Landbúnaðarháskóli Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands LbhÍ veitir m.a. fræðslu og vísindalega þjálfun fyrir fagfólk í landbúnaði og skyldum greinum.

Landbúnaðarháskóli Íslands lítur til víðari skilgreiningar á hugtakinu landbúnaður samkvæmt lögum. LbhÍ er heimilt að veita meistara- og doktorsgráður, sem og starfs- og endurmenntun á þeim sviðum sem kennd eru við skólann.

Nám í verki – úti í náttúrunniNemendur í meistaranámi í Endurheimt vistkerfa hafa undanfarið unnið að endurheimtarverkef...
18/09/2026

Nám í verki – úti í náttúrunni
Nemendur í meistaranámi í Endurheimt vistkerfa hafa undanfarið unnið að endurheimtarverkefni á Mið-Fossum í Borgarfirði og farið í vettvangsferðir þar sem fjölbreytt verkefni á sviði vistheimtar voru skoðuð.

Leiðin lá meðal annars í Hítardal og á Hellisheiði, þar sem nemendur fengu innsýn í ólíkar nálganir, áskoranir og lausnir í endurheimt vistkerfa.

Við þökkum starfsfólki Land og skógur og Orka náttúrunnar kærlega fyrir fróðlega kynningu, góðar móttökur og fyrir að deila reynslu sinni og þekkingu með hópnum.

Hvernig hönnum við  landslag  út frá sjónarhóli annarra en  mannsins? Nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) glí...
18/09/2026

Hvernig hönnum við landslag út frá sjónarhóli annarra en mannsins? Nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) glímdu nýverið við þessa spurningu með því að stíga út fyrir hefðbundna vettvangsvinnu og setja sig í spor dýranna sjáfra. Verkefnið ber nafnið “Að verða fuglar” (Becoming Birds), sem er nýstárleg vinnustofa í vistfræðilegri hönnun.

Hvernig hönnum við landslag út frá sjónarhóli annarra en mannsins? Nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) glímdu nýverið við þessa spurningu með því að stíga út fyrir hefðbundna vettvangsvinnu og setja sig í spor dýranna sjáfra. Verkefnið ber nafnið “Að verð...

Fortamningarhluta í diplómanámi í tamningum við Landbúnaðarháskóla Íslands er nýverið lokið. Kennslan stóð yfir í tvær o...
17/09/2026

Fortamningarhluta í diplómanámi í tamningum við Landbúnaðarháskóla Íslands er nýverið lokið. Kennslan stóð yfir í tvær og hálfa viku undir leiðsögn Magnúsar Lárussonar. Námskeiðið gekk afar vel og lærðu nemendur margar nýjar og áhugaverðar aðferðir við tamningar á 1–2 vetra gömlum tryppum sem sýndu miklar framfarir á þessum tíma. Á lokadag námskeiðsins þreyttu nemendur próf og síðar um daginn var svo skilasýning fyrir eigendur. Magnús byrjaði á því að fara yfir helstu áhersluatriði námsins og hélt svo sýnikennslu. Í lokin sýndu nemendur eigendunum sín tryppi og ræddu ferlið við þá, svo eigendur fengu góða og skýra innsýn í vinnuna sem unnin var á tímabilinu.

Fortamningarhluta í diplómanámi í tamningum við Landbúnaðarháskóla Íslands er nýverið lokið. Kennslan stóð yfir í tvær og hálfa viku undir leiðsögn Magnúsar Lárussonar. Námskeiðið gekk afar vel og lærðu nemendur margar nýjar og áhugaverðar aðferðir við tamningar á 1...

Við bjóðum öllum að mæta á opna meistaravörn Luisa Malin Wassermann, nema í Umhverfisbreytingum á norðurslóðum (EnCHiL)i...
17/09/2026

Við bjóðum öllum að mæta á opna meistaravörn Luisa Malin Wassermann, nema í Umhverfisbreytingum á norðurslóðum (EnCHiL)i sem fer fram 28. september 2026 kl. 10:00 á Keldnaholti.

Teymið Grænir hagar, sem skipað er þeim Svölu V. Fannarsdóttur, Sigríði Ó. Jónsdóttur og Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, t...
16/09/2026

Teymið Grænir hagar, sem skipað er þeim Svölu V. Fannarsdóttur, Sigríði Ó. Jónsdóttur og Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, tekur þátt í fyrstu umferð Evrópukeppninnar BISC-E (Bio-based Innovation Student Challenge Europe) föstudaginn 18. september 2026. Teymið bar sigur úr býtum í innlendu keppninni hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og UNIgreen Innovation í sumar og freistar þess nú að tryggja sér sæti í lokakeppninni sem fram fer í París.

