Foreldrafelag - Hraunvallaskoli / Rodzice - Parents Hraunvallskóli

Foreldrafelag - Hraunvallaskoli / Rodzice - Parents Hraunvallskóli Síða foreldrafélags Hraunvallaskóla Þessi síða er á ábyrgð foreldrafélags Hraunvallaskóla. Hlutverk foreldrafélagsins er m.a.

Hér geta foreldrar fengið upplýsingar um viðburði og sent fyrirspurnir. eftirfarandi:

- Að styðja við skólastarfið
- Stuðla að velferð nemenda skólans
- Efla tengsl heimilis og skóla
- Hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfi
- Hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar í morgun, þann 10. Júní 2026, var erindi foreldrafélags Hraunvallaskó...
10/06/2026

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar í morgun, þann 10. Júní 2026, var erindi foreldrafélags Hraunvallaskóla um að bráðabirgðahús á lóð Hraunvallaskóla, oft nefnd Glæsivellir, verði fjarlægð. Erindið var sent nýjum formanni umhverfis- og framkvæmdaráðs, oddvitum allra flokka í meirihluta bæjarstjórnar, auk bæjarstjóra.

En hvers vegna?
Glæsivöllum var upphaflega komið fyrir á lóð skólans sem tímabundin kennsluaðstaða á meðan skólinn var yfirsetinn. Húsin þjónuðu tilgangi sínum vel á þeim tíma en nú er þörfin fyrir þau ekki til staðar.

Árið 2022 sendi skólastjóri Hraunvallaskóla fyrst erindi til fræðsluráðs Hafnarfjarðar og óskaði eftir að húsin yrðu tekin til að koma fyrir körfuboltavelli aftur á skólalóðinni. Fræðsluráð samþykkti beiðnina og vísaði til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Fjórum árum síðar standa húsin enn á sínum stað.

Húsin taka mikið og óþarft pláss á skólalóðinni og skerða dýrmætt leik- og útivistarsvæði nemenda. Þau grafa undan ásýnd skólalóðarinnar, eru illa farin og þeim ekki haldið við. Þá er um að ræða slysagildru fyrir þau börn sem hætta sér upp á þak húsanna á kvöldin og um helgar.

Foreldrafélag Hraunvallaskóla kallaði eftir því í erindi sínu að húsin yrðu fjarlægð hið fyrsta, eigi síðar en fyrir upphaf skólaársins 2026–2027.

Erindið var tekið fyrir á fundi ráðsins í morgun og var niðurstaða fundarins eftirfarandi:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagssviði að selja húsin til flutnings og þau verði fjarlægð af lóðinni fyrir 1. ágúst 2026.

Foreldrafélag Hraunvallaskóla fagnar niðurstöðu umhverfis- og framkvæmdaráðs og hlakkar til skólaársins 2026-2027 með enn betri skólalóð fyrir börnin okkar.

Þessar fregnir er gott að fá! 🤩86% nemenda sem útskrifuðust frá Hraunvallaskóla luku framhaldsskóla þremur árum síðar 💪
28/05/2026

Þessar fregnir er gott að fá! 🤩
86% nemenda sem útskrifuðust frá Hraunvallaskóla luku framhaldsskóla þremur árum síðar 💪

Gögnin sýna verulegan mun á námsárangri eftir grunnskólum og ósamræmi í einkunnagjöf milli skóla.

Vá vá vá! Takk öll fyrir komuna á Velkomin á Vellina: Hraunvallaskóli 20 ára! 🎈 í dag 🎉Frábært veður, frábært fólk og fr...
28/08/2025

Vá vá vá!
Takk öll fyrir komuna á Velkomin á Vellina: Hraunvallaskóli 20 ára! 🎈 í dag 🎉

Frábært veður, frábært fólk og frábær stemning 🥰

Takk fyrir ykkur! 🥳

Foreldraráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær að VÆBa saman! 💥
04/06/2025

Foreldraráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær að VÆBa saman! 💥

Hálfgerður múgæsingur myndaðist á Thorsplani þegar að foreldraráð Hafnarfjarðarbæjar með hjálp VÆB-bræðra kynntu nýtt framtak sem boðar símalaust sumar fyrir grunnskólanemendur. Krakkar í banastuði sögðu það ekki koma til greina að vera í símanum.

02/05/2025

Virkilega flott myndband sem foreldraráð Hafnarfjarðar setti saman 😍

Horfumst í augu ❤️

Address

Drekavellir 9
Hafnarfjörður
221

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Foreldrafelag - Hraunvallaskoli / Rodzice - Parents Hraunvallskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Foreldrafelag - Hraunvallaskoli / Rodzice - Parents Hraunvallskóli:

Shortcuts

Share