Kaldársel í 100 ár

Kaldársel í 100 ár Árið 2025 verða 100 ár liðin frá stofnun sumarbúðanna í Kaldárseli.

Hér verður deilt myndum, sögu- og minningarbrotum frá liðnum árum og auglýstir afmælisviðburðir.

11/06/2026

Í gær komu 13 hressir krakkar upp í Kaldársel þar sem foringjar tóku vel á móti þeim og sýndu þeim herbergin sín og staðinn. Í kaffinu var borðað brauð og berlínarbollur áður en haldið var í hellagöngu. Það var pollagallaveður sem kom ekki að sök þar sem það rigndi ekki inni í hellinum. Þá tók við frjáls tími þar sem íþróttasalurinn var vinsæll og margir æfðu atriði fyrir kvöldvökuna. Í kvöldmat var dýrindis hakk og spaghetti með hvítlauksbrauði. Á kvöldvökunni var sungið og krakkarnir voru með skemmtileg og fjölbreytt atriði. Hugleiðing kvöldsins var um náungakærleikann og mikilvægi þess að vera góð hvort við annað. Eftir ávexti og fjör í íþróttasalnum var komið að háttatíma. Flestum tókst vel að sofna eftir góða kvöldstund með sínum foringja.

Í morgun vöknuðu allir hressir og kátir rétt fyrir 8 og fengu sér morgunmat. Við tók morgunstund þar sem öll helstu lögin voru sungin og vel tekið undir. Krakkarnir fengu fræðslu um Biblíuna og Gullnu regluna og heyrðu að lokum eina dæmisögu. Í frjálsa tímanum lék veðrið við okkur og margir nýttu tímann í útivist og smíði. Framundan er skemmtilegur dagur með ævintýraleik, íþróttum og veislukvöldi og svo er heimför á morgun.

Með kveðju,
Karen og Svanhildur forstöðukonur

Myndir úr flokknum:

Þessi síða mun leggjast í dvala nú þegar afmælisárinu er lokið.  Þið getið skrollað niður til 1. janúar og skoðað eldri ...
31/12/2025

Þessi síða mun leggjast í dvala nú þegar afmælisárinu er lokið. Þið getið skrollað niður til 1. janúar og skoðað eldri færslur og verið ófeimin að skrifa ummæli við. Það er líka hægt að nota leitarhnappinn🔍ef þið viljið leita að ykkur sjálfum eða öðrum í færslum hér😉
Bendum á síðuna Kaldársel sem birtir myndir og fréttir frá sumarstarfinu og hópinn "Velunnarar Kaldársels" fyrir þau ykkar sem viljið hugsanlega leggja starfinu lið. https://www.facebook.com/groups/359812614725747
Kærar þakkir fyrir samfylgdina hér, þátttöku í afmælishaldinu og gjafir til starfsins💕 Megi árið 2026 verða ykkur blessunarríkt.
Mynd: Kári Kolbeinsson.

Lausn á getraun sem birtist 21. desember!🙂1 – E   Jóel Friðrik Ingvarsson – Gróa Jóelsdóttir2 – F   Anna Arnardóttir – L...
28/12/2025

Lausn á getraun sem birtist 21. desember!🙂

1 – E Jóel Friðrik Ingvarsson – Gróa Jóelsdóttir
2 – F Anna Arnardóttir – Lena Inaba Árnadóttir
3 – B Anna Jóhanna Hilmarsdóttir – Anna Elísa Gunnarsdóttir
4 – G Ástríður Jónsdóttir – Eyrún Ólöf Ívarsdóttir
5 – C Hanna Ebenezersdóttir – Ebba Freyja Arngrímsdóttir
6 – D Sveinn Alfreðsson – Ólöf Birna Sveinsdóttir
7 – H Sigrún Sumarrós Jónsdóttir – Kristín Halldóra Pálsdóttir
8 – A Ólöf Petrína Alfreðsdóttir – Sigríður Ásta Zimsen Friðriksdóttir
9 – J Ingibjörg Ingvarsdóttir – Hulda Björg Jónasdóttir
10 – I Helga Magnúsdóttir – Guðni Nathan Gunnarsson

Viltu gefa Kaldárseli afmælis- eða jólagjöf?Það er hægt að fá skattafrádrátt af gjöfum.Kennitala 480883-0209Reikningsnúm...
27/12/2025

Viltu gefa Kaldárseli afmælis- eða jólagjöf?
Það er hægt að fá skattafrádrátt af gjöfum.
Kennitala 480883-0209
Reikningsnúmer: 545-26-9111 eða 515-14-404800
Nú eru miklar framkvæmdir í gangi í Kaldárseli og meira framundan. Nauðsynleg uppbygging svo hægt verði að halda áfram starfinu.
Margt smátt gerir eitthvað stórkostlegt💗
Meðfylgjandi mynd er eftir Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur.

Gleðileg jól kæru Kaldæingar og aðrir hollvinir!„Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.“ (Jóh.1:9)
23/12/2025

Gleðileg jól kæru Kaldæingar og aðrir hollvinir!
„Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.“ (Jóh.1:9)

Þar sem allir betri fjölmiðlar færa lesendum sínum þrautir og gátur fyrir jólin kemur hér ein slík.  Það er algengt að b...
21/12/2025

Þar sem allir betri fjölmiðlar færa lesendum sínum þrautir og gátur fyrir jólin kemur hér ein slík.
Það er algengt að börn feti í fótspor foreldra sinna sem starfsmenn í Kaldárseli.
Parið saman foreldra og afkvæmi!
Ekki kíkja strax á komment annarra fyrr en þið eruð búin að spreyta ykkur😉 Eftir það er í lagi að fara að hjálpast að. Engin verðlaun í boði en extra hrós fyrir að geta líka nafngreint fólkið!
Nú er gott að nota stóran tölvuskjá 🤓🖥️ Góðar stundir.
Birt með fyrirvara um villur🤪

Address

Kaldárselsvegur
Hafnarfjörður
220

Telephone

+3545888899

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kaldársel í 100 ár posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Kaldársel í 100 ár:

Shortcuts

Share

Category