Grunnskólinn í Hveragerði

Grunnskólinn í Hveragerði FB-síða Grunnskólans í Hveragerði.

23/09/2026

Sinfoníuhljómsveit suðurlands kom í heimsókn í dag og flutti Galdrar í tónlist fyrir nemendur í 1. og 2. bekk 🧙🪄

Við fengum að heyra tónlist úr Mary Poppins, Harry Potter, Fantasia og síðan sungu allir saman Af stað að hitta karlinn úr Galdrakarlinum í Oz 🎶

Frábærir tónleikar sem allir nutu í botn! Takk fyrir okkur 👏

Á morgun, lokadegi samgönguviku, munu bæjarfulltrúar leiða svokallaða hjólalest eða hjólastrætó um bæinn. Upphafsstaðset...
21/09/2026

Á morgun, lokadegi samgönguviku, munu bæjarfulltrúar leiða svokallaða hjólalest eða hjólastrætó um bæinn. Upphafsstaðsetningar verða frá fimm stöðum í bænum og er þátttakendum frjálst að koma þangað eða bætast við lestina frá heimilum sínum á leið hennar um bæinn 🚴🚴‍♀️🚴‍♂️

Markmiðið er að skilja bílinn eftir heima þennan dag fyrir skutlið innanbæjar, hreyfa sig og hafa gaman saman. Fyrirmynd hjólarútunnar er að finna víða, meðal annars á Kársnesi í Kópavogi.

Muna eftir hjálminum og klæða sig eftir veðri! 🪖🌧️

Hér má sjá skemmtilegt verkefni sem 1. bekkur vann í sambandi við innlögn á stafnum Aa og dag náttúrunnar 💚Hlustað var á...
16/09/2026

Hér má sjá skemmtilegt verkefni sem 1. bekkur vann í sambandi við innlögn á stafnum Aa og dag náttúrunnar 💚

Hlustað var á söguna um Argintætu og síðan föndruðu þau sína eigin 🥳

Jóga er í boði sem valáfangi fyrir elsta stig í vetur. Flottur hópur af krökkum mættu í fyrsta tímann í vikunni til að t...
12/09/2026

Jóga er í boði sem valáfangi fyrir elsta stig í vetur. Flottur hópur af krökkum mættu í fyrsta tímann í vikunni til að teygja úr sér og fá smá slökun. Í tímunum munum við hreyfa okkur aðeins, fara í gegnum öndunaræfingar og hugleiðslu og endum svo alltaf á nokkura mínútu slökun í lokin. Hver er ekki til í að leggja sig aðeins í lok síðasta tíma dagsins?😊

Við ætlum að taka þátt í treyjudeginum á morgun. Það væri gaman að sjá sem flesta í treyjum 🥰
03/09/2026

Við ætlum að taka þátt í treyjudeginum á morgun. Það væri gaman að sjá sem flesta í treyjum 🥰

Í gær héldu nemendur og starfsfólk GíH í hinar árlegu árgangagöngur 🥳 Þetta er frábær hefð sem gerir nemendum kleift að ...
28/08/2026

Í gær héldu nemendur og starfsfólk GíH í hinar árlegu árgangagöngur 🥳 Þetta er frábær hefð sem gerir nemendum kleift að fara hinar ýmsu gönguleiðir í fallega nærumhverfinu okkar út skólagönguna sína💚☘️🍃

1. bekkur - Heilsuhringur
2. bekkur - Ljóðalaut
3. bekkur - Ölfusborgir
4. bekkur - Upp á Hamarinn
5. bekkur - Hamarshringur
6. bekkur - Skífan
7. bekkur - Reykjafjall
8. bekkur - Reykjadalur
9. og 10. bekkur - Upp Sleggjubeinsskarð frá Hellisheiðarvirkjun yfir í Reykjadal (um það bil 16 km💪)

Við í Grunnskólanum í Hveragerði erum stolt af þessari dýrmætu hefð. Gleðin og ánægjan er alltaf áberandi hjá öllum þennan dag og það var engin breyting á því þetta árið 🫶

‼️🚨
28/08/2026

‼️🚨

Það er að koma að þessu!Við getum ekki beðið eftir að skólinn vakni til lífsins 🥳
22/08/2026

Það er að koma að þessu!
Við getum ekki beðið eftir að skólinn vakni til lífsins 🥳

Grunnskólinn í Hveragerði auglýsir eftir stuðningsfulltrúa ‼️
11/08/2026

Grunnskólinn í Hveragerði auglýsir eftir stuðningsfulltrúa ‼️

Á föstudaginn var sögulegur dagur í skólanum. Í fyrsta sinn var útskriftarathöfn 10. bekkja haldin í nýja hátíðarsal Gru...
07/06/2026

Á föstudaginn var sögulegur dagur í skólanum. Í fyrsta sinn var útskriftarathöfn 10. bekkja haldin í nýja hátíðarsal Grunnskólans í Hveragerði 🥰

Frá því að Barnaskólinn og Gagnfræðaskólinn sameinuðust árið 1988 undir nafni Grunnskólans í Hveragerði, hefur þessi athöfn jafnan verið haldin í Hveragerðiskirkju. Með tilkomu nýja matsalarins, sem breyttist í glæsilegan hátíðarsal í gær, rættist sá draumur að geta útskrifað nemendur innan veggja skólans, að viðstöddum foreldrum og fjölskyldum. Jói Stefáns blés í sinn lúður og útskriftarnemendur inn í salinn með ákveðnum hátíðleik og setti tóninn fyrir athöfnina 🎺

Sævar kvaddi þennan glæsilega hóp með heillaóskum og góðum ráðum. Umsjónarkennararnir Jónas Gunnþór og Sigrún fluttu góða ræðu til útskriftarhópsins. Björgey formaður nemendaráðs, mælti fyrir hönd nemenda, frábær ræða. Matta opnaði hjarta sitt upp á gátt í einlægri ræðu, en hún á mjög persónulega tengingu við þennan flotta hóp, sem ristir mun dýpra en bara í gegnum súkkulaðimola 🍫

Tónlistaratriði frá nemendum var stórskemmtilegt og greinilegt að flytjendum leið vel á sviðinu og gáfu sér góðan tíma til að njóta með öllum viðstöddum. Í lokin var skólabjöllunni hringt og skóla formlega slitið 🔔

Allt tal um ólæsi og ómennsku ungmenna er óþolandi. Auðvitað getum við í skólunum víða gert betur. Þegar við starfsfólk skólanna kveðjum útskriftarnemendur að vori fyllumst við bjartsýni. Unga fólkið er alltaf það sem bjargar okkur frá ruglinu 🙏

Þetta var glæsileg athöfn og útskriftarhópurinn skólanum til mikils sóma. Við óskum þessum frábæru ungmennum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni 🥳

Address

Skólamörk 6
Hveragerði
810

Opening Hours

Monday 07:30 - 14:00
Tuesday 07:30 - 14:00
Wednesday 07:30 - 14:00
Thursday 07:30 - 14:00
Friday 07:30 - 14:00

Telephone

+3544830800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grunnskólinn í Hveragerði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Grunnskólinn í Hveragerði:

Shortcuts

Share

Category