Leikskólinn Víðivellir

Leikskólinn Víðivellir Leikskólinn Víðivellir er fjögurra deilda skóli sem tók til starfa 28. febrúar 1977 og er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær byggir og rekur.

Jákvæðni, virðing og vinátta eru einkunnarorð skólans en einnig hefur skóli án aðgreiningar hefur verið eitt af sérkennum Víðivalla frá stofnun hans og er stór þáttur í uppeldismarkmiðum skólans.
Áhersla er lögð á að hvert barn fái að njóta sín sem einstaklingur. Öllum börnum er gefinn kostur á að þroskast og dafna hlið við hlið í leik og starfi óháð líkamlegu og andlegu atgervi þar sem þau læra hvert af öðru.

Nú hefjum við okkar fimmtugasta starfsár á Víðivöllum! Leikskólinn opnaði 28.febrúar árið 1977.  Það hefur margt breyst ...
27/08/2026

Nú hefjum við okkar fimmtugasta starfsár á Víðivöllum! Leikskólinn opnaði 28.febrúar árið 1977. Það hefur margt breyst í lífi og starfsemi leikskólans síðan þá en ómetanleg þekking og reynsla starfsfólks og einstakt viðmót fylgir okkur alltaf.

Leikskólinn vinnur markvisst að því að tryggja jöfn tækifæri og virðingu fyrir fjölbreytileika meðal barna, foreldra og starfsfólks. Börn eiga rétt á að þörfum þeirra sé mætt í skólastarfi, njóta skólagöngu sinnar og taka framförum í námi og þroska í samræmi við eigin forsendur.

Vissir þú að á þessu skólaári eru tólf starfsmenn sem hafa unnið í meira en 10 ár á Víðivöllum, af þeim eru þrír sem hafa starfað í meira en 20 ár og einn sem er að byrja fertugasta starfsárið!

Börnin á Víðivöllum með leikskólalist í Nettó á Miðvangi. Hvetjum ykkur til að njóta en ekki þjóta næst þegar þið eruð a...
05/06/2026

Börnin á Víðivöllum með leikskólalist í Nettó á Miðvangi. Hvetjum ykkur til að njóta en ekki þjóta næst þegar þið eruð að versla 🎨

Samfélagslögreglan kom á síðasta hjóladag vorsins og fræddi börnin um reiðhjólaöryggi. 🌞
03/06/2026

Samfélagslögreglan kom á síðasta hjóladag vorsins og fræddi börnin um reiðhjólaöryggi. 🌞

Óskum fjölskyldum og öllum öðrum vinum Víðivalla gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári 🎄
18/12/2025

Óskum fjölskyldum og öllum öðrum vinum Víðivalla gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári 🎄

Þá er nýtt skólaár hafið.🤩 Við erum á fullu að taka á móti nýjum börnum og fjölskyldum og við bjóðum þau innilega velkom...
03/09/2025

Þá er nýtt skólaár hafið.🤩 Við erum á fullu að taka á móti nýjum börnum og fjölskyldum og við bjóðum þau innilega velkomin í leikskólann.

Veðrið er búið að leika við okkur og við höfum verið mikið úti að njóta góða veðursins á leikskólalóðinni og í nærumhverfi skólans. ☀️

Í leikskólanum Víðivöllum eru einkunnarorðin jafnrétti, virðing og
vinátta leiðarljós í öllu starfi. Leikskólinn vinnur markvisst að því að tryggja jöfn tækifæri og virðingu fyrir fjölbreytileika meðal barna. Öll börn, óháð aðstæðum, eigi jafnan rétt til þátttöku.

Áhersla er lögð á að útisvæðið sé aðgengilegt öllum og í sumar var unnið að því að setja varanlegt undirlag undir nýja kastalann okkar.

Á Víðivöllum höfum við komið upp skynjunarrými sem styður við nám og vellíðan barna með áherslu á skynjun og ró. Rýmið e...
04/07/2025

Á Víðivöllum höfum við komið upp skynjunarrými sem styður við nám og vellíðan barna með áherslu á skynjun og ró. Rýmið er hannað til að örva sjón, heyrn, snertingu og lykt með róandi lýsingu, hljóðum, mjúkum efnum og ilmefnum. Þar geta börn notið einstaklings- eða hópastunda í öruggu og aðlaðandi umhverfi. Skynjunarrýmið nýtist sérstaklega börnum með skynúrvinnsluvanda eða aðrar sértækar þarfir, en er opið öllum börnum leikskólans.

