23/09/2026
Hvernig hjálpum við börnum að tjá sig og taka virkari þátt í samskiptum? 💬
Myndrænn stuðningur og aðrar styðjandi tjáskiptaleiðir geta opnað börnum fleiri leiðir til að láta í ljós óskir, hugmyndir og þarfir. En hvar er best að byrja?
Á námskeiðinu Fjölbreyttar og styðjandi tjáskiptaleiðir fer Ragna Laufey Þórðardóttir talmeinafræðingur yfir ólíkar leiðir til að styðja við tjáskipti barna. Sérstök áhersla er lögð á kjarnorðaforða og hagnýt ráð sem þátttakendur geta nýtt í daglegum samskiptum, leik og starfi.
Námskeiðið hentar foreldrum og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og annarra stofnana.
📍 Staðnámskeið 29. september kl. 13–16
Nokkur pláss eru enn laus og hægt er að skrá sig hér: https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/fjolbreyttar-og-stydjandi-tjaskiptaleidir-0926
💻 Fjarnámskeið 26. október kl. 13–16
Skráning hér: https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/fjolbreyttar-og-stydjandi-tjaskiptaleidir-fjarkennsla-1026