04/06/2026
Dagný Arnalds lauk píanókennaranámi frá Tónlistarskóla Reykjavíkur árið 2002 og í kjölfarið diplómaprófi í skapandi tónlistarkennslu með áherslu á spuna árið 2004 frá Fédération Internationale Willems í Frakklandi. Dagný starfaði í tvö ár við Iniciativas Musicales tónlistarskólann í Granada á Spáni og var lengi píanókennari og aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Dagný hefur einnig að baki nám í söng og kórstjórn og hefur starfað sem kórstjóri. Vorið 2023 lauk hún MA námi í Listkennslufræðum við Listaháskóla Íslands. Hún hefur undanfarin ár starfað sem tónlistarkennari við Landakotsskóla og tekið þátt í að móta námskeið Tungumálatöfra á Vestfjörðum þar sem sameiginleg listsköpun barna er grunnur að því að styrkja félagsleg tengsl og efla íslenskufærni.