nýttur verður til kaupa á 12 míkrófónum/nælum fyrir v...
11/06/2026

Stéttarfélag Húsavíkur færði skólanum veglegan styrk í vikunni sem nýttur verður til kaupa á 12 míkrófónum/nælum fyrir viðburði á vegum leik- og grunnskóladeilda t.d. árshátíð.
Við erum þeim afskaplega þakklát fyrir stuðninginn sem kemur sér afar vel

Á síðasta aðalfundi Starfsmannafélags Húsavíkur sem fram fór í byrjun júní var samþykkt að styrkja leik- og grunnskóla í Norðurþingi með fjárframlögum til kaupa á búnaði fyrir nemendur. Félagið hefur þegar afhent Öxarfjarðarskóla 12 hljóðnema/míkrafón nælur. Tilgang...

Skólaslit Öxarfjarðarskóla fóru fram síðastliðinn föstudag 22. maí. Þrír nemendur úr 10.bekk voru útskrifaðir auk 5 elst...
29/05/2026

Skólaslit Öxarfjarðarskóla fóru fram síðastliðinn föstudag 22. maí. Þrír nemendur úr 10.bekk voru útskrifaðir auk 5 elstu barna Lundarkots og fengu öll þau birkitré að gjöf. Þá voru tveir starfsmenn kvaddir.
Nánari umfjöllun og myndir má sjá á heimasíðu skólans.
Gleðilegt sumar og takk fyrir samstarfið í vetur!

Föstudaginn 22.maí var Öxarfjarðarskóla slitið þetta skólaárið. Þá voru 3 nemendur úr 10. bekk útskrifaðir ásamt 5 börnum úr Lundarkoti sem hefja nám við s

28/05/2026

Árbók Öxarfjarðarskóla 2026 er komin glóðvolg beint úr prentun! Hún er til sölu á litlar 2000 kr sem renna beint í nemendasjóð. Hafið samband við Rakel Önnu á messenger eða á netfangið [email protected]. Reikningsnúmer nemendasjóðs 1110-05-250318 kt 691221-0830

Lausar kennarastöður!Enn leitum við að kennurum til starfa við skólann okkar fyrir næsta vetur. Um er að ræða tvær stöðu...
06/05/2026

Lausar kennarastöður!
Enn leitum við að kennurum til starfa við skólann okkar fyrir næsta vetur.
Um er að ræða tvær stöður umsjónarkennara á eldra stigi - áhersla á íslensku- og dönskukennslu, umsjónarkennara á yngsta stigi, íþrótta-og sundkennara auk smíðakennara.
Öxarfjarðarskóli er teymisvinnuskóli og er í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri um innleiðingu leiðsagnarnáms.

Öxarfjarðarskóli er fámennur, samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur, þar af 40 grunnskólanemendur. Í skólanum sem er staðsettur í Lundi í Ö

Matseðill maímánaðar er kominn á síðu skólans 😊
04/05/2026

Matseðill maímánaðar er kominn á síðu skólans 😊

Öxarfjarðarskóli í Skólahreysti! Nemendur úr unglingadeild skólans eru í fyrsta skipti að taka þátt í Skólahreysti! Þau ...
29/04/2026

Öxarfjarðarskóli í Skólahreysti!
Nemendur úr unglingadeild skólans eru í fyrsta skipti að taka þátt í Skólahreysti! Þau keppa á Akureyri seinnipartinn í dag og verður sjónvarpað beint á RÚV kl. 17:00. Við hvetjum alla til að fylgjast með.
Það var glaður hópur keppenda og stuðningsliðs ásamt kennurum og þjálfara lagði af stað um hádegisbilið í dag og skartaði nýjum skólapeysum með einkennismerki skólans á bakinu 🥳
ÁFRAM ÖXARFJARÐARSKÓLI!

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn
23/04/2026

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn

Address

Lundur
Kópasker
671

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Öxarfjarðarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share