Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli Í Skarðshlíðarskóla eru nemendur í 1.- 10. bekk.

26/03/2026

Komið þið sælir kæru forráðamenn

Vegna óveðurs í dag þurfum við að gera breytingar á skóladegi morgundagsins.

Á morgun er skóladagur frá 8:10–11:00, þar sem markmiðið er að ljúka við uppsetningu og fínpússa þemaverkefnin. Sýningin verður haldin milli 11:00 og 12:00.
Nemendur mæta í sínar heimastofur og ekki er gert ráð fyrir íþróttum, sundi eða smiðjum.

Nesti
• Nemendum verður boðið upp á ávexti eins og venjulega
• Hádegismatur er eingöngu fyrir nemendur sem eru skráðir í Skarðssel

Skarðssel
• Skarðssel opnar 11:30

Við sjáum vonandi sem flesta á sýningunni á morgun.
Kærar þakkir fyrir samstarfið og sveigjanleikann 💛

Kveðja
Starfsmenn Skarðshlíðarskóla

Við hvetjum fjölskyldur til að kíkja saman á skólabókasafnið á þriðjudögum í mars 📚
25/02/2026

Við hvetjum fjölskyldur til að kíkja saman á skólabókasafnið á þriðjudögum í mars 📚

Boðið verður upp á viðbótaropnun á skólabókasafni Skarðshlíðarskóla milli kl. 16 og 18 á þriðjudögum í mars, fram að páskafríi. Foreldrar, forráðamenn og aðrir aðstandendur eru velkomin á safnið með nemendum til að eiga notalega stund og velja bækur. Markmiðið er að ...

Vekjum athygli á þessu 👇👇
24/02/2026

Vekjum athygli á þessu 👇👇

Innritun í 1. bekk verður 👉 19. mars 👈

Stefnt er að því að opnað fyrir innritun barna í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði 19. mars næstkomandi. Innrituninni hefur seinkað vegna vandkvæða við yfirfærslu í miðlægt kerfi á landsvísu. Við biðjumst velvirðingar á seinkuninni, sem snertir öll stóru sveitarfélögin. Eitt er þó víst = Við munum mennta hafnfirsku börnin 😘

Sjá 👉 https://hfj.is/sxib8g

Ýmis verkefni í Tæknismiðjum. 10.bekkur forritaði app og 7.bekkur bjó til lyklakippur og þrautabraut fyrir Sphero, sem e...
28/01/2026

Ýmis verkefni í Tæknismiðjum.
10.bekkur forritaði app og 7.bekkur bjó til lyklakippur og þrautabraut fyrir Sphero, sem eru forritanlegir litlir boltar.

Tæknismiðjur hjá 7.bekk í dag. Við byrjum alla smiðju tíma á því að æfa fingrasetningu í 20 mínútur. Verkefni dagsins va...
15/01/2026

Tæknismiðjur hjá 7.bekk í dag. Við byrjum alla smiðju tíma á því að æfa fingrasetningu í 20 mínútur. Verkefni dagsins var svo að búa til myndband af Legó vélmenni sem þau hönnuðu og forrituðu. Útskýra forritið og sýna virkni þess.

Foreldrafræðsla – mikilvægur liður í netöryggi barnaÞann 19. janúar kl. 20:00, verður haldin foreldrafræðsla um netörygg...
09/01/2026

Foreldrafræðsla – mikilvægur liður í netöryggi barna

Þann 19. janúar kl. 20:00, verður haldin foreldrafræðsla um netöryggi barna í hátíðarsal Skarðshlíðarskóla.

Netið og samfélagsmiðlar eru orðin stór hluti af uppeldi barna og ungmenna. Forrit og öpp eru hönnuð til að grípa athygli, halda henni og móta hegðun.

Á foreldrafræðslunni verður farið yfir:

- hvernig tæki, öpp og samfélagsmiðlar eru hönnuð til að „stela“ athygli barna

- áhrif skjátíma á líðan, svefn og samskipti

- aldurstakmörk og ábyrgð foreldra

- áreitni á netinu og deilingu mynda

- hagnýt verkfæri fyrir foreldra

Foreldrar fá hagnýt verkfæri, skýrar leiðbeiningar og verkfærakistu með stuðningsefni sem hægt er að nýta strax heima. Einnig verður unnið með fjölskyldusáttmála, sem getur hjálpað til við að skapa sameiginlegar reglur, draga úr togstreitu og bæta samtal á heimilinu.

📍 Hátíðarsalur Skarðshlíðarskóla
🕗 19. janúar kl. 20:00

Við hvetjum foreldra eindregið til að mæta. Samspil heimilis og skóla skiptir sköpum þegar kemur að netöryggi og líðan barna og ungmenna

Opnunartími skrifstofu Skarðshlíðarskóla yfir jólahátíðina
19/12/2025

Opnunartími skrifstofu Skarðshlíðarskóla yfir jólahátíðina

Skrifstofa Skarðshlíðarskóla verður lokuð frá 22. desember t.o.m. 2. janúar. Skarðssel opnar aftur eftir jólasmiðju 5. janúar. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og vonum að þið njótið hátíðanna. Deila Tísta

3D prentað jólaskraut
19/12/2025

3D prentað jólaskraut

Nemendur í 6. og 7.bekk kynnast 3D prentun í Tæknismiðjum. Þau hanna jólaskraut í forritinu Tinkercad og prenta það í Bambu prentara skólans. Deila Tísta

Skertur dagur föstudaginn 19. desember - dagskrá 🎄
15/12/2025

Skertur dagur föstudaginn 19. desember - dagskrá 🎄

Eins og fyrri ár mæta nemendur einungis á neðangreindum tíma í skólann föstudaginn 19. desember. Hægt var að skrá nemendur í Skarðssel þennan dag frá kl. 8:00 en þeirri skráningu er lokið.   Jólaböll vinabekkja 1. og 6. bekkur Mæting kl. 8:30 Jólaball kl. 8:40- 9:00 Stofujól ...

Jól hjá ÍSAT nemendum
15/12/2025

Jól hjá ÍSAT nemendum

Í íslensku sem öðru tungumáli eru nemendur að fræðast um íslensku jólin og jólasiðina. Nemendur gerðu sína þjóðfána sem síðan voru settir á jólatré á hurð. Tungumálin sem töluð eru í Skarðshlíðarskóla eru ansi mörg og hér á mynd er dæmi um hvernig við segjum gle...

Jólafatadagar verða á þriðjudögum og föstudögum í Skarðshlíðarskóla! Hvetjum öll til að mæta í jólafatnaði á föstudaginn...
25/11/2025

Jólafatadagar verða á þriðjudögum og föstudögum í Skarðshlíðarskóla! Hvetjum öll til að mæta í jólafatnaði á föstudaginn 28. nóv :)

Address

Hádegisskarð 1
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 14:00

Telephone

+3545277300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skarðshlíðarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share