Keppnin fer fram í gegnum Teams-fjarfundabúnað. Samkvæmt dagskrá keppninnar munu fulltrúar Íslands stíga á stokk klukkan 12:10 að miðevrópskum tíma (CEST), sem jafngildir klukkan 10:10 að íslenskum tíma. Íslenska teymið keppir við fulltrúa frá 12 öðrum Evrópulöndum, þar á meðal Ítalíu, Austurríki, Frakklandi og Spáni.

Teymið Grænir hagar, sem skipað er þeim Svölu V. Fannarsdóttur, Sigríði Ó. Jónsdóttur og Heiðrún Hrund Sigurðardóttir, tekur þátt í fyrstu umferð Evrópukeppninnar BISC-E (Bio-based Innovation Student Challenge Europe) föstudaginn 18. september 2026. Teymið bar sigur úr býtum ...

Ritgerðin fjallar um hvernig náttúruvá er samþætt í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi, með áherslu á laga- og st...
16/09/2026

Ritgerðin fjallar um hvernig náttúruvá er samþætt í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga á Íslandi, með áherslu á laga- og stjórnsýsluumgjörð, ábyrgð og verklag í skipulagsferlinu. Náttúruatburðir síðustu ára, einkum á Reykjanesskaga, hafa dregið fram mikilvægi þess að taka markvisst tillit til náttúruvár í skipulagsákvörðunum til að stuðla að hamfaraáhættuminnkun og auknu samfélagsöryggi.

Markmið rannsóknarinnar var að greina hvernig náttúruvá er samþætt í aðalskipulagsgerð, hvaða brotalamir eru í ferlinu og hvaða úrbætur eru mögulegar. Rannsóknin byggði á heimildarýni og netkönnunum meðal skipulagsfulltrúa, skipulagsráðgjafa, skipulagsnefnda, almannavarnanefnda og umsagnaraðila.

Niðurstöðurnar sýna að heildstætt hamfaraáhættumat er mikilvæg forsenda áhættuupplýstra skipulagsákvarðana, en að óskýrleiki ríkir um hugtök, ábyrgð og framkvæmd slíks mats. Skýr laga- og stjórnsýsluumgjörð sem tengir hættumat við skipulagsgerð er fyrir hendi vegna ofanflóða, en sambærilega umgjörð, leiðbeiningar og verklag skortir fyrir aðra náttúruvá. Þótt flestir þátttakendur telji að tekið sé tillit til náttúruvár, að minnsta kosti að hluta, var mat á því hvort það sé gert með fullnægjandi hætti mismunandi milli hópa.

Rannsóknin bendir til þess að skýra þurfi ábyrgð, styrkja laga- og stjórnsýsluumgjörð og koma á samræmdara ferli áhættumats við aðalskipulagsgerð. Með því mætti stuðla að áhættuupplýstari skipulagsákvörðunum og efla hamfaraáhættuminnkun.

Við bjóðum öllum að mæta á opna meistaravörn Elísabetar Bjarnadóttur, nema í skipulagsfræði sem fer fram 18. september 2026 kl. 11:00.

Öflugur hópur frumkvöðla og sérfræðinga úr atvinnulífinu sá um kennslu á öllum árgöngum náms brautarinnar í Landslagsark...
15/09/2026

Öflugur hópur frumkvöðla og sérfræðinga úr atvinnulífinu sá um kennslu á öllum árgöngum náms brautarinnar í Landslagsarkitektúr (LARK) í dag. Riggað var upp mikilli faglegri breidd þar sem nemendur fengu beinan aðgang að reynslu úr atvinnulífinu.

Þriggja ára samstarf mun tengja nemendur betur við atvinnulífið og íslenskan matvælamarkað. Krónan hefur jafnframt hafið...
10/09/2026

Þriggja ára samstarf mun tengja nemendur betur við atvinnulífið og íslenskan matvælamarkað. Krónan hefur jafnframt hafið heimsendingar á Hvanneyri

Krónan og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning sem gildir árin 2026–2028. Markmiðið er að færa nemendur skólans nær atvinnulífinu, efla þekkingu þeirra á matvælamarkaði og styrkja tengsl Landbúnaðarháskólans, bændasamfélagsins og Krón...

Oddstaðarétt fór fram í dag í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Þangað var meðal annars kindum Landbúnaðarháskóla Íslands (...
09/09/2026

Oddstaðarétt fór fram í dag í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Þangað var meðal annars kindum Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) smalað eftir sumarið á afréttum.

Address

Hvanneyri
311

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 14:00

Telephone

+3544335000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landbúnaðarháskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Landbúnaðarháskóli Íslands:

Share