Hvolsskóli

Hvolsskóli Hvolsskóli á Hvolsvelli. Opnunartími skrifstofu er frá kl. 8-16 mánudaga til fimmtudaga en 8-14 á föstudögum.

Dagur íslenskrar náttúru🍂
18/09/2026

Dagur íslenskrar náttúru🍂

Minnum á samninginn við Samtökin ´78
14/09/2026

Minnum á samninginn við Samtökin ´78

Okkur langar að minn á samninginn sem Rangárþing eystra, í samstarfi við BS Odda, gerði samning við Samtökin ´78. Þessi samningur tryggir meðal annars íbúum ráðgjöf frá samtökunum og nemendum fræðslu. „Hnappur“ er á heimasíðu Hvolsskóla sem flytur ykkur á eftirfarandi s...

🥰👏
01/09/2026

🥰👏

Í dag gengur nemendur og starfsmenn Hvolsskóla ásamt nokkrum foreldrum á tinda haustsins. Elsta stig gekk á Þríhyrning, miðstig á Þórólfsfell, 2. -4. bekkur yfir Vatnsdalsfjall og 1. bekkur á Stóra-Dímon. Göngufólk fékk ágætis veður og gengu göngurnar mjög vel. Gaman að segja...

Fjallgöngur á morgun ⛰️
26/08/2026

Fjallgöngur á morgun ⛰️

Á morgun stefnum við á að fara í árlegar fjallgöngur með allan skólann. 1. bekkur gengur á Stóra-Dímon. Lagt af stað frá skólanum kl. 9:00 2.-4. bekkur gengur yfir Vatnsdalsfjall. Lagt af stað frá skólanum kl. 8:30 5.-7. bekkur gengur á Þórólfsfell. Lagt af stað frá skólanum...

Skólasetning Hvolsskóla mánudaginn 24. ágúst kl. 11 :)Hlökkum til að sjá ykkur!
19/08/2026

Skólasetning Hvolsskóla mánudaginn 24. ágúst kl. 11 :)
Hlökkum til að sjá ykkur!

Skólasetning Hvolsskóla fer fram í íþróttahúsinu mánudaginn 24. ágúst kl. 11. Að setningu lokinni fara nemendur ásamt foreldrum sínum inn í sínar kennslustofur með kennurum sínum. Ef foreldrar barna í skólaakstri þurfa að nýta bíl þennan dag biðjum við þá að hafa samband...

Hafið það gott í sumar og takk fyrir veturinn :)
12/06/2026

Hafið það gott í sumar og takk fyrir veturinn :)

Þann 26. maí síðastliðinn fóru fram skólaslit Hvolsskóla þar sem 231 barn lauk vinnu vetrarins og hélt út í sumarið. Þann sama dag fór einnig fram útskrift 10. bekkinga í Hvolnum þar sem 26 börn luku grunnskólagöngu sinni og halda nú á vit nýrra ævintýra. Við óskum þeim ...

Frá þemadögum á miðstigi :)
08/05/2026

Frá þemadögum á miðstigi :)

Miðstigið ákvað að fjalla um nærumhverfið á þemadögum. Kennarar voru búnir að safna saman helstu örnefnum ásamt fleirum minna þekktum og ætlunin að kynna krökkunum betur fyrir þeim. Krökkum í 4. – 6. bekk var skipt í hópa og unnu alla dagana að því að kynnast sínu næru...

Frábær árangur hjá liði Hvolsskóla í Skólahreysti 👏👏
08/05/2026

Frábær árangur hjá liði Hvolsskóla í Skólahreysti 👏👏

Í gær keppti lið Hvolsskóla í undankeppni fyrir Skólahreysti í Varmárhöllinni í Mosfellsbæ. Liðið skipuðu þau Alexander Úlfar Antonsson, Eðvar Eggert Heiðarsson, Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir og Unnur Kristín Sigurðardóttir og þjálfarar þeirra eru þeir Helgi Jens og Lárus...

Lið Hvolsskóla í Skólahreysti er í startholunum. Útsending hefst kl. 19:45 á RÚV.Áfram Hvolsskóli👏💪
07/05/2026

Lið Hvolsskóla í Skólahreysti er í startholunum. Útsending hefst kl. 19:45 á RÚV.
Áfram Hvolsskóli👏💪

Þemadagar í HvolsskólaNú var að ljúka þemadögum í Hvolsskóla. Hér á eftir koma upplýsingar um hvernig þeim var háttað á ...
22/04/2026

Þemadagar í Hvolsskóla

Nú var að ljúka þemadögum í Hvolsskóla. Hér á eftir koma upplýsingar um hvernig þeim var háttað á elsta stigi. Á þessum dögum heldur 10. bekkur í starfskynningar og 7. bekkur kemur í heimsókn upp á elsta stig og tekur þátt í þemastarfi með 8. og 9. bekk. Að þessu sinni var þemað hjá þessum bekkjum Réttindi, menning og hreyfing barna.

Nemendum var skipt í hópa og fjölbreyttar stöðvar voru bæði úti og inni. Nemendur leystu þrautir um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í hópavinnu. Nemendur kepptust við tímann og voru þrautirnar í anda Breakout Edu kennsluverkfæra. Ein stöðin bauð upp á spil og skák þar sem nemendur fengu tækifæri til að læra ný spil. Í kennslueldhúsinu fengu nemendur að spreyta sig á indverskri matargerð. Góða veðrið var nýtt við sköpun þar sem nemendur æfðu sig að tálga og máluðu ýmsar persónur sem munu skreyta skólann. Úti við voru einnig leikir og þrautir sem reyndu á snerpu og fleiri þætti. Nemendur heimsóttu nýja píluaðstöðu hér á Hvolsvelli og fengu að spreyta sig í pílukasti. Þökkum við Gumma, Orra og Andra kærlega fyrir góðar móttökur. Ekki má gleyma danstímunum hjá Jóni Pétri þar sem unglingunum okkar var enn og aftur hrósað fyrir góða framkomu og virkni.

Starfsfólk elsta stigs þakkar nemendum kærlega fyrir samveruna. Þemadagar gengu mjög vel og má það m.a. þakka jákvæðum nemendum sem voru til í að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum. Fleiri myndir munu birtast síðar á heimasíðu skólans.

Address

Stóragerði 26
Hvolsvöllur
860

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

4884240

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hvolsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Hvolsskóli:

Shortcuts

Share

Category