Börnin á Víðivöllum eru með leikskólalistsýningu í Nettó á Miðvangi. Hvetjum ykkur til að staldra við og njóta listaverk...
14/06/2025

Börnin á Víðivöllum eru með leikskólalistsýningu í Nettó á Miðvangi. Hvetjum ykkur til að staldra við og njóta listaverkanna 🥰

Þökkum foreldrafélaginu fyrir frábæra sumarhátíð í dag 🌞
21/05/2025

Þökkum foreldrafélaginu fyrir frábæra sumarhátíð í dag 🌞

05/02/2025

Rauð viðvörun fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 8-13. Höldum okkur heima nema í ítrustu neyð🙏ℹ️

👉 Röskun er á skólastarfi til kl. 13
👉 Skólastarf á að hefjast kl. 13
👉 Ráðhús Hafnarfjarðar lokað til kl. 13
👉 Þjónustuver lokað en símsvörun í s. 585-5500
👉 Söfn og sundlaugar lokaðar til kl. 13
👉 Frístundabíll verður eftir hádegi
👉 Heimilisþirf falla niður fyrir hádegi
👉 Önnur nauðsynleg heimaþjónusta heldur sér eins og hægt er
👉 Félagsstarf fellur niður fyrir hádegi
👉 Gera má ráð fyrir seinkun á heimsendum mat vegna veðurs
👉 Hlé verður akstursþjónustu fatlaðs fólks og eldri borgara meðan rauð viðvörun gildir. Gera má ráð fyrir truflunum á akstri fram eftir degi meðan viðvaranir eru appelsínugular
👉 Grunnskólahátíðin verður haldin í kvöld

Önnur þjónusta gæti raskast í einhverjum tilfellum en allra leiða verður leitað til að takmarka áhrifin og þjónusta sem ekki má raskast verður í forgangi 🙏

Tilkynning frá Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins

Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, hefur verið gefin út rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá kl. 8-13. Fólk er hvatt til að halda sig heima á meðan óveðrið gengur yfir og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Röskun verður á skólastarfi fimmtudaginn 6. febrúar. Grunn- og leikskólar verða þó ekki lokaðir, en halda úti lágmarksmönnun. Í ítrustu neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.

Fylgstu með:

👉 Fréttum og uppfærslum á fréttamiðlum.
👉 Frekari upplýsingum á https://hfj.is/vedurstofa
👉 Bækling um röskun á skólastarfi https://hfj.is/RoskunSkolastarf

Sjá 👉 https://hfj.is/7oyjrw

Lágmarksstarfsemi í leikskólum á morgun.
05/02/2025

Lágmarksstarfsemi í leikskólum á morgun.

English and Polish below

Tilkynning frá Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins

Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, hefur verið gefin út rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá kl. 8-13. FÓLK ER HVATT TIL HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU. Á fimmtudag verður röskun á skólastarfi. Grunn- og leikskólar verða þó ekki lokaðir, en halda úti lágmarksmönnun. Í ítrustu neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.

ENGLISH

Announcement from the Emergency Control Centre for the Greater Reykjavik Area

Please note that a red weather warning has been issued for the Greater Reykjavik Area, effective from 08:00 until 13:00 on Thursday, 06 February. PEOPLE ARE URGED TO STAY AT HOME UNTIL THE STORM PASSES OVER TOMORROW AND NOT TO BE OUT UNLESS ABSOLUTELY NECESSARY. Tomorrow, Thursday, there will be disruptions to school operations. Kindergartens and primary schools will remain open but with limited staffing. In such cases, parents should notify the school administrators by email if a child is coming to school.

POLISH

Ogłoszenie Sztabu Zarządzania Kryzysowego Regionu Stołecznego
Prosimy pamiętać, że na jutro czwartek 6 lutego, został wydany czerwony alert pogodowy dla regionu stołecznego, obowiązujący od godz. 8:00 do 13:00.

ZALECA SIĘ POZOSTANIE W DOMU PODCZAS PRZECHODZENIA FRONTU BURZOWEGO I UNIKANIE PODRÓŻY, JEŚLI NIE SĄ ONE ABSOLUTNIE KONIECZNE.

W czwartek wystąpią zakłócenia w funkcjonowaniu szkół. Szkoły podstawowe i przedszkola pozostaną otwarte, ale będą działać przy ograniczonym składzie personelu.

W przypadku skrajnych sytuacji awaryjnych i konieczności przyprowadzenia dziecka do placówki, opiekunowie muszą powiadomić administrację szkoły zawczasu drogą emailową o planowanej obecności dziecka.

Address

Miðvangur 39
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 07:30 - 16:30
Tuesday 07:30 - 16:30
Wednesday 07:30 - 16:30
Thursday 07:30 - 16:30
Friday 07:30 - 16:30

Telephone

5553599

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikskólinn Víðivellir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Leikskólinn Víðivellir:

Shortcuts

Share

Category