Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, School, Strandgata 51, Hafnarfjörður.

24/03/2026

Komið þið sæl

Við viljum vekja athygli á að páskafrí hefst mánudaginn 30. mars. Kennsla hefst aftur eftir páskaleyfi þriðjudaginn 7. apríl skv. stundaskrá.
Endurinnritun opnar í dag þriðjudaginn 24. mars og lýkur 13. apríl n.k. Það verður sendur út sér póstur varðandi þetta.

Bestu óskir um gott páskaleyfi
Tónlistarskólinn

16/02/2026

Viljum vekja athygli á að vetrarfrí er fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Stytting vinnuviku verður í framhaldinu mánudaginn 23. febrúar og þriðjudaginn 24. febrúar.
Kennsla hefst skv stundaskrá eftir leyfi miðvikudaginn 25. febrúar.

Vonum að allir njóti frísins vel.
Skólastjórnendur

12/02/2026

Sinfóníuhljómsveit TH og Strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða með tónleika í Hásölum
á laugardaginn 14.feb kl.12.00.
( lengd tónleika 40 mín )

Tónlist úr bíómyndum o.fl skemmtilegt.

Allir velkomnir !!! - ókeypis aðgangur.

06/02/2026

Minnum á dag tónlistarskólanna á morgun laugardaginn 7. febrúar. - Sjá dagskrá á tonhaf.is.

Byrjum kl. 10 með hljóðfærakynningu

ALLIR VELKOMNIR 🎶

04/02/2026

Viljum vekja athygli á þessu!

Miðvikudaginn 4. febrúar verður hin árlega Grunnskólahátíðin haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu. Grunnskólahátíðin er ball fyrir ungmenni á aldrinum 13 - 16 ára í Hafnarfirði. Krakkarnir koma með rútum á svæðið og þurfum við því að loka bílastæðunum klukkan 17:00 og því mega engir bílar vera á bílastæðinu eftir þann tíma. Endilega áframsendið þennan póst á þá sem erindið varðar.
Vinsamlegast staðfestið þennan póst.
Fyrir hönd grunnskólahátíðarnefndarinnar,

Fjóla Sigrún Sigurðardóttir
Deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar Skarðshlíðarskóla

05/01/2026

Komið þið sæl og gleðilegt ár

Við viljum vekja athygli á að kennsla hefst skv stundaskrá á morgun þriðjudaginn 6. janúar.

Með kveðju,
Tónlistarskólinn
skrifstofa

25/11/2025

Hjá okkur á skrifstofunni er úr og lykill í óskilum. Hafið endilega samband ef einhver týndi í gær eða fyrri part í dag.

28/10/2025

Komið sæl

Við viljum vekja athygli á þessu - sjá hér neðar - endilega passið uppá börnin eftir kl 15 ef Tónlistarskólinn verður ekki felldur niður.

Tilkynning til foreldra – Frístundaakstur fellur niður
Við vorum að senda þetta frá okkur, Sjá fyrir neðan tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins
Kæru foreldrar/forráðamenn,
Vegna veðurs fellur frístundaakstur niður þriðjudaginn 28. október. Það hefur snjóað mikið, færðin er erfið og gera má ráð fyrir að það bæti í með slyddu, lélegu skyggni og talsverðum samgöngutruflunum.
Frístundaheimilin verða opin, en hvatt er til að börn séu sótt snemma og fólk sé ekki seint á ferðinni
Vinsamlegast verið í samskiptum við starfsfólk frístundaheimilisins um hvort barn megi ganga heim eða verði sótt sé þörf á.
Dear parents/guardians,
Due to weather conditions, leisure transport is cancelled on Tuesday, October 28. There has been heavy snowfall, road conditions are difficult, and further sleet is expected, with poor visibility and significant traffic disruptions.
Leisure centers will remain open, but we encourage early pickup and advise against being out late in the day.
Please stay in contact with staff regarding whether your child may walk home or will be picked up.
TILKYNNING FRÁ AÐGERÐASTJÓRN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausa. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en áfram er spáð mikilli snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni. Fólk sem fór að heiman í morgun er beðið um að huga að heimferð sem allra, allra fyrst (mjög gott ef fólk er komið til síns heima fyrir kl. 15) því færðin og veðrið á bara eftir að versna eftir því sem líður á daginn. Áfram má búast miklum samgöngutruflununum og fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Þetta er dagurinn og kvöldið til að vera heima og hafa það notalegt, en ekki ana út í umferðina og sitja þar fastur! Fólk er beðið um að sækja ekki þjónustu í dag sem getur auðveldlega beðið betri tíma, t.d. sundlaugar og bókasöfn, en hvatt er til að þeim verði lokað. Nauðsynlegri þjónustu verður hins vegar haldið úti, t.d heilbrigðisstofnanir og ýmiss velferðarþjónusta.
Þá er það ítrekað, enn og aftur, að ökumenn á vanbúnum ökutækjum eiga alls ekki að vera í umferðinni í þessari miklu vetrarfærð. Þrátt fyrir aðvarnanir hefur borið mikið á því dag og hefur það ollið mjög miklum vandræðum. Vanbúin ökutæki verða fjarlægð á kostnað eigenda. Best er samt að allir sem mögulega geta haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, óháð öllum dekkjabúnaði ökutækja.

17/10/2025

Komið þið sæl

Minnum á vetrarfrí mánudag og þriðjudag 20. og 21. október í næstu viku og svo er frí hjá kennurum vegna styttingu vinnuviku miðvikudag, fimmtudag og föstudag.

Kennsla hefst aftur að loknu fríu mánudaginn 27. október skv. stundaskrá.

Stjórnendur

13/08/2025

Tónlistarnámskeið fyrir ungbörn 6 – 18 mánða verður haldið í Tónlistarskólanum í haust. Þetta eru 6 skipti á laugardögum kl. 10:00 – 10:40 og byrjar laugardaginn 6. september. Skráning er á heimasíðu skólans og er verðið 16.000 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans eða í netfangið [email protected]

Kennari er María Gunnarsdóttir tónmenntakennari

Want your school to be the top-listed School/college in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Strandgata 51
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00